Fréttir - 07.02.2008 |
Eftirfarandi er kveðja frá Herra Ólafi Ragnari Grímssyni forseta lýðveldisins til kirkjunnar:
Með andláti Gordons B. Hinckley forseta, hefur Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og allur heimurinn misst mikilhæfan og vitran leiðtoga, mann hugsjóna og hugdirfsku.
Íslendingar hafa misst góðan vin og ég votta Kirkju Jesú Krists einlæga samúð.
Ég naut þeirra forréttinda að hafa hag af þeim mörgu viðræðum sem ég átti við Hinckley forseta. Heimsókn hans til Íslands fyrir nokkrum árum var meðal hápunkta forsetatíðar minnar. Ég gleymi aldrei kveðjustund okkar á grænum túnum bústaðar míns.
Nærvera hans og ræða í Spanish Fork, þegar íslenska samfélagið í Utah, sem er elsta landnám Íslendinga í Bandaríkjunum, hélt upp á 150 ára afmæli sitt, var einnig mikill heiður fyrir íslenska arfleifð og þjóð mína.
Bænir hans í þágu eiginkonu minnar sálugu, Guðrúnar Katrínar, sem fyrir áratug barðist við hvítblæði, snertu hjörtu fjölskyldu minnar og lýstu djúpri manngæsku Hinckleys forseta.
Við hugsum til allra þeirra í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sem nú syrgja mikilhæfan forseta.