Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 02.12.2008

 

Sýndarheimurinn

Sérfræðingar segja að börn og unglingar þurfi aðstoð við að vafra um á Alnetinu og til að takast á við aðra slíka tækni. Margir foreldrar þurfa að lesa sig til sjálfir áður en þeir geta aðstoðað börnin sín.

Jill C. Manning man ennþá eftir að hafa spilað fyrstu kynslóðar tölvuleikinn Pong.

Pong, sem kom á markað árið 1972, byggðist á borðtennis íþróttinni og gekk út á að þátttakendur hreyfðu tvær línur upp og niður á skjánum til þess að taka á móti depli (sem táknaði bolta) sem færðist frá einni hlið skjásins til hinnar.

Í dag myndi æskufólk ekki hafa mikinn áhuga á Pong sem varð fyrsti tölvuleikurinn til að ná útbreiddum vinsældum bæði í tölvuleikjasölum sem og á heimilum.  Tölvuleikir nútímans samanstanda af raunverulegum myndum, hljóðum og grafík.  Þeir sem spila leikina geta persónugert þá samkvæmt eigin geðþótta og eftir því hvernig skapi þeir eru í.  Þátttakendur þurfa ekki bara að spila á móti keppendum sem eru í sama herbergi og horfa á sama skjáinn heldur er hægt að skora á aðra þátttakendur í mismunandi löndum í gegnum Alnetið.

Leikirnir sem spilaðir eru í dag myndu vera óskiljanlegur fyrir þá sem spiluðu tölvuleikina árið 1972, bæði skilningslega séð sem og ná utan um þá, sagði systir Manning sem er löggiltur hjónabands- og fjölskyldu meðferðarsérfræðingur.

Þetta er vandamálið við tæknina á mörgum heimilum, sagði hún.  „Þegar það kemur að tækninni, og sérstaklega Alnetinu, þá eru margir foreldrar sem ólust upp á tímum þegar Alnetið var ekki komið og hugarfar þeirra einkennist af sjöunda-, áttunda- og níunda áratugunum.  Þeir hafa ekki viðmiðun gagnvart þeirri hættu sem við erum að tala um.“

Tilkoma Alnetsins hefur gjörbreytt hinu félagslega umhverfi fyrir unga fólkið, sagði systir Manning, sem bar vitni fyrir undirnefnd öldungadeildar Bandaríkjanna er fjallaði um skaðleg áhrif kláms og er hún höfundur bókarinnar What's the Big Deal about Pornography: A Guide for the Internet Generation.
Klám á Alnetinu er til dæmis ekki það sama og hreyfingarlaus ljósmynd í tímariti.  Þvert á móti hefur fólk, með nokkrum músasmellum, aðgang að „að því virðist óendanlegum lista af djörfum kynferðislegum myndum sem oft eru með hljóði og hreyfingu og er djarfara en klám fyrri tíma,“ sagði hún.
Í raun og veru, sagði hún, má bera saman hugarfar fólks gagnvart klámi gagnvart raunveruleikanum með því að bera saman tölvuleikinn Pong við tölvuleiki nútímans.  Þótt að Alnetið sé „mjög kröftugt verkfæri til góðs,“ sagði systir Manning, þá er það „ekki öruggt umhverfi fyrir börn.“

„Börn og unglingar ættu ekki að fá að vafra í sýndarveruleikanum alein,“ sagði hún.  Skilaboð systur Manning eru einföld:  Foreldrar ættu að vera viðriðnir er börn þeirra eru á netinu.  „Mér finnst Alnetið ekki vera öruggur staður fyrir unga fólkið að eiga persónuleg samskipti,“ sagði hún.

