Fréttir - 19.07.2009 |

Anna og Mario Manzella, lengst til hægri, gengu í kirkjuna árið 1970. Á myndinni eru einnig dóttir þeirra Angela, tendasonur Aldo Ariante og börn þeirra sem eru 9 til 13 ára gömul. Allir þessir sjö meðlimir sækja Napólí greinina í Ítalíu.

Angela Ariante var innsigluð foreldrum sínum, Mario og Anna Manzella, í musterinu í Bern, Sviss, árið 1976. Hún les hér ritningarnar með 13 ára gamalli dóttur sinni, Alexa.
Mario Manzella var ungur eiginmaður og faðir í leitað að svörum.
En það var ekki fyrr en hann hóf að biðja til Guðs, segir hann, spyrjandi hvers vegna hann fann ekki fyrir neinu er hann sótti kirkjusamkomur í kirkjunni sem hann ólst upp í, að hann tók eftir nafnspjöldunum sem ungu mennirnir, tíðir gestir í bakaríinu hans, voru með á sér. „Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu,“ las hann.
Hann bauð öldungunum heim til sín og eiginkona hans, Anna, tók einnig þátt í lexíunum. „Um leið og þeir opnuðu ritningarnar vissi ég að það sem þeir voru að kenna var satt og rétt,“ rifjar systir Manzella upp nú 39 árum síðar.
Hún skírðist þann 4. apríl 1970, í Napólí, þar sem hún hefur búið allt sitt líf. Eiginmaður hennar fylgdi í fótspor hennar stuttu síðar og árið 1976 ferðuðust þau til musterisins í Bern, Sviss og innsigluðust fjórum börnum sínum.
Fyrir utan að hafa verið meðlimir kirkjunnar á Ítalíu í langan tíma eru Manzella hjónin ef til vill með langlífasta hjónabandið þar á bæ. Napólí greinin hélt nýlega veislu fyrir þau á gullbrúðkaups afmæli þeirra.
Bróður og systur Manzella er að finna á hverjum sunnudegi á samkomum sem haldnar eru á fyrstu hæð íbúðarbyggingar mitt á meðal mjórra og hlykkjóttra gatna Napólí. Svalir sem staðsettar eru að bakatil í fjölnota kapellunni býður upp á glæsilegt útsýni þar sem sjá má snæviþakta Vesuvius fjallið í fjarska.
Manzella fjölskyldan er meðal 22.000 Síðari daga heilagra sem búa hvarvetna á Ítalíu. Anna og Mario gengu í kirkjuna einungis fjórum árum eftir að fyrsta ítalska trúboðið var sett á fót í Flórens, norður af Napólí. Kirkjan var formlega viðurkennd af ítölskum stjórnvöldum árið 1993. Í dag eru þrjú trúboð á Ítalíu.
Systir Manzella segir: „Tilgang lífsins er að finna í fjölskyldunni,“ og bætir við að fagnaðarerindið hafi fært henni „mikla gleði.“ Í fjölskyldu þeirra eru nú barnabörn - þriðja kynslóðin sem elst upp í fagnaðarerindinu.
Tvær af dætrum þeirra sækja Napólí greinina með Manzella hjónunum. Angela, dóttir þeirra, sem kynntist eiginmanni sínum, Aldo Ariante, fjórum árum eftir skírn hans, sækir fundi með eiginmanni sínum og þremur börnum sem eru á aldrinum 9 til 13 ára gömul. Ariante hjónin giftust í musterinu í Bern, Sviss árið 1995.
Öll fjölskyldan er spennt yfir tilvonandi musteri sem staðsett verður nærri þeim. Ferð í Rómar musterið, sem var tilkynnt í október 2008, mun krefjast mun styttri og ódýrari ferðalags sem gerir meðlimum kleift að sækja musterið oftar heim.
Að hafa fagnaðarerindið í lífi þeirra finnst systur Ariante vera „tækifæri til að innsiglast sem fjölskylda og hljóta öryggi yfir þeirri vitneskju að maður elur börn sín eftir réttum reglum.“
Dóttir hennar, Alexa sem er 13 ára gömul, segir að henni finnst hún vera öðruvísi en vinir sínir sem ekki eru meðlimir kirkjunnar. Samt er hún glöð yfir því að vera öðruvísi. „Mér finnst það vera blessun að geta talað frjálslega við foreldra mína og afa og ömmu,“ segir hún.
Í ritningunum hennar, sem eru mikið merktar, með mynd af Salt Lakte musterinu á framhliðinni, er uppáhaldsversið hennar að finna, í Kenningum og sáttmálum 68:6:
„Verið þess vegna vonglaðir og óttist ei, því að ég, Drottinn, er með yður...“ Í þessu loforði finnur Alexa fyrir huggun.
„Þegar okkur finnst við vera ein,“ segir hún, „þá er Drottinn með okkur. Alltaf þegar ég er fjarri foreldrum mínum eða ástvinum, veit ég að ég er ekki ein og mér finnst ég vera örugg.“
Afi hennar, Mario Manzella, trúir mjög fastlega á kraft bænarinnar og áhrifs heilags anda. Afleiðing bæna hans fyrir 39 árum síðan er að finna í rúmlega 20 meðlimum kirkjunnar á Ítalíu sem allir eru afkomendur hans.