Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 08.03.2008

 

Tímarit kirkjunnar bera vitni um Krist

Mynd eftir Carl Heinrich Bloch prýðir kápusíðu marsútgáfu tímaritanna Ensign og Liahona. Til að auka lotningu fyrir frelsarnum er plastkápa sett yfir mynd af honum og nafn tímaritsins haft utan á henni.

Hver mánaðarútgáfa tímaritanna Ensign og Liahona ber vitni um frelsarann og þjónustu hans. Kirkjutímaritin líkt og Nefí, tala, kenna og vitna um Krist.
 
Í marsútgáfu tímaritanna er efnið þó enn frekar helgað Kristi. Útgáfa þessi var tvö ár í þróun og vinnslu og þemað er líf og þjónusta frelsarans. Markmiðið með útgáfunni er tvíþætt: Að efla vitnisburði um Jesú Krist og sjá fólki fyrir vönduðu og vel skrifuðu blaði, sem hægt er að miðla fjölskyldu, vinum og vandamönnum.

„Tímaritunum er ætlað að auka skilning meðlima og annarra á lífi og þjónustu Drottins Jesú Krists og stuðla að vitnisburði um guðleika hans með því að svara þremur spurningum:  Hver er Jesús Kristur? Hvað gerði hann? Hvaða þýðingu hefur hann fyrir mig?“ sagði öldungur David A. Bednar, í Tólfpostulasveitinni.

Þeir sem lesa blöðin munu hljóta aukinn skilning á honum, aukinn vitnisburð og aukna þrá til að fylgja honum og hljóta þekkingu á almennum kenningum kirkjunnar um Krist, sagði öldungur Jay E. Jensen, af hinum Sjötíu, sem þjónar sem ritstjóri kirkjutímaritanna.

„Að auka trú á hann og þrá til að fylgja honum,“ er markmið þessarar sérstöku útgáfu, sagði hann. Og síðan sagði hann að sterkar vonir væru bundnar við það að meðlimir gæfu samferðafólki sínu eintak til vitnis um að „við séum kristin.“

Hin fallega mynd Kristur með dreng eftir Carl Heinrich Bloch prýðir kápusíðuna. Vönduð plastkápa er yfir myndinni og er henni ætlað að auka lotningu fyrir frelsaranum, en mynd af honum sést þar í gegn og er nafn tímaritsins á plastkápunni.

Alltaf þegar tímaritin birta myndir af frelsaranum eru þær vandlega valdar með Æðsta forsætisráðinu. Fyrir útgáfu þessara tímarita voru hundruð mynda skoðaðar, en voru ekki endanlega valdar samhljóða fyrr en ritstjórar og hönnuðir lögðu fram myndina eftir Bloch í plastkápunni.

„Af myndinni stafar áhrifum lotningar,“ sagði Scott Van Kampen, listhönnuður tímaritsins Liahona, „sem virðist ná athygli lesandans. Efnið er um persónulega opinberun og persónulegt samband við frelsarann.“

Fyrsta greinin er vitnisburður Gordons B. Hinckley forseta, sem gefinn var út fyrir andlát hans. „Enginn fær að fullu skilið stórbrotið líf hans, mikilfengleika dauða hans, yfirgripsmikla gjöf hans til mannkyns,“ skrifaði hann.

Boyd K. Packer forseti Tólfpostulasveitarinnar fjallar um spurninguna: „Hver er Jesús Kristur?“ Hann greinir frá dyggðum frelsarans og tilfinningaþrungnum stundum við réttarhöldin með Pílatusi, þegar frelsarinn var hljóður og auðmjúkur, þrátt fyrir háðið og ofbeldið, utan eins dramantísks tilviks.

„Maður getur aðeins ímyndað sér hátign Drottins þegar hann mælti: ‚Þú hefir ekkert vald yfir mér, ef þér væri ekki gefið það að ofan‘.“

Packer forseti segir í lokin: „Ég get ekki af rósemd sagt ykkur hversu mikils virði friðþægingin er mér. Hún vekur mínar innilegustu tilfinningar þakklætis og skyldbindingar. Sál mín leitar hans sem gerði hana að veruleika.“

Í öðrum greinum, eftir hina leiðandi bræður kirkjunnar, er fjallað um trú á Jesú Krist, friðþæginguna og að verða vitni Krists. Henry B. Eyring forseti, fyrsti ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, sagði: „Orðin ‚að koma til Krists‘ eru boð. Það er mikilvægasta boðið sem þið getið fært öðrum. …

Öll ættum við að hafa mikinn áhuga á að læra hvernig setja á það boð fram með árangri.“
Mars útgáfa tímaritana Ensign og Liahona er vönduð í alla staði og gefur lesendum kost á að njóta frábærrar lesningar og innblásins efnis.

Námsboð - Þegar þið lesið hinar ritningartengdu frásagnir um líf og þjónustu Jesú Krists, verður ykkur ljóst hve mjög hann persónugerði kærleikann. Hann læknaði og blessaði. Hann sá handan mannlegs breiskleika í hjörtu manna — og færði von, lækningu og fyrirgefningu með þjónustu sinni, kenndi og gerði hina miklu friðþægingarfórn að veruleika.

Þessi sami frelsari, sonur Guðs, lifir. Hann þekkir hjörtu okkar og elskar okkur. Hann hefur samúð með okkur og þráir að blessa okkur. Það er boðskapur þessara tímarita. Hann kemur fram í orðum lifandi spámanna og postula, sem kenna okkur um Krist og það sem hann býður okkur. Og hann kemur fram í vitnisburði venjulegs fólks sem er blessað af því að hafa tekið á móti boði Krists um að koma til hans og læra af og fylgja honum.

Við hvetjum ykkur til að lesa þennan boðskap í bænaranda, taka á móti honum og deila honum með öðrum.— Ritstjórar tímaritanna