Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 18.10.2008

 

Sérstök ráðstefna

Framgangur stikuráðstefnunnar sýndur á skjá hátt í Marriott Center.

Sem fyrrverandi atvinnuflugmaður í ferðaþjónustu, þekkir Dieter F. Uchtdorf  forseti það hversu nauðsynlegt það er að fylgja steðfestri áætlun til að vera öruggur um stefnuna.  Í ráðgjöf sinni  hinn 7. september til meðlima frá 135 stikum, vitnaði annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu um gildi þess að fylgja innblásinni andlegri stefnu á stundum umbrotasamri ævi hvers manns.

„Ekkert getur sundrað fjölskyldu sem er viljug til að þjóna Drottni og halda boðorð hans,“ sagðu Uchtdorf forseti.  Þúsundir komu saman í Marriott Center við Brigham Young háskólann til að hlusta á Uchtdorf forseta, ásamt Boyd K. Packer forseta Tólfpostulasveitarinnar, öldungi Marlin K.  Jensen af hinum Sjötíu, og systur Ann M. Dibbs, öðrum ráðgjafa í aðalforsætisráði stúlknafélagsins.


Uchtdorf forseti sagði að fyrsta skrefið til að stýra för sinni af öryggi í ölgusjó lífsins væri að hafa gild musterismeðmæli.
 
Margir meðlimir bera CTR-hring sem minnir þá á „choose the right,“ að velja rétt. Þessir kunnuglegu upphafsstafir, bætti hann við, gætu einnig staðið fyrir „current temple recommend,“ gild musterismeðmæli.  Kirkjuleiðtoginn ráðlagði þeim sem hafa ekki gild musterismeðmæli að vinna í nánu samstarfi við staðarleiðtoga sína.  Þeir eru þarna til að hjálpa, sagði hann.  Hann hvatti einnig ungt fólk til að hafa alltaf á sér eintak af bæklingnum „Til styrktar æskunni,“ kallaði hann „áreiðanlegan mælikvarða“ á staðfast líf í fagnaðarerindinu.

Annað skrefið er að nema orð Guðs daglega.


Öryggi er að finna með lestri og ígrundun ritninganna, ásamt innblásnum orðum síðari daga spámanna Drottins, sagði Uchtdorf forseti.

Hið þriðja, tala við föðurinn á himnum daglega.

Kirkjumeðlimir hvarvetna lifa á tíma þar sem dagleg bæn er nauðsynleg til öruggs lífs.  Þeir sem búa í Utah sýslu og Wasatch sýslu eru þar engin undantekning.  Uchtdorf forseti vitnaði einnig um spámannlega köllun Thomas S. Monson  forseta, „manns mikillar visku, heiðarleika og næmni fyrir andanum.“  Uchtdorf forseti talaði um þann hæfileika forseta kirkjunnar að leiða alheimskirkju án þess að missa sjónir á „þann einstaka.“ Eitthvað um 4.400 trúboðar frá Utah stikunum sem þátt tóku í ráðstefnunni  hinn 7. september þjóna sem fastatrúboðar.  „En það eru miklu fleiri frá stikum ykkar sem gætu þjónað,“ sagði Uchtdorf forseti, fyrstu kynslóðar meðlimur sem nýtur góðs af trúboðsverkinu. Hann hvatti verðandi trúboða til að skipuleggja viturlega og svara líf-breytandi köllun til að starfa í föstu starfi í víngarði Drottins.  „Búið ykkur undir að þjóna Drottni og sparið peninga ykkar til að fara í trúboð.“

Kirkjan er stofnsett og sterk í Utah sýslu og Wasatch sýslu. Samt sem áður, bætti hann við, eru tækifæri til að deila fagnaðarerindinu í samfélaginu.  „Það eru margir sem búa hér sem kynna þarf boðskap okkar.“  Uchtdorf forseti sagði að meðlimirnir verði einnig að spyrja sjálfa sig hvað þeir séu að gera til að styrkja sína eigin trú – og trú fjölskyldna sinna.  Hann talaði um trúarstyrkjandi kraft sem felst í að koma reglulega saman með sammeðlimum, hlusta á andann og setja viturleg markmið og ná þeim.   „Margar fjölskyldur hafa fjárhagsleg og stundleg markmið, en engin andleg markmið.“  Minnist þess, bætti hann við, að boðorð Drottins eru ekki takmarkanir eða hindranir, heldur flugáætlun fyrir lífið sem býður upp á örugga og beina leið til himnesks föður. 

Kraftur veitist með blessunum Drottins

Boyd K. Packer forseti sagði að andstæðingurinn sé virkari, og nái að sumu leyti, meiri árangri dag hvern.  Samt þurfa trúfastir meðlimir engu að hvíða.  Þeir hljóta kraft frá blessunum Drottins og gjöf heilags anda. „Verið ekki hrædd,“ sagði hann.  „Otti er andstæða trúar.  Hafið trú, þetta verður allt í lagi.“

Hinn þaulreyndi postuli sagði að ekki væri lengur mögulegt fyrir meðlimi Tólfpostulasveitar að taka með reglubundnum hætti þátt í einstökum stikuráðstefnum vegna áframhaldandi vaxtar kirkjunnar.  Samt sem áður, gerir tæknin aðalvaldhöfum kirkjunnar mögulegt að ná til meðlima með því að nota gerfihnattaútsendingar og aðrar samskiptaleiðir.  Þótt maður sé stundum líkamlega aðskildir frá áheyrendum, „hefur mér lærst að sjá þá í huga mínum,“ sagði hann.  Hinn bindandi, samskiptaháttur andans finnst enn og unnt er að njóta hans.

