Fréttir - 01.03.2010 |
Það voru um 40 menn frá Pesega 5. deild í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sem söfnuðust saman við Saleapaga, Lepa á Samóaeyjum laugardaginn 23. janúar síðastliðinn til þess að byggja heimili fyrir Fa’atoia Vi’iga og fjölskyldu.
Fjölskyldan hafði misst allar veraldlegar eigur sínar, þar á meðal heimili sitt, í flóðbylgjunni sem skall á hinn 29. september í fyrra. Þess fyrir utan týndi eitt barna þeirra lífi í hamförunum.
Vi’iga fjölskyldan er ein af 40 fjölskyldum sem Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu vinnur við að byggja og veita heimili fyrir. Dagurinn byrjaði snemma fyrir þennan hóp öldunga og hápresta því þeir voru mættir kl. 4 um morguninn til að hefja ferð sína frá Pesega til Saleapaga.
Þeir skiptu sér upp í hópa þegar á áfangastað var komið, sem fagmenn sáu um að verkstýra og innan skamms var hafist handa.
Unnið var látlaust allan daginn við að slétta gólf, setja upp stólpa, blanda sementi og setja bárujárn á þakið. Eina hvíldin sem fékkst var stuttur hádegismatur.
Þeir byrjuðu einnig á að útbúa baðherbergið en náðu ekki að ljúka því verki vegna skorts á byggingarefni. Því þurfti að skilja baðherbergið eftir hálf klárað.
Verkefni sem að öllu jöfnu tekur um viku eða lengur að vinna kláraðist á einungis einum degi, enda voru sjálfboðaliðarnir, sem margir hverjir eru komnir á eftirlaun, áhugasamir um verkið.
Um 30 af þeim 40 heimilum sem kirkjan hefur áformað að byggja vegna flóðbylgjunnar er lokið eða á byggingarstigi. Mörg þessara 40 heimila eru byggð af sjálfboðaliðum sem koma úr mismunandi deildum og stikum hvarvetna að á Samóaeyjum, rétt eins og þessi áhugasami hópur.
Þrátt fyrir þreytta líkama og beinverki sem afleiðing af erfiðum en kærleiksríkum vinnudegi fannst hópnum þeir hafa notið blessana. Blessana sem koma þegar maður gefur af sjálfum sér.
Þegar þeir voru spurðir hvort þeir myndu gera þetta aftur svöruðu margir hiklaust „já.“ Aðrir gátu það ekki vegna annarra skuldbindinga en sögðust ekki vilja missa af því að hjálpa þeim nauðstöddu.
Vi’iga fjölskyldan tjáði einlægt þakklæti sitt til kirkjunnar og þessa 40 manna hóps prestdæmishafa fyrir að færa sér nýtt heimili. Fjölskyldan flutti inn í nýja heimilið sitt tveimur dögum síðar.