Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 26.08.2009

 

Öldungur Russell M. Nelson ávarpar alþjóðlega fjölskylduráðstefnu

Öldungur Russell M. Nelson ávarpar alþjóðlega fjölskylduráðstefnu

Öldungur Russell M. Nelson úr Tólfpostulasveit Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu undirstrikaði mikilvægi barna og fjölskyldna fyrir framtíð heimsins er hann ávarpaði alþjóðlega fjölskylduráðstefnu nýlega í Amsterdam.

 

„Framtíðar hamingja og framtíð þjóða tengist börnum. Aftur þarf að setja fjölskyldur með börn í hávegum sem grunneiningu þjóðfélaga. Við verðum einfaldlega að meta börn að meiri verðleikum en við gerum.“

 

Alþjóðaþing fjölskyldna, sem stendur yfir í þrjá daga, er alþjóðleg samtök þjóðlegra-, þjóðernis-, menningar- og trúarsamfélaga sem verja, staðfesta og koma á framfæri ómissandi hlutverki fjölskyldna í samfélaginu.

 

Kirkjan hefur lengi vel verið talsmaður sterkra fjölskyldna og gaf árið 1995 út Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins sem að hluta segir: „Fjölskyldan er vígð af Guði. Hjónaband milli karls og konu er nauðsynlegt eilífri áætlun hans. Börn eiga rétt á því að fæðast innan hjónabandsins, vera alin upp af föður og móður sem heiðra hjónabandseiða sína af fullkominni tryggð.“

 

Wendy Watson Nelson, Ph.D., eiginkona öldungs Nelsons, flutti einnig ræðu á samkomunni um þörf fjölskyldna á auknum andlegum styrk. „Við þurfum fjölskyldur sem líta til Guðs og fjarlægja allt sem eyðileggur andlegheit úr lífi sínu,“ sagði hún. „Fjölskyldur sem eru andlega sterkar eru eina framtíðarvon þjóða okkar.“

 

Sheri L Dew, sem þjónaði áður sem ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins, var einnig ræðumaður á þessari ráðstefnu. Sagði hún: „Dyggðugt líferni er auðveldara líf og veitir meiri fullnustu. Og dyggðin er eitt af því öflugasta sem getur styrkt fjölskyldur og þar af leiðandi styrkt veröld okkar.“