Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 01.05.2011

 

Ný netverslun

Kirkjan mun gangsetja nýja netverslun á veffanginu store.lds.org, 2. maí 2011, og gera Síðari daga heilögum hvarvetna um heim mögulegt að panta á heimilum sínum og fá beint í hendur efni og gögn kirkjunnar.  Engan sendingarkostnað þarf að greiða. 

Í nýju versluninni verða seldir hlutir sem finna má í smávöruverslunum kirkjunnar, þar á meðal ritningarnar, námsgögn, tímarit, tónlist, listmunir; musterisklæði, kennslubækur og fleira, og útgefið efni kirkjunnar verður þar aðgengilegt.

Vefsíðan verður upphaflega höfð aðgengileg á ensku, spænsku, frönsku, þýsku, ítölsku og rússnesku.   Fleiri tungumál munu koma síðar á árinu, þar á meðal portúgalska, japanska, kóreska og kínverska.