Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 29.03.2008

 

Trú unglinganna 'ekki eldflaugavísindi'

Christian Smith heilsar öldungi Richard G. Scott.

 

Trúarlíf unglinga mótast á kraftmikinn hátt af trúarlífi foreldra þeirra — til hins betra eða verra, sagði virtur rannsakandi unglinga og trúar í ræðu í BYU hinn 7. febrúar.

„Að styrkja trúarlíf unglinga er ekki eldflaugavísindi. Þar er ekki þörf á einhverri snilldaráætlun eða að upphugsa nýja innsæisaðferð. Það krefst aðeins grundvallar skuldbindingar, markmiðssóknar, vilja til að kenna fólki, viðleitni til að laga fólk að samfélaginu og að fullorðnir hafi áhuga á lífi þeirra. “

Flytjandi hinn fjórða árlega fyrirlestur sem Marjorie Pay Hinckley Endowed Chair fyrirlesari í BYU, Christian Smith, forstöðumaður Center for the Study of Religion and Society við University of Notre Dame, fjallaði um málefnið „Sálarrannsókn: Skilningur á trúarlegu og andlegu lífi amerískra unglinga – niðurstöður frá National Study of Youth & Religion.“

Nefnd eftir eiginkonu Gordons B. Hinckley forseta, Marjorie Pay Hinckley Endowed Chair in Social Work and the Social Sciences var stofnsett 2004 til heiðurs þjónustu systur Hinckley og framlags hennar til þessara málefna. Kennarastaðan beinist að fjölskyldumálefnum með rannsóknum og menntun, auka þekkingu með fyrirlestrum og skipulagðri kennslu, aukinni samfélagsþátttöku og að leggja háskólanum til þjónustu.

Hundruð námsmanna og fjölskyldu fræðimanna — ásamt fjölskyldumeðlima systur Hinckleys — mættu á fyrirlesturinn, sem haldinn var innan viku frá jarðarför Hinckleys forseta 2. febrúar. Í hádegisverðarboði á undan fyrirlestrinum þakkaði Clark Hinckley, sonur Hinckleys forseta og systur Hinckley þeim sem viðstaddir voru fyrir að gera gjöfina mögulega.

„Sem synir og dætur Marjorie Pay Hinckley, erum við þakklát fyrir það verk sem unnið er út frá gjöfinni og þá miklu minningu og þann sóma sem það sýnir móður okkar,“ sagði bróðir Hinckley. „Ég tel að hún væri ánægð. Mamma elskaði fólk. Það var hennar mikli styrkur, hennar besti eiginleiki og sterkasta persónueinkenni. Hún elskaði að hjálpa fólki. Hún naut þess að vera með því. Hún elskaði að gera allt sem hún gat fyrir það. Og við metum mikils þann sóma sem henni verður áfram sýndur og halda mun áfram að hjálpa fólki í mörg, mörg ókomin ár.“

Bróðir Hinckley sagði að það gleddi fjölskyldu sína að hádegisverðurinn á undan fyrirlestrinum væri haldinn í Gordon B. Hinckley Alumni and Visitors Center, byggingu sem nefnd er eftir föður hans sem hélt upp á 96. og 97. afmælisdag sinn í BYU nemendabúðunum á staðnum. Byggingin, sagði hann „á sér sérstakan stað í minningum okkar.“

Hann minntist þess að þegar haldið var upp á fyrstu skóflustungu byggingarinnar, 23. júní 2006, hafi faðir hans minnst á kennarastöðuna í nafni systur Hinckley. „Hún á hér í nemendabúðunum stól sem ber hennar nafn, og nú hef ég hér byggingu,“ sagði Hinckley forseti þá. „Kannski ættum við að flytja stólinn hennar inn í bygginguna mína, og við mundum vera saman á nýjan leik.“

Bróðir Hinckley sagði að í „allri þeirri ljúfu reynslu sem við höfum eignast á liðnum tveimur vikum, og í öllum þeim mikla kærleika sem hellt hefur verið yfir okkur frá svo mörgum þúsundum fólks vegna foreldra okkar, hefur yfirþyrmandi gleðitilfinning okkar að mörgu leyti verið sú vitneskja að hann og mamma eru aftur saman, gerandi það sem þau gerðu best og það sem þeim þótti vænst um, og það var að vera saman og halda fram á við og vinna.

Mig grunar að þau vinni af fullu kappi á þessari stundu. Ég veit ekki hvort þau fá að sofa þarna hinu megin. Ég hef alltaf haft af því áhyggjur. En mig grunar að þau séu virk og sýnilega starfandi, saman á ný, gerandi þá hluti sem þau kunna vel og líkar að gera. Og vissulega líkaði þeim að vinna þannig saman.“

Í fyrirlestri sínum, lét dr. Smith í ljós samúð sína vegna nýlegs láts Hinckley forseta. „Mér er ljóst … að hann og kona hans voru ákaflega sérstakt fólk, alveg ótrúlegar manneskjur … Svo að ég stend hér með ykkur og heiðra þau.
Samt erum við hér saman komin í nafni Marjorie Pay Hinckley til að heiðra hana, til að halda áfram því starfi sem hún hóf í heimi hér. … Ég vona að fyrirlestur minn verði að einhverju leyti í samræmi við vinsemd hennar og mikilleika.
Hann talaði um rannsókn sem greint var frá 1995, um ameríska unglinga og áhrif trúar í lífi þeirra. Hann hefur síðan framkvæmt aðra lotu rannsóknarinnar og er að vinna að þriðju lotunni.

Rannsóknin — sem, svo sem vænta mátti af almannarómi, staðfesti að 84 prósent bandarískra unglinga trúa á Guð og 59 prósent mæta í guðsþjónustu að minnsta kosti mánaðarlega — var sett fram í bók, „Soul Searching: The Religious and Spiritual Lives of American Teenagers,“ útgefinni af  Oxford University Press.

Í ræðu sinni á apríl 2005 ráðstefnunni, minntist Hinckley forseti á rannsóknina — viðamestu rannsókn varðandi unglinga og trúarbrögð sem um getur. 
Niðurstöðurnar sýndu að Síðari daga heilagra unglingar biðjast meira fyrir, taka minni þátt í eyðileggingarathöfnum, og geta betur greint frá trúarsannfæringu sinni en miðlungs ameríski unglingurinn, „að hluta til vegna þess að þið öll komið þeim á fætur kl. 5:30 að morgni til að fara í trúarskólann. Það virðist gera gæfumuninn,“ sagði dr. Smith.

Þegar öllu er á botninn hvolft, bætti hann við, þá er besta þjóðfélagslega vísbendingin um trúarlega niðurstöðu af lífi unglinganna hið trúarlega líf foreldranna. „Við fáum það sem við erum,“ sagði hann.