Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 07.08.2008

 

Musteristorgið … þar sem gestir finna frið og hugarró

Hið sögufræga Musteristorg

Salt Lake musterið

Laufskálinn

Ráðstefnuhöllin

Ráðstefnuhöllin

Gestamiðstöðin í norðri

Gestamiðstöðin

Hátíðahöllin

Minningarbygging Josephs Smith

Minningarbygging Josephs Smith

Skrifstofubygging kirkjunnar

Býkúpuhúsið

Gangan um hið fjögurra hektara gróðurríka svæði er mjög friðsæl. Musteristorgið er viðurkennt og virt um allan heim og vinsælasti staðurinn í Utah. Miðsvæðis er sex turna musterið svo fagurlega mótað af hinum trúföstu frumherjum, ásamt Laufskálanum með sínum einstæða byggingarstíl. Ferðir um svæðið eru skipulagðar á klukkustundarfresti og kynningin fáanleg á í það minnsta 40 tungumálum.

1. Salt Lake musterið

Bygging þess hófst 1853 og frumherjarnir erfiðuðu í 40 ár og það var vígt 1893. Musterið með sinn framúrskarandi byggingarstíl er í dag þekkt um allan heim. Kirkjuþegnar virða það sem stað máttar og kærleika Guðs.

2. Laufskálinn

Einstæð bygging hér í heimi og verkfræðilegt snilldarverk er Laufskálinn samastaður hins heimskunna Laufskálakórs mormóna. Hér hafa kirkjumeðlimir komið saman allt frá fyrstu tíð kirkjunnar til að hlýða á boðskap spámannanna. Laufskálinn er byggður af kunnáttumönnum úr hópi frumherjanna og er vitnisburður um ást fólksins á því sem Guðs er.

3. Ráðstefnuhöllin

Með auknum vexti kirkjunnar, hefur fjöldi þeirra sem óska að sækja aðalráðstefnur aukist að sama skapi. Til þess að hýsa eins marga ráðstefnugesti og mögulegt er, setti Gordon B. Hinckley forseti í gang byggingu Ráðstefnuhallarinnar handan götunnar við Musteristorgið. Á hverri aðalráðstefnu mæta yfir 100.000 manns til að taka á móti innblásnum leiðbeiningum frá kirkjuleiðtogum.

4. Gestamiðstöðin í norðri

Gestum á Musteristorginu finnst mikið til um yfir þriggja metra háa Krists styttuna sem er á mjög áberandi stað í hringlaga forsal gestamiðstöðvarinnar.

5. Hátíðahöllin

Tignarleg og tilkomumikil Safnaðarbyggingin var reist 1882 til hátíðahalda. Nú á dögum eru þar haldnir vikulegir tónleikar fyrir almenning og þar eru einnig fundarhöld.

 6. Gestamiðstöðin í suðri

Með stórfenglegu útsýni til musterisins út um stóra glugga, býður Gestamiðstöðin í suðri upp á friðsælan stað til hugleiðinga og íhugunar. Meðal annars sem er á boðstólum er gagnvirk sýning um fjölskyldur og tilganginn með musterum.

7. Sögu– og listasafn kirkjunnar

Vinsælt meðal gesta fyrir umfangsmikla sýningu á sögufrægum munum kirkjunnar, þar á meðal eftirlíkingu af Laufskálanum með þverskurði af margslungnu burðarverki þaks byggingarinnar.

8. Ættfræðisafnið

Vinsælt meðal fólks um allan heim hýsir Ættfræðisafnið stærsta safn af sínum toga í heiminum. Rannsakendur koma til að leita ættartengsla fjölskyldna sinna.

9. Líknarfélagsbyggingin

Höfuðstöðvar Líknarfélagsins, Stúlknafélags og Barnafélags.

10. Minningarbygging Josephs Smith

Nefnd eftir Joseph Smith, stofnanda og spámanns kirkjunnar, hýsir þessi tilkomumikla bygging úr marmara og granít 500 sæta sýningarsal þar sem 68 mínútna kvikmynd, Joseph Smith: The Prophet of the Restoration, er sýnd. Gestir hafa einnig aðgang að tölvum með upplýsingum um áa, og geta notið hádegis- og kvöldverðar á 10. hæð byggingarinnar.

11. Skrifstofubygging kirkjunnar

Skrifstofubygging kirkjunnar er hæsta byggingin sem ber við sjóndeildarhring í Saltvatnsborg, og leggur til mikið útsýni yfir Saltvatnsdalinn. Á 26 hæðum byggingarinnar eru starfsstöðvar leiðtoga og deilda kirkjunnar.

12. Stjórnsetur kirkjunnar

Þessi glæsilega bygging var reist 1912. Forsetar kirkjunnar allt frá Joseph F. Smith hafa framkvæmt stjórnarathafnir sínar hér. Byggingin er ekki opin almenningi til sýnis.

13. Ljónshúsið

Það var fullbyggt 1856, og var fyrrum aðsetur Brighams Young, en dregur nafn sitt af ljónsstyttum sem eru ofan við fordyri hússins.

14. Býkúpuhúsið

Byggt 1854 þjónaði þetta glæsta höfuðból sem aðsetur Brighams Young annars forseta kirkjunnar og nýlendustofnanda í hinu ameríska vestri, og sem höfuðstöðvar kirkjunnar fram að byggingu Stjórnseturs kirkjunnar.

15. Brighams Young sögugarðurinn

Staður friðar og kyrrðar handan götunnar við Stjórnsetur kirkjunnar. Hér knýr Borgarlækurinn vatnshjól og veitir vatni í garð og kæmi frumherjunum kunnuglega fyrir sjónir. Ókeypis er inn á sumarkvöldtónleika sem haldnir eru í ilmi fagurra garða.