Fréttir - 16.11.2007 |
Hinir Síðari daga heilögu á Íslandi komu saman þriðjudagskvöldið 11. september síðast liðinn til þess að taka þátt í sérstakri samkomu með Robert C. Oaks forseta og konu hans. Oaks forseti var nýlega kallaður sem svæðisforseti Mið-Evrópusvæðisins. Hann og kona hans heimsóttu Ísland og töluðu til meðlima kirkjunnar.
Bæði ræddu þau um hversu dásamlegur boðskapur endurreisnarinnar væri. Að himnarnir væru ekki lokaðir og að englar tali til heimsins. „Þetta er spennandi!“ Oaks forseti lauk með því að segja meðlimunum að „hver dagur væri mikilvægt tækifæri í lífi hvers skilningsgóðs Síðari daga heilags“ og bauð þeim að gripa þau tækifæri!