Fréttir - 02.12.2009 |

Málað og þrifið í kringum kirkju. Kirkjuþegnar hjálpa til við lagfæringar á eignum sem skemmdust í óveðrinu og flóðunum á Suður-Indlandi.

Prestdæmishafar frá Hyderabad umdæminu á Indlandi afferma vörubíl sem færir vistir frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Áskorunum varðandi dreifingu á nauðsynjavörum til fórnarlamba fækkaði þegar kirkjuþegnar komu á svæðið.
Októbermánuður á ári hverju færir Suður-Asíu dágóðan skammt af hitabeltisstormum og öðru átaka veðri. Þetta árið var engin undantekning. Mestu flóðin í áratugi lögðu í rúst stóran hluta af Suður-Indlandi, sér í lagi Karnkata og Andhra Pradesh héruðin. Rúmlega 200 manns létust og rúmlega ein milljón íbúa þurfti að hafast tímabundið við í skýlum og neyðarbúðum sem yfirvöld settu upp.
Prestdæmisleiðtogar og kirkjuþegnar á svæðinu veittu aðstoð við að dreifa birgðum frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Fyrstu helgina eftir að draga tók úr óveðrinu skipulagði Prasad Rao Gudey, forseti Hyderabad umdæmisins á Indlandi, kirkjuþegna í umdæminu í hjálparflokka. Hyderabad er í um fjögurra klukkustunda fjarlægð norðan við flóðasvæðið og þurfti því að ferðast langa leið til að komast á hamfarasvæðið.
Þegar kirkjuþegnar voru komnir á leiðarenda, tóku þeir við dreifingu á hjálpargögnum sem kirkjan og nokkur önnur hjálparsamtök höfðu gefið. Ekki hafði tekist að dreifa hjálpargögnunum til hinna þurfandi vegna skipulagsleysis og skorts á ferlum.
Gudey forseti sagði: „Piltar okkar unnu dásamlegt starf við að dreifa matvælum og vatni, sem gefið hafði verið og flutt á svæðið, til hinna þurfandi. Því miður höfðu yfirvöld ekki getu til þess að dreifa því til fórnarlamba. Þúsundir biðu eftir hjálpargögnum og það var ekki fyrr en við komum á svæðið sem dreifingin hófst.
Kirkjuþegnar okkar, sem klæddust vestum sem á stóð „hjálpandi hendur mormóna“ og dreifðu matvælum til allra á skilvirkan hátt, skáru sig úr mannfjöldanum sem hafðist við í búðunum.
Kirkjuþegnarnar frá Hyderabad flokkuðu einnig fatnað sem hafði verið fluttur á svæðið en ekki hafði verið flokkaður. Eftir það var haldið í hina löngu ferð heimleiðis.
Í vikunni þar á eftir voru hreinlætispakkar útbúnir af unglingum og ungu fólki frá Bangalore umdæminu á Indlandi. Um 60 kirkjuþegnar fóru til nokkurra þorpa í norður Karnkata héraði til að afhenda fólki í neyðarbúðum pakkana og veita dagslanga þjónustu.
Ríkisstjórnin á Indlandi lét setja upp rúmlega 200 neyðarbúðir á flóðasvæðunum þegar mest lét. Upp höfðu komið áhyggjur að sjúkdómar myndu breiðast hratt út hjá þeim þúsundum sem neyddust til þess að búa tímabundið í neyðarbúðunum og því voru hreinlætispakkarnir mjög mikilvægur liður í hjálparstarfinu.
Í gegnum LDS Charities stofnunina gaf kirkjan einnig teppi og segldúka sem sárlega vantaði til að útbúa skýli fyrir þá sem misst höfðu heimili sín í flóðunum. Kirkjuþegnar veittu einnig aðstoð við dreifingu á þessum vörum í Andhra Pradesh og Karnakata héruðum.
LDS Charities fylgist með þörfum fórnarlamba á þessu hamfarasvæði og vinnur með ríkisstjórn Indlands og alþjóðadeild Rauða krossins sem og öðrum indverskum hjálparstofnunum og munu þau sinna öðrum þörfum sem komið gætu upp á komandi vikum og mánuðum.