Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 26.01.2009

 

Prófessor í lögum við BYU heiðraður vegna trúfrelsis

W. Cole Durham yngri lagaprófessorinn

Brigham Young háskóla lagaprófessorinn W. Cole Durham yngri mun taka við  2009 International First Freedom Award fyrir framúrskarandi störf við eflingu trúfrelsis. First Freedom Center stofnunin mun veita Durham viðurkenninguna hinn 15. janúar í Richmond, Va., í tengslum við National Religious Freedom Day.

Á hverju ári veitir First Freedom Center viðurkenningu til Virginíubúa, innlends og alþjóðlegs aðila fyrir störf að eflingu samviskufrelsis og grundvallar mannréttinda fyrir fólk af öllum trúarbrögðum, hefðum og menningu.

„Það gleður okkur mjög að geta heiðrað Cole með þessari alþjóðlegu viðurkenningu,“ sagði Isabelle Kinnard, varaforseti menningarmála við First Freedom Center. „Cole er sannarlega í fremstu víglínu meðal hóps virtra alþjóðasinna sem fordæmi við verndun alþjóðlegs trúfrelsis. Hann hefur hjálpað ríkjum út um heiminn við að gera trúfrelsi að stjórnarskrárvernduðum réttindum.“

Árið 2009 verður 15. árið sem First Freedom Center hefur staðið fyrir árlegri First Freedom viðurkenningu. Meðal þeirra sem áður hafa hlotið viðurkenningu eru Madeleine K. Albright, fyrrum utanríkisráðherra BNA; Garry Wills, rithöfundur og Pulitzer verðlaunahafi; fyrrum forsætisráðherra Stóra Bretlands, Tony Blair; Vaclav Havel, fyrrum forseti Tékklands; M. Farooq Kathwari, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri, Ethan Allen, Inc., og stofnandi Kashmir Study Group; Abdelfattah Amor, fyrrum sérstakur talsmaður Sameinuðu þjóðanna varðandi trúfrelsi og átrúnað; Richard C. Holbrooke, aðalsamningamaður Dayton Peace Accords og ambassador BNA hjá Sameinuðu þjóðunum.

„Mér er það heiður að meðtaka þessa viðurkenningu, vegna þess hversu kunnugur ég er frábæru starfi sem First Freedom Center vinnur,“ sagði Durham þegar honum var sagt frá viðurkenningunni. „Sérstaklega verð ég auðmjúkur að taka við þessari viðurkenningu í ljósi þess hverjir hafa verið heiðraðir á þennan hátt í fortíðinni.“

Durham er Susa Young Gates háskólaprófessor í lögum og stjórnandi International Center for Law and Religion Studies við BYU's J. Reuben lagaskólann. Hann útskrifaðist frá Harvard College (A.B. 1972) og lagadeild Harvard háskólans (J.D. 1975).

Hann hefur staðið sig með prýði allar götur síðan hann kom í kennaralið lagaskóla BYU 1976 sem fræðimaður um trúfrelsi og samanburðarlögfræði. Á árinu 2000 var hann útnefndur stjórnandi BYU International Center for Law and Religion Studies.

Durham hefur verið gestaprófessor við Gutenberg háskólann í Mains, Þýskalandi, og við háskólann í Vín, og síðan 1994 hefur hann einnig verið heimsóknar prófessor í lögum við Mið-Evrópu háskólann í Búdapest.

Hann veitir ríkisstjórnum út um heiminn ráðgjöf varðandi lög sem fjalla um trúfrelsi og trúarleg samtök, sérstaklega við að þróa lagaramma fyrir stofnanir samfélags sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni. Hann hefur verið virkur í að veita ráð varðandi lög um trúfrelsi og trúarsamfélög í mörgum ríkjum, sérstaklega í Mið-Evrópu.

Durham er ritstjóri, hefur lagt til efni í og er höfundur margra bóka og greina með lagaritdómum í greinum sem fjalla um trúfrelsi, þar á meðal „Religious Liberty in Western Thought“ (1996, Scholars Press), „Law and Religion in Post-Communist Europe“ (2003, David Brown Book Company), „Facilitating Freedom of Religion or Belief: A Deskbook“ (2004, Brill Academic Publishers) og „Religious Organizations in the United States: A Study of Identity, Liberty, and the Law“ (2006, Carolina Academic Press).