Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 17.01.2009

 

Listatrúboðar hjálpa til við að fegra musteri

Listatrúboðarnir Billie Murray, til vinstri, frá Bountiful, Utah, og MaryAnn Smith frá Alpine, Utah, vinna saman að veggmálverki í Prickly Rock listavinnustofunni í Wallsburg, Utah. Þegar veggmálverkið er tilbúið mun það prýða vegg í Oquirrh Mountain Utah musterinu. Listatrúboðarnir hafa víðtæka listræna reynslu og bakgrunn.

Árið 1890 yfirgáfu fjórir kirkjuþegnar heimili sín og fjölskyldur í Utah til þess að hefja trúboðsþjónustu í Frakklandi.

Verkefni þeirra var frábrugðið samtrúboðum þeirra sem fengu verkefnið við að færa Evrópu fagnaðarerindið.  Í stað þess að fara út á götu til þess að kenna um endurreistu kirkjuna og Mormónsbók þá aðskildu þessir fjórmenningar sig frá hversdagslífinu svo mánuðum skipti í vinnustofum og kennsluherbergjum hjá listameisturum Parísar.

Þar skerptu þeir á listahæfileikum sínum, sem þeir trúðu að kæmu frá Guði, til þess eins að fara aftur til Utah og mála veggmálverk inn í Salt Lake musterinu sem senn átti að vígja.  Stuttu síðar bættist við fimmti listatrúboðinn, hinn 19 ára gamli Herman H. Haag.

Trúboðarnir töldu að óhefðbundna köllun þeirra væri frá Drottni komin.

„Ég trúi því sterklega að æðsta stigið við að þróa hæfileika sé skylda sem við skuldum skapara okkar,“ skrifaði Öldungur Hafen, „Ég hef lagt mig fram í mörg ár að biðja hann um að opna mér leið þar sem ég geti hlotið þá þjálfun sem gerir mér kleift að skreyta heilög musteri hans og íbúa Síonar.“ (Linda Jones Gibbs, Harvesting the Light: The Paris Art Mission and the Beginnings of Utah Impressionism, p.3).

Linda Curley Christensen, Síðari daga heilög, hefur lengi dáðst að trúrækni þessa listatrúboða frá fyrri tíð.  Hún hugsaði oft um áskorun Gordon B. Hinckley forseta til eldri fullorðinna einstaklinga sem snérist um að deila sérfræðiþekkingu sinni í trúboðsþjónustu.  Með því að byggja á vísun bróður Hafen og annarra þá hún sendi inn uppástungu fyrir nokkrum árum þess eðlis að þjóna sem listatrúboði og mála veggmálverk fyrir musteri.

Ósk systur Christensen varð að veruleika fyrr á árinu þegar hún og rúmlega tylft trúfastra listamanna voru kallaðir og settir í embætti sem trúboðar til að skapa veggmálverk fyrir Oquirrh Mountain Utah musterið sem er nú í byggingu í South Jordan, Utah.  Frá því í júní hafa trúboðarnir safnast saman í vinnustofu systur Christensen, sem er í Wallsburg, Utah, til að vinna við sköpun litskrúðugra veggmálverka.
Rétt eins og trúboðsforverar hennar þá segist systir Christensen geta fundið ummerki um hönd Guðs í köllun sinni og framlagi.

„Við höfum sannarlega fundið fyrir englum í kringum okkur, að viðhalda okkur og að styrkja okkur,“ sagði hún.

Listatrúboðarnir er teymi listamanna sem stunda höggmyndalist og myndlist og hafa sérhæft sig í fjölbreytilegum miðlum.  Þeir koma á vinnustofuna frá stöðum sem eru langt í burtu eins og til dæmis Idaho fylki og Nephi, Utah.  Þeir sem búa nær spara oft á tíðum bensínkostnað með því að vera í samfloti með öðrum.
Undir stjórn systur Christensen hafa listatrúboðarnir viðtekið margskonar ábyrgðir, allt frá sjálfri málningarvinnunni yfir í að blanda liti, ganga frá og skrásetja vinnu sína.  Eiginmaður systur Christensen, Greg Christensen, hefur einnig lagt sitt af mörkum með því að smíða risavaxnar trönur sem notaðar eru við gríðarstóru veggmálverkin.

Stolt og sjálfsálit er skilið eftir fyrir utan hurð vinnustofunnar og hver vinnustund hefst með bæn og andlegri stund.

„Þegar við höfum þjónað og gefið af tíma okkar og hæfileikum hefur okkur verið endurgoldið með gnægð blessana,“ sagði systir Christensen.

Listatrúboðarnir hafa nú nánast lokið við Oquirrh Mountain Utah musteris verkefni sitt.  Þegar veggmálverkin eru tilbúin þá verða þau rúlluð upp á spólur, sett inn í stóra hólka og flutt til musterisins.  Bróðir Christensen verður viðriðinn við uppsetninguna og trúboðarnir munu lagfæra ef eitthvað kemur uppá í musterinu sjálfu.

Systir Christensen sagði að síðan munu trúboðarnir takast á við önnur listaverkefni fyrir önnur musteri.  Samtrúboðar hennar segja musteris verkefnið vera hápunkt nafntogaðs ferils þeirra.

Þetta hefur verið ótrúlegt – ég get ekki talað um verkefnið án þess að tárast,“ sagði Carol Jackman myndhöggvari og málari frá Provo, Utah.  „Að geta notað hæfileika okkar í verkefni sem þetta hefur verið gjöf til okkar.“   

Richard Miles sem málar landslags- og náttúrulífs myndir er frá Fruit Heights, Utah.  Hann hefur notið þess félagsanda sem myndast hefur meðal trúboðanna er þeir hafa hannað og skapað veggmálverkin.  „Listsköpun er oftast nær einstaklings vinna en hér er hins vegar mikill liðsandi.“   

Systir Christensen sagði að fyrsta kynslóðin af listatrúboðum hafi haft það erfitt.  Þeir lifðu fábrotnu lífi í París og fægðu fagkunnáttu sína langt í burtu frá fjölskyldum og heimilum sínum.  „Þeir guldu sitt gjald, fórn þeirra var gríðarstór,“ sagði hún.

Samt sem áður finnur hún fyrir auðmýkt fyrir að hafa verið beðin um að halda áfram starfi þeirra og viðleitni.  Hún er þakklát fyrir að hæfileikar annarar kynslóðar listatrúboða muni auðga og dýpka upplifun framtíðargesta mustera.