Fréttir - 15.12.2010 |
Þið getið kallað það snemmbúna jólagjöf, ef þið viljið, en frá 30. nóvember munu þeir sem fara á vefsíðu kirkjunnar www.lds.org uppgötva að síðan er í öðrum búningi prýdd fjölda nýrra valkosta.
Hin uppfærða vefsíða hefur í raun verið aðgengileg á beta formi í nokkra mánuði á new.lds.org (sjá Church News 17. sept.), en eldra vefsíðunafnið verður látið gilda fyrir nýju síðuna.
Fram að því verður eldra nafnið lds.org enn aðgengilegt á classic lds.org fyrir þá sem vilja nýta sér eldra efni sem enn er ekki á hinni nýju vefsíðu lds.org, að sögn Lees Gibbons, vefsíðustjóra lds.org.
Hér eru nokkrar megin breytingarnar á nýju síðunni:
-Nýr nethugbúnaður sem gerir notendum kleift að skýra og auðkenna ritningargreinar, texta í kirkjutímaritum, kennslubókum og aðalráðstefnuræðum. Öruggt auðkenning notanda gerir honum kleift að vista athugasemdir og jafnvel dagbókarfærslur, undir valkostnum "My Study Notebook". Í framtíðinni verður mögulegt að tengjast "My Study Notebook" með tækjum sem geta tengst Alnetinu.
-"Nýr hluti sem heitir "Prophets and Apostles Speak Today" veitir aðgengi að ýlegum og sígildum boðskap frá kirkjuleiðtogum. Honum verður bætt við þegar hin nýja vefsíða verður opinber síða.
-Valkosturinn "Church News and Events" hefur að geyma fyrirsagnir og hlekki sem tengjast öllum opinberum fréttasíðum kirkjunnar, kirkjutímaritunum, mormónastöðvunum, og Church News. Hann kemur í stað núverandi valkostsins "Around the Church" sem er á lds.org.
-Texta-, hljóð- og myndefni frá útsendingu heimsþjálfunarfundar, sem haldinn var 13. nóvember, verður á hinni nýju vefsíðu á 40 tungumálum. Á fundinum voru hinar nýju stjórnsýsluhandbækur kirkjunnar kynntar. Handbók 2 er aðgengileg á ensku á netinu. Handbók 1 er einnig aðgengileg á netinu, en aðeins fyrir biskupa og stikuforseta.
Núverandi hlekkjum og tengingum við lds.org verður beint að nýju vefsíðunni.
Haldið verður áfram að bæta valkostum við hina nýju vefsíðu. Vefsíðan er nú aðgengileg á spánsku og þýsku, auk ensku. Á næstu mánuðum verður átta tungumálum bætt við: Portúgölsku, frönsku, ítölsku, rússnesku, kóresku, japönsku, mandarínsku og kantónísku.
Vefsíðuhönnuðir lögðu áherslu á að nýja síðan væri hönnuð til að auðvelda kirkjumeðlimum að læra hið endurreista fagnaðarerindi, lifa eftir og miðla því, og vera aðal samskiptarásin sem miðlar hinni spámannlegu rödd. Hún er meðlimum einnig hvetjandi til að miðla öðrum boðskap kirkjunnar.
Aðalvalmyndinni er skipt í fimm flokka: "Our Heavenly Father's Plan," "Family," "The Church," "Service" og "Study". Hin nýja leiðtogasíða er til hagræðis fyrir biskupa og stikuforseta í stjórnsýslu þeirra.