Fréttir - 25.10.2009 |

Öldungur Stephen C. Kerr, Brian Adam (þingmaður á skoska þinginu), öldungur David A. Bednar, öldungur Jose A. Teixeira.
Ráðherrar skoska þingsins héldu sögulegan fund með leiðtogum frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu miðvikudaginn 16. september síðastliðinn.
Fundurinn var haldinn í Holyrood þingbyggingunni. Brian Adam þingmaður bauð öldung David A. Bednar í Tólfpostulasveit Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu velkominn, en Bednar var að heimsækja Skotland í fyrsta sinn. Einnig voru með í för öldungur Jose A. Teixeira úr forsætisráði Evrópusvæðisins, öldungur Stephen C. Kerr svæðishafi Sjötíu og Douglas Yates eldri frá almannatengslum kirkjunnar í Skotlandi.
Aðrir þingmenn sem sóttu einnig þennan tveggja klukkustunda fund voru Roseanna Cunningham, umhverfisráðherra, Fergus Ewing, samfélagsöryggismálaráðherra, Murdo Fraser leiðtogi skoska Íhaldsflokksins og Michael McMahon þingmaður.
Öldungur Bednar hóf mál sitt með að tjá sérstakan áhuga á því hvernig trúaðir stjórnmálamenn í Skotlandi hafa fundið jafnvægi milli trúarlegrar sannfæringar sinnar og ábyrgðar sinnar sem löggjafar. Hann útskýrði að tilgangur heimsóknarinnar væri að efla tengsl við skoska þingið, ræða betri samskiptaleiðir við kirkjuþegna í Skotlandi og veita kjörnum embættismönnum stuðning við áríðandi siðferðismál nútímans, sérstaklega að undirstrika grundvallarkennslu kirkjunnar á mikilvægi fjölskyldunnar.
Roseanna Cunningham þingmaður sagði: „Sterk vísbending er til staðar sem segir að börn þroskist miklu betur í hefðbundinni tveggja foreldra fjölskyldu, hins vegar getur sú vísbending ‘sópast undir teppið’ í opinberri umræðu.“
Öldungur Bednar sagði leiðtoga kirkjunnar hvetja kirkuþegna til að notfæra sér lýðræðislega og þjóðrækna skyldu að hefja upp raust sína sem þegnar ríkisins og láta raddir sínar heyrast hvað fjölskyldumál varðar, sem að lokum munu hafa „gríðarleg áhrif.“
Brian Adam þingmaður bætti við að nýleg skoðunarkönnun meðal Skota sýndi rúmlega 75% fylgni við hefðbundin fjölskyldu gildi.
Murdo Fraser þingmaður sagði í tengslum við hið háa gjald sem greitt er í kjölfar hnignandi hefðbundinna fjölskyldugilda: „Rannsóknir hafa sýnt að börn sem alast upp á heimilum þar sem tveir foreldrar eru til staðar njóta miklu betra og stöðugra umhverfis. Þeim vegnar betur fjárhagslega og eru ólíklegri til að prófa áfengi og eiturlyf. Sönnunin er óhrekjandi en samt sem áður lifum við í samfélagi þar sem hjónaband er smám saman að falla úr tísku og álitið aukaatriði. Ríkisstjórnir allra stjórnmálaflokka hafa ekki tekist á við þetta.“ Hann bætti við að í staðinn hafa ríkisstjórnir óafvitandi tekið í gildi löggjöf sem miðlar að sundrung fjölskyldunnar. „Það veldur miklum áhyggjum,“ sagði hann.
Öldungur Bednar fjallaði um mikilvægi ábyrgðar einstaklingsins og sagði: „Í kirkju okkar trúum við að við séum öll synir og dætur elskandi föður á himni. Við komum til jarðar til að fá efnislíkama og hljóta jarðlega reynslu, með sjálfræði til að framkvæma. Við erum ekki hlutir sem bregðast einfaldlega við. Okkur finnst það vera okkar ábyrgð að hjálpa öðrum að skilja hver þau eru, af hverju þau eru hér og að fjölskyldan er kjarninn í áætlun Guðs um eilíf örlög barna hans.“
Öldungur Bednar lofaði þá kjörnu embættismenn sem láta rödd sína heyrast af hugrekki og af heilindum þegar þeir horfast í augu við tilvonandi löggjöf sem mun grafa undan siðferðislegum gildum.
Öldungur Kerr gaf eintök af hluta af bókmenntum kirkjunnar sem notaðar eru til stuðnings og styrktar fjölskyldum, þar á meðal bók um fjölskyldukvöld sem hvetur hverja fjölskyldu til að taka mánudagskvöld í hverri viku frá sem sérstakan tíma fyrir fjölskylduna. Andlegur boðskapur, sem hæfir aldri hlustenda, er veittur ásamt skemmtilegum leikjum og hressingu.
Öldungur Bednar og aðrir leiðtogar kirkjunnar ferðuðust einnig til Írlands og tóku þátt í nokkrum kirkjufundum. Þar með lauk ferðalagi þeirra en þeir höfðu heimsótt þó nokkur lönd á meðan á ferðalaginu stóð.