Fréttir - 30.12.2010 |

Avni Spahiu, vinstri, sendiherra Kosovo í Bandaríkjunum, og dóttir hans, VJosa, fengu vattteppi að gjöf í Mannúðarmiðstöð SDH frá öldungi Gilbert A. Naisbitt, trúboða miðstöðvarinnar. Spahia sendiherra var flóttamaður í Kosovo á tíma þjóðernishreinsunarinnar og naut aðstoðar hjálparstarfs kirkjunnar, og tók meðal annars á móti vattteppum. Hann varð sendiherra árið 2008.
Avni Spahiu, sem eitt sinn var kosovískur flóttamaður en nú sendiherra í Bandaríkjunum, færði aðalvaldhöfum þakkir frá þjóð sinni, 16. nóvember síðastliðinn, fyrir hjálparstarf kirkjunnar sem veitt var á hinum myrku tímum fyrir um áratug.
Þakkirnar færði Avni Spahia meðan hann var gestafyrirlesari í Utah Valley háskólanum í Orem, Utah.
Ross "Rusty" Butler, varaforseti UVU háskólans, er hýsti herra Spahiu, sagði frá því sem gerðist.
"Á tíunda áratugnum," skrifaði hann í tölvupósti, "varð blaðamaður og útgefandi neðanjarðarblaðs í Kosovo, Avni Spahiu, flóttamaður, vegna þjóðernishreinsunar júgoslavneskra hersveita, sem að lokum myrtu yfir 1 milljón Kosovo Albana, samkvæmt tölulegum upplýsingum Sameinuðu þjóðanna.
Hersveitir Nato réðust gegn her Milosevics úr lofti og á jörðu í heiftarlegu stríði, þar til júgoslavneski einræðisherrann var tekinn höndum í júní árið 1999. Tugir þúsunda kosovískra Albana voru drepnir og nærri tvö þúsund lík fundust í fjöldagröfum.
Þjáningar fólksins voru yfirþyrmandi og fjölmargar hjálpastofnanir lögðu sitt af mörkum. Ein af þeim hjálparstofnunum sem lögðu hvað mest af mörkum var Mannúðarstofnun SDH, sem kallaði eftir vattteppum til að gefa flóttamönnum áður en veturinn skylli á.
Niðurstaðan var sú að hundruð þúsunda vattteppa bárust langt að. Herra Spahia var einn þeirra sem naut góðs af þessu verkefni SDH. Árið 2008 varð hann fyrsti sendiherrann í Bandaríkjunum fyrir Kosovo, yngstu þjóð heimsins.
Hann hélt fyrirlestra í háskólanum 14. til 17. nóvember, í fyrstu heimsókn sinni til Utah. Þegar hann var í Utah heimsótti hann höfuðstöðvar kirkjunnar og hitti þar öldung Russell M. Nelson, í Tólfpostulasveitinni, sem tveimur mánuðum áður hafði helgað Kosovo til boðunar fagnaðarerindisins.
Fyrir hönd íbúa Kosovo, færði Spahia sendiherra öldungi Nelson innilegar þakkir fyrir örlæti kirkjumeðlima, sem hann og þjóð hans hafði notið," skrifaði háskólastjórnandinn.
"Stuttu síðar, meðan á heimsókn sendiherrans stóð í Mannúðarstofnuninni, fengu hann og dóttir hans annað vattteppi að gjöf, sem þannig varð til að ljúka hringnum."