Fréttir - 14.08.2009 |

Leiðbeinandinn Daniel Schlyter, til hægri, aðstoðar Alexei Smith við að finna forfeður sína á meðan aðrir kaþólskir leiðtogar fylgjast með. Frá vinstri William Connor, Cambria Smith og Alfred Baca.

Leiðtogar múslima hlusta á kynningu við Oquirrh Mountain musterið. Talið frá vinstri: Steve F. Gilliland, Hussam Ayloush, Hedab El Tarifi, Judy Gilliland, Nancy and Kent P. Jackson, Shakeel Syed og Kalim Farooki.
Dagana 15. til 17. júlí voru leiðtogar múslima og kaþólskra kirkna frá Suður-Kaliforníu í mannþrönginni á musteristorginu í Saltvatnsborg. Steve og Judy Gilliland frá almannatengslaskrifstofu kirkjunnar í Los Angeles fylgdu trúarleiðtogunum sem voru í heimsókn í Utah á vegum almannatengslaskrifstofu höfuðstöðva kirkjunnar.
Almenn aðdáun á mannúðarþjónustu kirkjunnar og skuldbindingu kirkjuþegna var meðal þess sem látið var í ljós eftir heimsóknina.
Bróðir og systir Gilliland sögðu ferðina hafa verið ráðgerða á fyrrgreindum dögum til að gestirnir gætu séð opna húsið í Oquirrh Mountain musterinu. Þannig gætu gestirnir fengið að sjá musterið og fengið dýpri skilning á því hvers vegna þegnar kirkjunnar sýna trúnni, fjölskyldunni og þjónustu við aðra slíka einurð.
„Þau fengu betri skilning á ‘hvers vega,’“ sagði systir Gilliland. Hún bætti við, „Við berum mikla virðingu fyrir samtrúarleiðtogum þessum [í Suður-Kaliforníu].“
Tveggja daga ferðalagið fól einnig í sér heimsókn í Brigham Young háskólann, Velferðartorgið og mannúðarmiðstöð SDH.
Allir sögðust gestirnir hafa notið heimsóknarinnar í Utah og voru þakklátir fyrir góðmennsku og gestrisni sem þeir fundu fyrir.
„Þetta hafa sannarlega verið mjög spennandi dagar, fullir af andagift,“ sagði Hussam Ayloush, framkvæmdastjóri Suður-Kaliforníu deildarráðs ameríska-íslamska tengsla. „Ég mun sannarlega fara aftur til múslima samfélagsins á Los Angeles svæðinu og deila með þeim árangurríkum sögum og afrekum sem ég hef tekið eftir hér.“ Hann segist vonast til þess að með því sé hægt að styrkja samstarf trúarfélaganna tveggja til frambúðar.
„Hún minnir okkur á að til er stærra markmið í lífinu en við sjálf, sem er að þjóna Guði. Og við þjónum Guði með því að þjóna mannkyninu. Ég tók eftir því hjá öllum sem við hittum að það var sannarlega lifað eftir því markmiði,“ sagði hann um þá einurð og trú sem hann tók eftir á meðan heimsóknin stóð yfir.
Kalim Farooki, gjaldkeri Shura ráðsins í Suður-Kaliforníu og formaður íslamska félagsins í Corona/Norco, sagði að það sem hann hefði tekið eftir á Velferðartorginu og í mannúðarmiðstöð SDH „var afurð hópvinnu, skuldbindingar og skipulagningar.“
Skuldbinding sjálfboðaliðanna hafði einnig djúpstæð áhrif á hann. „Þegar ég fór til [Oquirrh Mountain] musterisins tók ég eftir því að það voru hundruðir sjálfboðaliða. Allir vissu þeir hvað þeir voru að gera og þeir voru brosandi,“ sagði hann.
