Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 18.06.2009

 

Ný útvarpsstöð kirkjunnar

Okkur er það sönn ánægja að tilkynna að kirkjan hefur sett í loftið formlega útvarpsstöð sem kallast Mormónarásin. Rásin er send út frá musteristorginu í Saltvatnsborg og sendir út allar stundir sólarhringsins, alla daga vikunnar. Innihald stöðvarinnar er tekið úr víðtæku hljóðsafni kirkjunnar sem og 20 nýjum syrpum sem voru hannaðar sérstaklega fyrir rásina. Mormónarásin útvarpar einnig efni frá mismunandi samtökum sem samið hefur verið við, þeirra á meðal er Deseret Book, Bonneville International, Deseret News, LDS Business College, og háskólasvæði Brigham Young háskólans.

Innihaldið er fjölbreytilegt, þar á meðal staðlaðir þættir kirkjunnar eins og útsendingar og tónleikar Laufskálakórsins, aðalráðstefna og upplýsingaþættir varðandi kenningar, sögu og fréttir kirkjunnar. Einnig er þar að finna nokkra þætti sem einbeita sér að börnum og táningum.

Hægt er að hlusta á Mormónarásina í beinni útsendingu á Alnetinu hvenær sem er á slóðinni Opens external link in new windowradio.lds.org. Þar er einnig að finna efni sem hægt er að hlaða niður og podcast útgáfur. Hlekk á Opens external link in new windowradio.lds.org er einnig að finna á þjóðarsíðum kirkjunnar á Evrópusvæðinu.

Vinsamlega íhugið að deila þessum upplýsingum með vinum og fjölskyldu sem vita ef til vill ekki ennþá af þessari nýju útvarpsrás kirkjunnar. Hægt er að senda uppástungur eða viðbrögð varðandi Mormónarásina á radio@lds.org.