Fréttir - 26.09.2007 |
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu – sem oft er nefnd „Mormónakirkjan“ – hefur æ ofan í æ beðið blaðamenn að gera skýran greinarmun á hinni 13 milljón manna heimskirkju og fjölkvænishópum í Utah og nærliggjandi fylkjum.
Óhjákvæmilega mun athygli fjölmiðla enn einu sinni beinast að viðfangsefninu fjölkvæni í næstu viku þegar réttarhöld yfir Warren Jeffs vegna ákæruefna sem tengjast fjölkvæni hefjast. Jeffs er foringi fjölkvænishóps sem hefur meðlimi í Klettafjallafylkjum Bandaríkjanna og Vestur-Kanada. Jeffs er ekki nú, og hefur aldrei verið meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu (Mormóna). Hann hefur heldur ekki nein tengsl eða samband, beint eða óbeint, við kirkjuna.
Það er gild ástæða til að taka þetta enn einu sinni fram. Þegar fjallað var um handtökuna og greint frá athöfnum annarra fjölkvænismanna, rugluðu margar fréttastofur á liðinni tíð áhorfendur sína og lesendur í ríminu með kæruleysislegri notkun orðsins „mormóni“ ýmist í texta eða í fyrirsögnum.
Sem dæmi, þá var fyrirsögn í hinu breska blaði Guardian í ágúst síðastliðnum svohljóðandi: “Fugitive Mormon leader's reign of fear ended by traffic violation,” og gaf lesendum í skyn að Jeffs væri á einhvern hátt tengdur kirkjunni. (Segja má The Guardian til hróss að þeir leiðréttu fyrirsögnina á vefsíðu sinni, en samt of seint til að hindra að sagan yrði endursögð í nokkrum öðrum fréttamiðlum.)
Blaðamaður við The Age, ástralskt dagblað, fjallaði um sjónvarpsþátt um fjölkvænisfjölskyldu í Utah og kallaði höfuðpersónuna „trúrækinn Mormóna.“ Hann hélt áfram og sagði sýninguna „fjalla um menningu sem oft er illa talað um og kynnir okkur ofurlítið leyndarmál. Mormónar geta líka verið hið besta fólk.“ Staðreyndin er samt sú að fjölkvænisfólkið í sýningunni er ekki meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.
Í handbók fréttamanna hjá Associated Press segir að hugtakið mormóni „er ekki með réttu notað“ um hinar kirkjurnar sem til urðu við klofninginn eftir dauða Josephs Smith. Það ætti að vera augljóst hvers vegna AP hefur tekið upp þá stefnu. Það er almennt skilið svo að orðið „mormónar“ vísi til Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, sem sendir út „mormónatrúboða,“ stendur að „Laufskálakór mormóna“ og reisir „mormónamusteri.“ Að tengja hugtakið „mormónar“ við fjölkvænismenn ruglar það sem ætti að vera kristaltær mismunur á samtökum sem eru algjörlega aðgreind.
Til að hafa það á hreinu, Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu aflagði opinberlega fjölkvæni 1890, sjá tengilinn discontinued its practice og í 117 ár hafa mormónar fylgt einkvænislífsstíl. Samt gera kæruleysislegar fyrirsagnir og hroðvirknisleg blaðamennska milljónum mormóna enn erfitt fyrir er þeir verða að svara spurningum frá samverkafólki sínu, vinum og nágrönnum. „Ert þú fjölkvænismaður?“ „Er það kirkjan þín sem ég les um í fréttablaðinu?“ eða „Hvað áttu margar eiginkonur?“
Við biðjum fréttamenn að gera glöggan greinarmun á Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og fjölkvænishópum. Við vonum einnig að kirkjuþegnar og aðrir lesendur minni fréttastofnanir sem halda áfram að skrifa af ónákvæmni kurteislega á að taka sér tak og forðast slík mistök.