Í lok heimsóknar sinnar sagði Hedab El Tarifi, varaformaður Muslim Public Affairs Council National Board of Directors og framkvæmdaritari nefndar Íslams miðstöðvarinnar í Suður-Kaliforníu: „Nú get ég í raun svarað spurningum ef ég heyri ákveðnar athugasemdir um mormónana.“ Hún sagðist nú geta varið kirkjuna betur af árásum eins og hún vonaðist til að þegnar kirkjunnar myndu á svipaðan hátt verja trú hennar frá árásum.
„Ég kunni sannarlega að meta heimsóknina í musterið,“ sagði hún. „Ekki eingöngu fegurð byggingarinnar sjálfrar heldur einnig að fá skilning á andlegu athöfnunum og venjunum sem kirkjuþegnar framkvæma í musterinu. Fyrir mér þá var þetta ný þekking.“
Shakeel Syed, framkvæmdastjóri íslamska Shura ráðsins í Suður-Kaliforníu talaði um skuldbindingu kirkjuþegna við að þjóna öðrum. Hann sagði að reka ætti velferðarkerfið rétt eins og kirkjan rekur sitt, „ekki á yfirlætislegan hátt heldur með auðmjúkum þjónustuanda og með reisn.“
Kaþólsku gestirnir komu einum degi á eftir Múslima hópnum en fylgdu nánast sömu ferðaáætlun.
Einn af hápunktum ferðarinnar sem kaþólsku leiðtogarnir töluðu um var uppgötvun séra Alexei Smith um pólska forfeður sína, sem átti sér stað þegar Ættfræðimiðstöðin var heimsótt. Daniel Schlyster, ættfræði leiðbeinandi, sat með honum við tölvuna og aðstoðaði hann. Séra Smith er framkvæmdastjóri alkirkjusamfélags rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Los Angeles og sóknarprestur rússnesku grísk-kaþólsku kirkjunnar í El Segundo í Kaliforníu.
Eftir heimsóknina til Brigham Young háskólans sagði séra Smith: „Við höfum aldrei áður séð jafn stóran hóp af siðsamlega klæddu og vel hirtu ungu fólki. Ekki ein einasta persóna var klæðlítil eða í fatnaði sem afhjúpaði líkamann. Þau voru öll mjög vel til höfð.“
Séra Alfred S. Baca er biskuplegur sóknarprestur í rómverk-kaþólska biskupsumdæminu í Orange sýslu í Kaliforníu og sóknarprestur í St. Cecilia kirkjunni og skólanum í Tustin í Kaliforníu. Eftir að hafa skoðað byggingar kirkjunnar og sögusafn og listasafn kirkjunnar sagði hann: „Ég komst að því að sögur eru hinum Síðari daga heilögum mjög mikilvægar – sögur um fjölskyldur, trú og venjur. Við getum lært mun betur hver við erum og hvert við erum að fara af sögum … Sögur eru einnig mikilvægar fyrir kaþólikka. Það eigum við sameiginlegt.“
Camria Smith, lífstjórnandi Holy Family safnaðarins í Suður-Pasadena í Kaliforníu sagði við Gilliland hjónin eftir að hafa heimsótt velferðarbyggingar kirkjunnar: „Þessi reynsla dýpkaði skilning minn og velþóknun á góðgerðarstörfum ykkar. Ég komst að svo miklu um skipulagsform ykkar og venjur. Mér þótti mikið til koma um þær fórnir sem þið færið kirkjunni og sérstaklega öðru fólki.“
Séra William Connor frá kaþólsku kirkjunni St. Joseph í Long Beach tók saman eftirfarandi: „Ég er svo þakklátur fyrir að hafa verið boðið að koma til Saltvatnsborgar. Ég er undrandi á öllu því sem ég hef kynnst um SDH fólkið. Þið eru svo þjónustulunduð og lifið eftir þeim sáttmálum sem þið hafið gert. Þið reynið að lifa eftir reglum fagnaðarerindis Krists í daglegu lífi ykkar.“