Fréttir - 29.09.2008 |

Robert S. Beecroft sver eið sem sendiherra Bandaríkjanna í Jórdaníu þann 17. júlí. Condoleezza Rice utanríkisráðherra les eiðinn. Eiginkona Roberts, Anne er önnur frá hægri og dóttirin Blythe heldur á Biblíunni við athöfnina.
Hinn nýji sendiherra Bandaríkjanna í Jórdaníu, Robert Stephen Beecroft sem tilheyrir Kentlands deild í Washington D.C. stiku, getur ekki beðið eftir að komast aftur til landsins þar sem hann sat eitt sinn uppi á þaki og dáðist að sólsetrinu við Dauðahafið.
Skipan hans er hápunktur á starfsferli sem hefur „snert mörg líf“ segir Condoleezza Rice utanríkisráðherra, sem tók eið af fyrrverandi aðstoðarmanni sínum í athöfn utanríkisráðuneytisins í Washington D.C. sem fór fram 17. júlí síðastliðinn. Hún lofaði heilindi og skuldbindingu hans og lofaði að Robert og eiginkona hans, Anne, myndu halda áfram að fylla það fólk sem þau þjónuðu andagift.
Rice benti á djúp tengsl milli Bandaríkjanna og Jórdaníu og lagði áherslu á að hin mikla þekking nýja sendiherrans á Mið-Austurlöndum ásamt hinni miklu væntumþykju hans og drífandi anda gerði hann hæfann fyrir þetta verkefni.
Walid Hadid, sendiherra Jórdaníu í Washington tók á móti nýja sendiherranum.
Systir Beecroft fylgdist með eiginmanni sínum sverja eiðinn á Biblíu sem hún hafði gefið honum á brúðkaupsdegi þeirra árið 1983. Blythe dóttir þeirra sem er 18 ára og á fyrsta ári í Brigham Young University hélt á Biblíunni meðan systkini hennar fylgdust með en þau eru Warren 16 ára, Sterling 14 ára og Grace 11 ára.
Bróðir Beecroft þjónaði á trúboði í Venesúela og útskrifaðist frá Brigham Young University (1983) og úr lögfræði frá University of California í Berkeley (1988). Hann er mjög virtur í diplómatískum, faglegum, and SDH kirkju samfélögum fyrir heilindi, greind, hnyttni og auðmýkt.
Robert hóf störf hjá utanríkisþjónustunni árið 1994 eftir að hafa unnið sem lögfræðingur í nokkur ár í San Francisco. „Ég man eftir reynslu minni frá trúboði mínu og þegar pabbi tók okkur bræðurna á brimbretti í Mexíkó. Mig langaði bara að sjá og gera meira, “ sagði hann.
Robert var í Jórdaníu fyrir hluta af þjálfun sinni og hefur þjónað í Damaskus, Sýrlandi, Riyadh, Sádí Arabíu sem og á skrifstofu utanríkisráðuneytisins sem hefur umsjón með Asuturlönd nær. Á síðustu arum hefur hann verið sérstakur aðstoðarmaður aðstoðarutanríkisráðherra Richard Armitage og aðstoðar framkvæmdastjóri Colin Powell utanríkisráðherra sem var fyrirrennari Rice. Hann hefur hlotið mörg virðingarverð verðlaun innan utanríkisráðuneytisins.
„Það er mikill heiður fyrir mig að snúa aftur til Jórdaníu þar sem markvert fólk býr, “ segir bróðir Beecroft og minnist þess að hann lærði að ná fullu valid á arabísku í Jórdaníu.
Samkvæmt systur Beecroft þá er einn af styrkleikum Roberts trú hans á þá kenningu í Mormónsbók að „allir eru jafnir fyrir Guði“ (2. Nefí 26:33) og geta hans til að „koma fram við hverja persónu á hvaða plani sem er með jafnmikilli sæmd og virðingu. “ Henni hlakkar einnig til nýja verkefnisins sem hún lítur á sem tækifæri fyrir fjölskylduna til að vera meira saman.
„Við munum sameiginlega geta þjónað landi okkar frá sama stað, “ útskýrir hún. Þetta er mikilsverð breyting fyrir fjölskyldu sem oft á tíðum hefur verið sundurslitin vegna kröfuharðra ferðalaga bróður Beecroft. Hins vegar eru þau sammála um að það sem hefur haldið þeim uppi er vitnisburður þeirra um kirkjuna ásamt stuðningi meðlima sem hafa ætíð verið tilbúnir að veita aðstoð.
„Konan mín á heiður skilið en ég veit einnig að ég hef getað reitt mig á kirkjudeild mína og vini til að sinna fjölskyldunni þegar ég hef verið fjarverandi, “ segir bróðir Beecroft. „ Ég reyni eins oft og ég get að mæta á íþróttaviðburði barna minna en þegar ég er fjarverandi er alltaf einhver sem hjálpar til. Þau eru í góðum höndum, sér í lagi höfum við góða heimiliskennara og skáta leiðtoga, “ bætir hann við.
Þegar hann er heima, kennir hann grípandi lexíur á prestdæmisfundum segir biskup hans, Scott Knell.
„Þetta er maður sem hefur ferðast um allan heim og orðið vitni að feikilegri fátækt og ríkidæmi sem og nútíma átökum. Hann nýtur sér það sem hann hefur lært til að kenna grundvallarreglur úr ritningunum sem eiga við okkar tíma.
Ásamt því að hafa góða andlega undirstöðu er Beecroft fjölskyldan þekkt fyrir aðlögunarhæfni, gott skopskyn, sjá hluti í samhengi og hafa virðingu fyrir dugnaði. Þau þrælnota hvert augnablik.
„Ef pabbi er heima þá höfum við stundum Fjölskyldukvöld á sunnudögum,“ segir Warren og segir faðir sinn vera „ frábæran kokk “ sem finnst gaman að elda mat. „ Á slíkum stundum njótum við þess að vera fjölskylda og ná að vinna upp glataðar stundir.“
Sterling, sem finnst faðir sinn vera „bráðskemmtilegur“, er spenntur að fá tækifæri til að kynnast annarri menningu. Bróðir Beecroft telur að þetta tækifæri muni hjálpa börnum sínum að auka skilning sinn bæði á umheiminum sem og sjálfum sér:
"Ung að aldri hafa börn mín séð hvernig fólk í öðrum löndum býr sem kennir þeim umburðarlyndi, virðingu og þakklæti á eigin blessunum. Þess fyrir utan fáum við tækifæri til að gera öðruvísi hluti eins og leika okkur í sandöldum, horfa á úlfalda hjarðir eða leita að steingervingum á fornum sjávarbotnum.“
En það er jafn mikilvægt fyrir bróður Beecroft að börn hans læri að tileinka sér og fá gildismat gangvart því tækifæri sem erfið vinna felur í sér.
Hann undirstrikar þó: „Ég lifi eftir spakmælinu að maður eigi að vinna eins og allt velti á manni sjálfum og biðja eins og allt velti á Drottni.“
Bróðir Beecroft kappkostar við að vera góður erindreki eigin trúar með því að þjóna með skuldbindingu og hreysti í starfi sem tengir hann við fólk af ólíkum trúarbrögðum og forsögu. Endurkoma hans til fólksins sem er svo „hlýtt, býður manni velkomið og er mjög gestrisið“ þýðir að hann getur aftur farið að njóta sólsetursins uppi á þaki.