Packer foseti greindi frá því að kirkjan heldur áfram fram á við.  „Við stöndum ykkur nærri og við höfum beðið fyrir ykkur.“ Þrátt fyrir mikinn vöxt, bætti hann við, er kirkjan í rauninni enn af sömu stærð eins og alltaf áður vegna þess að hún er enn byggð á fjölskyldunni. Packer forseti talaði einnig um sín eigin tengsl við Utah dalinn og greindi frá ríkulegri sögu svæðisins, þar á meðal reynslu 19. aldar veiði- og verslunarmannsins Etienne Provost (sem Provo er kennd við), og endanlegu landnámi svæðisins af hendi frumherja mormóna. 

Sýnið kærleik og samúð


Í inngangsávarpi sínu til meðlima frá 135 stikum í Utah og Wasatch sýslum, lagði öldungur Marlin K.  Jensen af hinum Sjötíu, áherslu á mikilvægi þess að sýna kærleik og kristilega samúð þeim sem hægt væri að kalla „öðruvísi“ eða þeim sem finnst þeir ekki passa inn í ramma kirkjunnar.

Hann talaði um eldri bróður sinn, Gary, sem var með fæðingargalla sem takmarkaði andlega greind hans.  Stundum varð Gary fyrir stríðni, jafnvel af börnum sem tilheyrðu fjölskyldum meðlima.  Á marga meðlimi, líkt og Gary, er hægt að líta sem „öðruvísi.“ Sumir hafa áhyggjur af að passa ekki inn í ramma kirkjunnar vegna fjölskylduaðstæðna svo sem skilnaðar, þunglyndis eð átröskunar.  Aðrir kunna að tilheyra minnihluta kynþætti, vera foreldri barns á villigötum, eða, er til vill, að þeir fást við samkynhneigðar vandamál.
Lausnin er ekki að kasta frá sér rammanum, sagði öldungur Jensen. Það var einmitt Kristur sem kenndi að fylgjendur hans ættu að vera fullkomnir eins og hann er.  En frelsarinn sýndi einnig mikinn kærleik og samúð gagnvart öðrum.  Hann leitaði hins týnda sauðar.  Með einum eða öðrum hætti, er hver og einn meðlimur týndur sauður.  „Við erum öll öðruvísi,“ sagði öldungur Jensen. Hann ráðlagði meðlimum að líkjast Kristi með því að ganga saman fram á veg og sýna vinsemd. „Ég efa stórlega að í himneska ríkinu verði nokkur sem ekki er vinsamlegur,“ bætti hann við. 
 
‘Skuldbindið ykkur því sem er raunverulegt’

Systir Ann M. Dibb, annar ráðgjafi í aðalforsætisráði stúlknafélagsins, sagði það mikilvægt að meðlimir greini hvað er „raunverulegt“ í lífinu frá því sem er óekta.  Allt frá upphafi hefur það verið markmið Satans að blekkja börn Guðs með því sem er óekta í stað hins sanna frá Guði.  Skeytingarlaus efnishyggja og óheft eftirsókn eftir ánægju eru dæmi um slíkar blekkingar.  „Skuldbindið ykkur við það sem er raunverulegt,“ sagði systir Dibb. „Raunverulegar“ athafnir fela í sér ritningarnám, bæn, greiðslu tíundar, þjóna öðrum og fylgja leiðtogum.

Systir Dibb sagði að sér væri mikils virði hin „raunverulega“ ást sem er í hjónabandi foreldra hennar, Thomas S. Monson  og systur Frances J.  Monson. Monson-hjónin nálgast nú 60. brúðkaupsafmæli sitt, og ást þeirra er sterk, sagði hún. Hún sagði frá nýlegri heimsókn sinni á æskuheimilið.  Þar sá hún föður sinn – heimkominn eftir langan vinnudag – strjúka mjúklega hendur móður hennar og segja: „Frances, þú hefur þær allra fallegustu hendur.“ Systir Dibb sagði að hún fyndi til friðar, vitandi að heilagt samband foreldra sinna væri „raunverulegt.“

UNDIRBÚAST FYRIR TRÚBOÐ

Verðandi trúboðar ættu að skipuleggja viturlega til að svara hinu líf-breytandi kalli til að starfa í fullu starfi í víngarði Drottins. 

RÁÐGJÖF FYRIR FJÖLSKYLDUR

Meðlimir verða einnig að spyrja sjálfa sig hvað þeir eru að gera til að styrkja eigin trú – og trú fjölskyldu sinnar. 

ÞURFA EKKI AÐ ÓTTAST

Trúfastir meðlimir þurfa engu að kvíða.  Þeir hljóta kraft frá blessunum Drottins og gjöf heilags anda.

KIRKJAN ER ÁFRAM BYGGÐ Á FJÖLSKYLDUNNI

Þrátt fyrir mikinn vöxt, er kirkjan í rauninni enn af sömu stærð eins og alltaf áður vegna þess að hún er enn byggð á fjölskyldunni.