Fréttir - 06.08.2009 |

Barack Obama forseti Bandaríkjanna ræðir við (frá vinstri) Harry Reid öldungadeildarþingmann, Joshua DuBois, Thomas S. Monson forseta og öldung Dallin H. Oaks í forsetaskrifstofu Hvíta hússins. © Opinber ljósmynd frá Hvíta Húsinu eftir Pete Souza.
Þann 20. júlí var Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, færð ættarsaga hans í fimm stórum leðurbundnum bindum. Var það Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sem færði gjöfina en fjölskyldusaga Obama er rakin nokkur hundruð ár aftur í tímann og nær yfir fjölmarga ættliði. Thomas S. Monson forseti kirkjunnar og öldungur Dallin H. Oaks úr Tólfpostularáði kirkunnar færðu gjöfina. Með þeim var Harry Reid leiðtogi meirihluta öldungadeildar Bandaríkjanna frá Nevada, sem einnig er meðlimur kirkjunnar.
Monson forseti sagði: „Arfleið Obama forseta er rík af leiðtogum, fórnum og þjónustu. Við höfðum ánægju að vinna ættarsögu hans og það er okkur heiður að fá að veita honum hana.“
Öldungur Oaks, sem hefur yfirumsjón með Ættfræðideild kirkjunnar sagði: „Kirkjan hefur úr miklu að moða sem og mikla reynslu þegar kemur að ættfræðistörfum. Það er okkur mikil ánægja að hafa rakið ættir fjölskyldu sem er svo einstök og tilkomumikil.“
„Ég vil þakka Monson forseta og öldungi Oaks fyrir að deila hefð trúar okkar á ættfræði með forsetanum og fjölskyldu hans,“ sagði Harry Reid leiðtogi meirihluta öldungadeildarinnar. „Það var einnig ánægjulegt að Obama forseti og öldungur Oaks náðu að ræða saman um sameiginlegt dálæti sitt, lögfræðina.“
Kirkjan hefur einnig fært öðrum forsetum Bandaríkjanna persónulega ættfræði þeirra, þar á meðal George W. Bush og Bill Clinton.
HVÍTA HÚSIÐ
Fjölmiðlaskrifstofan
______________________________________
FYRIR OPINBERA BIRTINGU
20. júlí 2009
Yfirlýsing frá forsetanum eftir fund sinn með öldungardeildarþingmanninum Harry Reid og leiðtogum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu
Forsetinn gaf út eftirfarandi yfirlýsingu eftir að hafa hitt öldungadeildarþingmanninn Harry Reid og leiðtoga Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Hvíta húsinu í dag:
„Ég naut þess að hitta Monson forseta og öldung Oaks. Ég er þakklátur fyrir ættfræðina sem þeir færðu mér og hlakka til þess að lesa í gegnum þetta efni með dætrum mínum. Þetta er nokkuð sem fjölskylda mín mun varðveita sem kjörgrip um ókomin ár.“