Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 02.07.2008

 

Postuli segir þá þurfa að starfa saman sem trúa á Guð

Hin tíu mánaða gamla Mariama þyngdist um næstum eitt kíló á fyrstu vikunni eftir að hún tók að nærast á ATMIT, sem er sérstök fæða ætluð vannærðum börnum, er líknarstofnanir kaþólskukirkjunnar og mormónakirkjunnar sjá þeim fyrir.

Háttsettur leiðtogi Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sagði nýverið við Mike Schneider á sjónvarpsstöðinni Bloomberg að „dásamlegt samband ætti að ríkja milli fólks af öllum trúarbrögðum.” 

Öldungur M. Russell Ballard, í Tólfpostulasveitinni, sagði að þótt mormónar og aðrir séu ekki að öllu leyti sammála hvað varðar trúarkenningar ættu þeir sem trúa á Guð að taka höndum saman mannkyni öllu til góðs.  „Við erum öll synir og dætur Guðs og öll ættum við að hafa það viðhorf að segja: „Við skulum starfa saman við að leysa einhver þeirra miklu vandamála sem ég tel allar þjóðir standa frammi fyrir,“ sagði öldungur Ballard.  Upphaflega var viðtalið sent út á Bloomberg sjónvarpsstöðinni síðastliðinn mánuð, en er nú sent út nokkrum sínnum í viku sjónvarpsstöð Brighams Young háskólans.

Samstarf við aðra trúarhópa er ekki nýtt af nálinni hjá mormónum. Þrátt fyrir erfiðleika kirkjunnar á fyrstu árum hennar, er misskilningur og ofsóknir urðu til þess að leiðtogarnir Joseph Smith og Brigham Young hófu landnám í samfélögum í Ohio, Missouri, Illinois og síðan í fjöllunum í vesturhluta Bandaríkjanna, sannar sagan að mormónar hafi veitt öðrum hjálparhönd, af hvaða trú sem þeir voru.

Árið 1879 hugðist faðir Lawrence Scanlon, sem var kaþólskur prestur yfir sókn í suðurhluta Utah, hafa samkomu fyrir sóknarbörn sín á St. George svæðinu, en hafði ekki til þess húsnæði. Leiðtogar mormóna í bænum buðust til að lána samkomuhús sitt undir kaþólska messu og sáu til þess að kirkjukór þeirra lærði að syngja hinn latínska texta. Mormónar fylltu svo þau sæti sem ekki voru setin til að sýna stuðning í verki. Eftir því sem kirkjan hefur vaxið að meðlimafjölda — frá sex meðlimum í upphafi stofnunar hennar árið 1830, í yfir þrettán milljónir í dag — hefur henni einnig vaxið styrkur og geta til að láta meira að sér kveða. Á þessum tíma rekur Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu umfangsmikið hjálpar- og líknarstarf um heim allan. Mikilvægur þáttur í því starfi er hið vaxandi samstarf sem kirkjan á við alþjóðleg líknarfélög annarra trúarbragða. Slíku samstarfi er ætlað að bæta viðbrögð við náttúruhörmungum, svo sem flóðbylgjum, flóðum og jarðskjálftum og öðru álíka. Kirkjan hefur starfað með kaþólskum líknarfélögum að fjölmörgum verkefnum. Fyrr á þessu lögðu Síðari daga heilagir kaþólsku líknarfélagi lið með gjöfum til styrktar tugum þúsunda Kenýabúum eftir ofbeldisöldu að loknum kosningum þar í landi. „Samstarfið milli Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og kaþólskra líknarfélaga á sér tuttugu ára sögu,“ sagði Ken Hackett forseti CRS árið 2005 á vefsíðu ReliefWeb.

„Í hinni miklu hungurssneyð sem upp kom í Eþíópíu á miðjum áttunda áratugnum, var kirkja SDH bæði fús og gjafmild í samstarfi sínu við hin kaþólsku líknarfélög. Allt frá þeim tíma hafa böndin þar á milli styrkst og leitt til annars samstarfs í Rússlandi, Austutlöndum fjær, á öðrum landssvæðum í Afríku og í Austur-Evrópu.“ Hvað mormóna varðar þá hafa verkefni lík þessum bæði með þarfir fólks að gera og hagkvæmni. „Þau snúast um neyð fólks,“ sagði Garry Flake, framkvæmdastjóri neyðarhjálparstarfs kirkjunnar, „og við eigum samstarf við samtök sem eru álíka að styrk og við sjálf.“ Að sögn Flakes á kirkjan þegar í samstarfi við alþjóðleg hjálparstamtök meþótista (UMCOR) við að sjá Kenýabúum fyrir um 400.000 tonnum af hjálpargögnum, og þar á meðal ATMIT fæðupökkum, hjálparpakka fyrir ungabörn og hjúkrunarpakka. Slík gögn eru nauðsynleg vegna stjórmmálaástands og þúsunda flóttafólks, sem og vegna veðurskilyrða þar í landi. Gámar eru á leiðinni og er þeirra vænst í Kenýa innan einnar viku eða tveggja. Sjálfboðaliðar, sem eru Síðari daga heilagra trúboðshjón, munu stafa með UMCOR við dreifingu birgðanna. 

„Við völdum að starfa með UMCOR vegna þess að starf þess er öflugt í Kenýa,“ sagði Flake. „UMCOR starfar í yfir 80 löndum um heim allan og leggur áherslu á hjálparstarf eftir náttúruhamfarir, sem samfélög eiga erfitt með að takast á við einsömul.“  Auk þess að bregðast við neyð heimsins, eiga mormónar oft samstarf við einstök samfélög til að bæta eitthvað tiltekið ástand. Þegar matvælastöðin í Huston, Texas, var til að mynda uppiskroppa með hnetusmjörbirgðir bað trúfélagaráðið, „Faiths Together,“ matvælaverksmiðju mormóna um að útvega þeim birgðir. Sylvia Campbell í Woodlands Community í Presbyterian kirkjunni útvegaði sjálfboðaliða úr heimasöfnuði sínum. „Við verðum að starfa saman,“ sagði Campbell, „þegar trúfélög starfa saman kynnist fólk innbyrðis og það rífur niður múra. Samstaf bætir einstaklinginn og eykur framlag hans.“