Fréttir - 15.08.2010 |
Trúboðar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru kunnir víða um heim fyrir að knýja dyra hjá fólki til að miðla því fagnaðarerindinu. Nú getur fólk sem áhuga hefur á trúmálum knúið í óeiginlegir merkingu á dyr Mormóna á Alnetinu til að afla sér aukinnar þekkingar á trú þeirra.
Á hinni nýju byltingarkenndu vefsíðu Mormon.org hafa 2000 Mormónar útfyllt persónusniðs, og 13.000 fleiri eru þar í vinnslu, þar sem fram kemur hvers vegna þeir lifa eftir trú sinni og eru Mormónar. Gert er ráð fyrir að þeir verði brátt 100.000, eftir að kirkjumeðlimir verða beðnir á LDS.org að íhuga að miðla trú sinni á Mormon.org.
Sýnishorn af hinni nýju vefsíðu Mormon.org. Eitt lykilatriði síðunnar er persónuleg þátttaka og frásagnir þúsunda Mormóna, sem hafa útfyllt persónusnið sitt með eigin orðum.
"Viðbrögðin voru ótrúleg," sagði Ron Wilson, forstöðumaður mormon.org. "Við lásum frásögn eftir frásögn um hvernig kirkjan hafði haft áhrif á líf fólksins. Þótt hver frásögn væri sérstæð, áttu þær sér það sameiginlegt að fjalla um fólk sem keppti að því að fylgja Jesú Kristi."
Þegar við til að mynda spurðum hvernig væri að vera meðlimur kirkjunnar, sagði Shannyn Marie: "Það er eins og að vera hluti af stórri fjölskyldu sem lætur sé annt um hvert annað. Þar eru svo margir með mismunandi bakgrunn og hæfileika, en við erum öll sameinuð í siðgæði okkar og trú."
Meðlimir miðla einnig persónulegum frásögnum og veita fjölmörgum svör, líkt og við spurningunum: "Eru Mormónar kristnir?" "Hvaða þýðingu hefur bænin í lífi ykkar?" "Hvers vegna drekka Mormónar ekki kaffi, te eða áfengi?" og "Hver er trú Mormóna varðandi Biblíuna?"
"Fyrri útgáfa af Mormon.org var frábært tæki fyrir fólk sem vildi vita meira um Mormónisma, til að afla sér almennra upplýsinga frá kirkjunni um kenningar okkar og trúariðkun," sagði Scott Swofford, fjölmiðlastjóri Trúboðsdeildar kirkjunnar. "Markmiðið með þessu er að auka skilning fólks á að hver stofnun, hver söfnuður fólks, sé í raun aðeins merki um trúarskoðanir meðlima hennar. Málið snýst ekki aðallega um hverju við trúum, heldur hvað við gerum, því okkur finnst það gera Mormóna áhugaverða."
Markverð fjölmiðlakynning hófst síðla í júlí til að vekja athygli fólks á hinni nýju vefsíðu. Kynningin fór fram í hefðbundnum og óhefðbundnum fjölmiðlum, þ.m.t. á Alnetinu, í sjónvarpi og útvarpi og á auglýsingaskiltum. "Líkt og gildir um hina nýju vefsíðu Mormon.org, þá gerði kynningin aðild ykkar að andliti kirkjunnar."
Kirkjan mun halda áfram að safna persónusniðum meðlima. Þeir Síðari daga heilagir sem búa til persónusnið geta bætt við það og breytt því hvenær sem þeir óska.
Persónusniðin eru skoðuð en ekki ritsett eða þeim breytt. Þau eru höfð á sama formi og þau voru upprunalega gerð. "Þegar þið lesið persónusniðin sjáið þið inn í hjörtu fólksins og það er nokkuð augljóst strax frá byrjun að fólk er að miðla af eigin trú," sagði Stephen B. Allen, framkvæmdastjóri Trúboðsdeildarinnar.
Sérstakur reitur er í persónusniðunum fyrir einstaklinga til að tengja þau við eigin Facebook og Twitter síður sem og blogg. Vefsíðan gerir einstaklingum sem reyna að afla sér aukinnar þekkingar á kirkjunni mögulegt að tengjast beint einstökum Mormónum. Kirkjumeðlimir geta búið til persónusnið á new.mormon.org með því að skrá sig inn með SDH aðgengi sínu. Á þessu ári verða aðeins persónusnið á ensku í boði, en fleiri tungumál verða tiltæk síðar.
Vefsíðan Mormon.org, sem var opnuð 2001, hefur verið góður kostur fyrir þá sem leita sér upplýsinga um kirkjuna á Alnetinu. Nær hálf milljón manns fer á síðuna í hverjum mánuði. Þótt kirkjan muni halda áfram að miðla boðskap sínum með yfir 52.000 fastatrúboðum (yfir ein milljón hafa þjónað frá stofnun kirkjunnar 1830), kjósa margir að afla sér fyrst upplýsinga um kirkjuna á Alnetinu, áður en þeir ræða persónulega við trúboða. Mormon.org gegnir mikilvægu hlutverki í þeirri þjónustu.