Fréttir - 06.03.2009 |
Nýlegar rannsóknir sýna að fjórði hver amerískur vinnukraftur hefur verulegar áhyggjur af fjármálum sínum. Þessu til viðbótar er mikill ólgusjór í efnahagskerfinu á þessum tíma og þá verður þörfin fyrir að laga til í persónulegum fjármálum sem og fjármálum fjölskyldunnar mun meiri.
Richard W. Ebert Jr., framkvæmdastjóri atvinnuþjónustu Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, segir, „Fjárhagslegir erfiðleikar er uppspretta mikillar óhamingju og eru án efa stór þáttur vinnutengdra erfiðleika og erfiðleika fjölskyldna. Ef ekki er leyst úr þeim geta þeir leitt til yfirgnæfandi skuldar og skilnaðar.“
Með þetta í huga hafa leiðtogar kirkjunnar ráðlagt kirkjuþegnum í marga áratugi að undirbúa sig fyrir erfiða tíma með því að forðast fjárhagserfiðleika og vera fjárhagslega stöðug. Nýlega gáfu leiðtogar kirkjunnar út bæklinginn Öllu er örugglega saman safnað: Fjölskyldufjárhagur til að hjálpa kirkjuþegnum að stýra auðlindum sínum.
Bæklingurinn ráðleggur fjölskyldum að „undirbúa fyrir andstreymi með því að laga heimilisfjárhaginn. Við hvetjum þig til þess að vera hæversk í fjárútláti og sýna aga í innkaupum til þess að forðast skuldsetningu. Borgaðu skuldir niður eins hratt og þú getur og leystu sjálfan þig þar með úr ánauð. Sparaðu peninga og byggðu smá saman upp varaforða. Ef þú hefur borgað skuldir þínar og átt varaforða fjárs, hversu lítill sem sá forði kann að vera, þá finnst þér og fjölskyldu þinni þið vera mun öruggari og getið notið meiri friðar í hjörtum ykkar.“
Bæklinginn er hægt að nálgast á heimasíðu velferðarþjónustu kirkjunnar
www.providentliving.org. Heimasíðan veitir einnig eftirfarandi leiðbeiningar til að hjálpa fjölskyldum að bera meiri fjárhagslega ábyrgð:
1. Forðast skuldsetningu. Þróaðu með þér hófsemi með því að eyða minna en þú þénar og að spara pening til að kaupa það sem þig vantar í stað þess að kaupa á lánum eða með kreditkortum. Forðastu skuldsetningu nema fyrir lífsnauðsynlegar þarfir, menntun og til að kaupa látlaust heimili.
2. Nota fjárhagsáætlun. Skráðu allar tekjur og fjárútlát mánaðarins. Settu saman fjárhagsáætlun fyrir fjölskylduna með þessum upplýsingum. Skráðu hversu mikið þú munt spara og hversu mikið þú munt eyða í mat, húsnæði, tryggingar, rafmagn og svo framvegis. Lækkaðu fjárútlátið á þeim þáttum sem ekki eru nauðsynlegir.
3. Kenna fjölskyldunni snemma mikilvægi þess að vinna og afla fjárs. Börn ættu að bera ábyrgð á ákvörðunum sem hafa með þeirra eigin pening að gera og axla afleiðingum ef ílla fer. Kenna þarf börnunum að skilja fjárhag fjölskyldunnar, markmið fjárhagsáætlunarinnar og ábyrgð þeirra sem einstaklinga innan fjölskyldunnar þegar þau þroskast.
4. Vinna að því að eignast heimili. Lagfærðu heimilið sem þú kaupir svo þú getir gert eignina verðmætari og þar af leiðandi keypt betra heimili ef þú ákveður að selja.
5. Vertu viss að hafa viðeigandi tryggingar til að fyrirbyggja stórar skuldir sem ótryggðar fjölskyldur gætu lent í þegar eitthvað bjátar á.
6. Settu upp matar- og neyðaráætlun. Með því að sá og uppskera matjurtargarð árlega getur þú hjálpað fjármálum fjölskyldunnar og er einnig hvatning fyrir því að safnað sé í matarforða.
7. Hafa varaforða. Safnaðu smá saman pening og notaðu þennan pening eingöngu í neyðartilvikum.
Heimasíðan veitir einnig mörg fjárhagsleg verkfæri sem hjálpa fjölskyldum og einstaklingum við að ákvörðunartökur. Þessi verkfæri geta hjálpað til við komast að því hversu hratt lán og skuldir geta verið greidd upp, hversu mikið þarf að spara fyrir eftirlaunaárin, hversu mikið þarf að spara til að ná ákveðnu markmiði og reikna út mánaðarlega afborgun á nýju heimili. Verkfærið tekur mið af tekjum einstaklinga.
Hérna er beinn tengill í bæklinginn.