Fréttir - 24.07.2007 |
Sú staðreynd að 1 milljón trúboða hafa nú verið kallaðir til þjónustu á þessum ráðstöfunartíma varð til þess að öldungur Russell M. Ballard minntist þessa sérstæða sögulega áfanga á blaðamannafundi í Provo Missionary Training Center mánudaginn 26. júní s. l.
Eftir að hafa tjáð virðingu sína, staldraði öldungur Ballard við til að hitta blaðamennina, en gekk síðan, ásamt öðrum aðalvaldhöfum inn í MTC til að halda áfram við þjálfun nýrra trúboðsforseta og hins fyrsta næstu milljónar trúboða. Í skini hádegissólar, stóðu öldungur Ballard í Tólfpostulasveitinni og félagar hans öldungur Richard G. Scott og öldungur Dieter F. Uchtdorf, nálægt bronsstyttu af Samuel Smith, sem litið er á sem fyrsta trúboða þessa ráðstöfunartíma og yngra bróður spámannsins Josephs Smith.
Inn í milli orða sinna leit öldungur Ballard öðru hvoru um öxl til að viðurkenna styttuna að baki sér þegar hann greindi frá hvað komið hefur út úr slíkri einfaldri byrjun, þegar Samuel, sem einn trúboði, sveiflaði bakpoka með 25 eintökum af nýútkominni Mormónsbók á bak sér og, án pyngju eða mals, hóf að ganga um sveitavegina fyrir 177 árum í júní 1830.
Í dag, sagði öldungur Ballard, eru 53.868 trúboðar þjónandi um allan heim, boðandi fagnaðarerindið til 145 þjóða, á 164 tungumálum.
„Þetta er aðeins byrjunin,“ sagði öldungur Ballard, og endurómaði orð Gordons B. Hinckley forseta daginn áður þegar hann tilkynnti á námskeiði nýrra trúboðsforseta að áreiðanlegar heimildir bendi til að milljónasti trúboðinn hafi gengið inn um dyr MTC snemma í júní.
Öldungur Ballard, sem formaður Framkvæmdanefndar trúboðsins, dáðist að því að piltar og stúlkur skyldu leggja til hliðar áhugamál ungdómsára sinna og fara að heiman frá fjölskyldu sinni til að boða fagnaðarerindi Jesú Krists í heimi sem hallast æ minna að andlegum hlutum.
„Eina ástæðan til að trúboðar geta fært slíka fórn er sú, að þeir vita að boðskapur þeirra er sannur,“ endurtók öldungur Ballard við ýmsar fréttastofur sem leituðu eftir persónulegu viðtali við hann. „Þeir gætu ekki gert það af neinni annarri ástæðu.“
Um það bil 40 prósent, eða 400.000 trúboðar, hafa verið kallaðir síðan Hinckley forseti var vígður forseti kirkjunnar í mars 1995. Að meðaltali hafa yfir 30.000 trúboðar verið kallaðir á ári hverju síðan 1996. Fjöldi trúboða náði hámarki árið 2002 eða 61.638, en þeim hefur fækkað undanfarin ár vegna lýðfræðilegrar fækkunar í hópi pilta og stúlkna. Meðal þeirra sem boðið var að deila trúboðsreynslu senni á blaðamannafundinum voru Joseph og Gladys Sitati frá Bungoma, nálægt Nairobi í Kenýu. Hann er fyrsti trúboðsforsetinn sem kallaður er frá þessari austur Afríku þjóð þar sem 7.000 meðlimir búa nú. Hann hefur verið kallaður til að stjórna Nigeria Calabar trúboðinu.
Trúskipti þeirra hófust við undarlegar aðstæður þegar forseti og systir Sitati hittu samlanda sinn Kenyubúa sem gekk í kirkjuna í Bandaíkjunum og hvarf heim til Nairobi. Hin ungu Sitati hjón voru lítt hrifin af trúarbrögðum, en þáðu boð mannsins til að heimsækja sunnudagsguðsþjónustu með um 20 meðlimum, þar á meðal þrjár Kenyufjölskyldur og um tylft brottfluttra Bandaríkjamanna. Þeim leið strax vel þarna og mættu viku eftir viku. Þau loku verkefnum sínum að lesa og biðja, og voru skírð eftir sex mánuði hinn 29. mars 1986.
Til þess að öðlast viðurkenningu fyrir kirkjuna og fá heimild fyrir trúboða í Kenyu, einbeitti þessi litli hópur þá um 14 meðlima sér að föstu og fastaði einn meðlimur dag hvern í endurtekinni röð. Átján mánuðum síðar, á árinu 1991, fékkst viðurkenning stjórnvalda.
Kenyubúar eru tilbúnir fyrir fagnaðarerindið, sagði Sitati forseti. „Hjöru þeirra eru opin.“ Vandamálið er, sagði hann, að vöxturinn gæti orðið leiðtogastarfinu um megn.
Í máli sínu, lofaði öldungur Dieter F. Uchtdorf í Tólfpostulasveitinni trúboðsandann sem hvetur ungt fólk til að fórna til þess að deila fagnaðarerindinu. Hann minntist þeirrar stundar er hann nýlega varð vitni að því er trúboðar í Frankfurt, Þýskalandi, sungu fyrir fólk á fjölfarinni götu á meðan aðrir trúboðar hittu áhorfendurna. Börn þessara trúboða munu er stundir líða fram verða jafnvel enn öflugi trúboðshópur, sagði hann. „Trúboðarnir boða, elska og njóta gleði,“ sagði hann.