Boðskapur frá leiðtogum kirkjunnar - 27.10.2011 |
Ég kynntist Lauru á stikuráðstefnu í Cadiz á Spáni. Geislandi bros hennar er mér minnisstætt þegar hún gaf lifandi vitnisburð sinn á sunnudagssamkomu um fagnaðarerindið og sagði frá væntanlegu trúboði sínu til Chíle.
Í raun hefði Laura ekki hlotið trúboðsköllun án hjálpar trúarskólakennara hennar. Maður sá lét sér ekki nægja að kenna trúarskólabekk stikunnar, heldur lagði hann líka á sig að heimsækja þá sem ekki komu til að bjóða þeim persónulega í kennslu. Dag einn hélt hann heimleiðis í miklu vonleysi. Hann hafði fengið neitandi svör frá ungu fólki sem sagðist ekki þurfa að kennslu hans að halda til að njóta hamingju í lífinu. Hann fór rakleiðis inn í herbergið sitt og kraup í bæn til að biðja frelsarann um að hughreysta sig. Friður færðist skyndilega yfir hann og nafn kom upp í huga hans: Laura.
Laura var ung kona í stikunni, sem hafði ekki komið í kirkju í næstum ár. Hann fékk sterka tilfinningu um að heimsækja hana til að bjóða henni að koma í kirkju og þar að auki að einsetja sér að fara í trúboð! Afar hissa ákvað hann að fylgja þessum innblæstri andans og því fór hann til að vitja Lauru á heimili foreldra hennar. Hún samþykkti að taka á móti honum. Hún hlustað af athygli þegar hann bar vitni um reglur iðrunar og óendanlega elsku frelsarans. Þegar hann sagði frá dæmisögunni um glataða soninn, spruttu tárin fram hjá báðum. Hún einsetti sér að fara á kirkjusamkomu næsta sunnudag. Kennaranum til mikillar undrunar bætti hún síðan skjálfandi við: "Mig langar að þjóna í trúboði!"
Reglan um að bjóða er hjarta fagnaðarerindis Jesú Krists. Hve oft hefur Jesús sjálfur boðið okkur að koma til sín, "eins og hæna safnar ungum sínum undir vængi sína." (2) Armar hans eru úréttir og samúðarröddu býður hann okkur: "Armur miskunnar minnar er útréttur til yðar, og ég mun taka á móti hverjum þeim, sem koma vill. Og blessaðir eru þeir, sem koma til mín." (3)
Hann gerir okkur að lærisveinum sínum og felur okkur að bjóða öðrum. "Eru nokkrir sjúkir yðar á meðal? Færið þá hingað. Eru einhverjir lamaðir, blindir, haltir, særðir, holdsveikir, tærðir, daufir eða þjáðir á einhvern hátt? Færið þá hingað, og ég mun gjöra þá heila, því að ég hef samúð með yður. Hjarta mitt er fullt miskunnar." (4)
Að leiða aðra til Krists felur meira í sér en einungis að tala við þá eða jafnvel kenna þeim. Öll okkar kennsla ætti að leiða til ákveðins boðs um að bregðast við, þar sem við vitum að "ólíklegt er að fólk breytist, nema því séð boðið að gera það."(1)
Látum við okkur bara nægja að ræða við vini okkar um fagnaðarerindið eða bjóðum við þeim að lesa Mormónsbók, að koma í kirkju eða til að taka á móti trúboðum? Höldum við sambandi við lítt virka bræður okkar og systur eða gerum við meira og bjóðum þeim að koma á kirkjusamkomur eða að fara í musterið? Kennum við mikilvægi þess að þjóna í trúboði eða bjóðum við hverjum ungum manni að fara í trúboð? Ljúkum við kennslu okkar á því að bjóða nemendum að gera einhverjar breytingar á lífi sínu? Er hverjum meðlimi kirkjunnar persónulega boðið að af leiðtogum sínum að taka á móti nauðsynlegum helgiathöfnum fagnaðarerindisins?
Stundum hræðumst við höfnun eða viðbrögð annarra. Kannski dæmum við þá og teljum þá ekki reiðubúna, ekki verðuga eða jafnvel ekki hæfa til að svara boði okkar.
Í raun tel ég aðeins fáeinar aðstæður eiga að varna okkur frá því að bera fram boðið. Að bjóða einhverjum er framar öllu verk trúar og kærleika. Þegar við bjóðum að hætti Drottins, er okkur lofað að þeir sem hann hefur undirbúið muni þekkja rödd hans í gegnum okkur. Góði hirðirinn segir: "Mínir sauðir heyra raust mína, og ég þekki þá, og þeir fylgja mér." (5) Hin hljóða og lágværa rödd er nægilega máttug til að hafa áhrif á fólk til að breytast.
Svæðisforsætisráðið setti nýverið markmið um að tvöfalda virkan meðlimafjölda í Evrópu á næstu tíu árum. Þá hugsjón þarf ekki að útfæra með áætlunarvinnslu, flóknum aðferðum eða sértækum úrræðum til að hún verði að veruleika. Hún er undir trú allra komin. Ef hver meðlimur mundi færa eina sál til Krists, yrði það til að tvöfalda mætingu allra deilda og greina í Evrópu.
Ég veit að við getum þetta. Við þurfum að bjóða fólki að hætti Drottins.
(1) Boða fagnaðarerindi mitt, bls. 196.
(2) 3 Ne 10:4
(3) 3 Ne 9:14
(4) 3 Ne 17:7
(5) Jóh 10:27