Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 09.09.2008

 

Opið hús – Stjórnsýsluskrifstofa kirkjunnar í Evrópu, opnuð í Frankfurt

Flestir sem koma til Frankfurt am Main hafa mestan áhuga á verðbréfum og hlutabréfum, tengiflugi og fótbolta. En um 450.000 kristnir um alla Evrópu leita sér andlegrar leiðsagnar og hjálpar í þessari stórborg við ána Main. Í byrjun ágúst tók forsætisráð kirkjunnar, með höfuðstöðvar í Frankfurt, við þeirri ábyrgð sem stjórnsýsluskrifstofur tveggja svæða sinntu áður í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu (mormónar).

Laugardaginn 13. september 2008 verður hin nýja stjórnsýsluskrifstofa kirkjunnar opin almenningi í fyrsta sinn. Meðan opið hús er frá kl. 10.00 til 18.00 gefst gestum kostur á að skoða stjórnsýslubygginguna við Porthstrasse 5-7, 60435 Frankfurt, sem og aðliggjandi kapellu við Eckenheimer Landstrasse 262-264, 60435 Frankfurt. Gestir geta kynnt sé hvernig yfir 1.300 kirkjusöfnuðir í Evrópu, sem allir eru starfræktir með ólaunuðum sjálfboðaliðum, njóta stuðnings starfsfólks stjórnsýsluskrifstofunnar í Frankfurt. Meðan á leiðsögn stendur verður spurningum svarað um trúaratriði Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, sem er hlutafélg samkvæmt ríkislögum fylkisins Hesse. Gestir eru góðfúslega velkomnir!

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er kristin kirkja með yfir þrettán milljón mannas um heim allan. Kirkjan hefur verið í Evrópu frá 1837.