Fréttir - 25.11.2008 |

Þetta virðulega samkomuhús hefur bætt við fegurð og auðkenni á fjölsótta götu í Ljubljana í Slóveníu. Sumt fólk utan kirkjunnar hefur skipt um skoðun á kirkjunnu nú þegar það sér að hér er um einlæga trú að ræða.
Nýtt samkomuhús, sem staðsett er á fjölsóttu götuhorni í Ljubljana í Slóveníu, er að hjálpa kirkjunni að verða þekktari í landinu. Virðulega byggingin er traust yfirlýsing um heillavænlega framtíð kirkjunnar í þessu Balkanríki.
Kirkjuþegnar í Balkanríkinu Slóveníu njóta nú skeiðs mikils áhuga og vinskapar við samlanda sína eftir að fyrsta samkomuhúsið í Ljubljana var vígt í september og haldið var opið hús mánuði síðar.
Trúboðar segja að fólk sem þeir komist í kynni við þekki þá vegna hinna mörgu útsendinga fjölmiðla er fjölluðu um nýja samkomuhúsið, sagði Dora Cimerman, almannatengsla fulltrúi kirkjunnar í Slóveníu.
Opið hús var haldið 17. og 18. október og komu 418 gestir, þar á meðal borgarstjórinn og um 30 aðrir leiðtogar frá borginni og samfélaginu sem og 19 starfsmenn fjölmiðla. Um 30 gestir óskuðu eftir að fá trúboðana í heimsókn og enn aðrir vinir kirkuþegna sóttu sakramentissamkomu næsta dag.
Þetta fyrsta samkomuhús í Slóveníu er virðuleg bygging sem endurspeglar staðbundna byggingarlist. Byggingin er staðsett á fjölsóttu götuhorni og er farið að verða þekkt sem auðkenni í borginni, segja leiðtogar.
„Samkomuhúsið er að hjálpa kirkjunni við að koma fram úr móðunni og kemur kirkjan íbúum Ljubljana fyrir sjónir sem einlæg trú,“ sagði systir Cimerman. Fyrir utan kapellu, kennslustofur og skrifstofur þá hýsir byggingin einnig Útrásina fyrir unga fólkið og ættfræðisafn.
Öldungur Eivind Sterri, svæðisvaldhafi sjötíu frá Noregi, vígði bygginguna þann 21. september í lok umdæmisráðstefnu. Einnig voru viðstaddir: David Henry Hill forseti Slóveníu/Króatíu trúboðsins og eiginkona hans Dana; Matjaz Juhart, núverandi umdæmisforseti, Kenneth D. Reber fyrrverandi trúboðsforseti (1991-93) og eiginkona hans Janet ásamt Albin Lotric, fyrsti kirkjuþegninn í Slóveníu og fyrrverandi greinarforseti Ljubljana greinar og fyrrverandi umdæmisforseti ásamt eiginkonu hans Boza.
Vöxtur kirkjunnar hefur verið hægur en jafn síðan fyrstu trúboðarnir komu í mars 1990. Slóvenía lýsti yfir sjálfstæði gagnvart Júgóslavíu um sumarið 1991 eftir spennuhlaðið 10 daga stríð. Nokkrum mánuðum síðar þann 22. desember 1991 var fyrsta greinin skipulögð.
Kirkjan hefur vaxið frá auðmjúkri byrjun sinni, 10 kirkjuþegnum, í yfir 180 kirkjuþegna í Ljubljana og í 380 kirkjuþegna um gjörvallt landið.
„Ég er svo hamingjusamur og heppinn vegna þeirra blíðu blessana sem himneskur faðir veitir,“ sagði umdæmisforsetinn Matjaz Juhart. „Óskir og bænir margar ára hafa verið svaraðar síðan fyrsta grein kirkjunnar var stofnsett í Slóveníu. Ég var á þeim fundi sem gestur að kynna mér kirkjuna. Ég tók skírn um mánuði síðar þann 25. janúar 1992.“