„Hið vinsæla vefsetur MySpace.com er með yfir 180 milljón notenda uppsetningar sem gerir vefsetrið að stærsta félagslega neti í heimi,“ sagði hún.  „Þetta kann að virðast sem góður staður til að hitta mikið af fólki.  Hins vegar eru margir kynferðisafbrotamenn með sína eigin notenda uppsetningu á MySpace.com sem þeir nota til þess að finna ný fórnarlömb.“ 

Systir Manning sagði að á fyrstu tveimur vikunum í maí 2007 eyddi MySpace.com 7.000 notenda uppsetningum kynferðisafbrotamanna og hefur eytt mörgum til viðbótar síðan þá. 

Hún bætir við að spjallrásir (e. Chat rooms)  „leiði þátttakendur oft til þess að eiga samræður um umtalsefni sem þau myndu ekki eiga í raunveruleikanum.  Tal um kynlíf, kynþáttafordómar, karlremba og hatursfullt orðabragð finnast oft á spjallrásum.  Að fara inn á spjallrás er eins og að fara í veislu þar sem glæpamönnum, kynferðis ofbeldismönnum og ruddalegu fólki er blandað saman við heiðarlegt og snyrtilegt fólk.  Stærsti munurinn er hins vegar sá að á spjallrásinni er ekki hægt að greina á milli því allir líta eins út á yfirborðinu.“ 

Unglingar ættu að muna að fólk getur sýnt sig á hvaða hátt sem er á netinu sem gerir það að verkum að ómögulegt er að segja hver persóna er í raun og veru.  Þess vegna er svo mikilvægt að deila aldrei persónulegum upplýsingum á netinu, bætir hún við.

Systir Manning mælir með að unglingar hitti annað fólk í raunveruleikanum og noti síðan tæknina til þess að fóstra vinskap sinn.
Félagsleg net, eins og Facebook og MySpace, eru þeir staðir sem unga fólkið hangir á í dag.  Áður fyrr voru það verslunarmiðstöðvarnar, sagði Peter Ferioli, framkvæmdastjóri Net Nanny sviðsins hjá fyrirtækinu Content Watch Internet Protection.  „Þau hitta hvort annað í sýndarheiminum.  Á vissan hátt verður sýndarheimurinn eins og stórfjölskylda fyrir marga unglinga.  Foreldrarnir eru alltaf svolítið eftirá hvað þetta varðar,“ sagði hann.

„Alnetið er eitt af þeim fáu hlutum sem foreldrarnir hafa ekki upplifað sjálfir sem unglingar,“ bætir Jack Sunderlage, forstjóri Content Watch Internet Protection.

Og vandamálið er að margir unglingar skilja ekki afleiðingar sem gjörðir á netinu leiða til því þeim finnst þau vera nafnlaus og óþekkt á netingu.  En þau þurfa að gera sér grein að allt sem þau gera á netinu er vistað einhversstaðar, sagði hann.

Dan Gray, klínískur félagsráðgjafi og framkvæmdastjóri LifeSTAR Network, segir að það sé vaxandi hópur foreldra og leiðtoga í stjórnmálum og samfélaginu sem hafi áhyggjur af áhrifum Alnetsins á börn.  „Þau einangrast og læra ekki þá félagslegu færni sem þau þurfa til þess að takast á við lífið,“ sagði hann.

Hvorki bróðir Gray né Todd Olson, annar framkvæmdastjóri hjá LifeSTAR Network, mæla þó ekki með að Alnetið eða tölvur séu fjarlægðar af heimilum heldur hvetja þeir til þess að foreldrar fylgist með því sem börnin þeirra eru að gera á netinu.  

Þeir mæla með hugbúnaðarforriti sem afriti og sendi foreldrum tölvupóst af tölvupósts samskiptum yngri barna.  „Börnin þurfa að fá tækifæri til þess að æfi sig á tækninni,“ sagði bróðir Olson.  „Við ætlum ekki að fjarlæga heldur kenna þeim.“

Systir Manning sagði mikilvægt að opinskjá umræða sé í fjölskyldunni um Alnetið.  „Við þurfum að spyrja: Hvernig getum við sem fjölskylda unnið saman að því að halda okkar fólki öruggu?“