Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 14.06.2009

 

Leiðtogar kirkjunnar heimsækja kirkjuna í Austur-Evrópu

Lada Serdiuk og Kateryna Serdiuk við musterislóðina gefa Dieter F. Uchtdorf forseta og systur Harriet Uchtdorf sérstakt úkraínskt brauð.

Aleksander Serafimovich Sytnyk afhjúpar veggplatta til heiðurs kirkjunni fyrir framlag hennar til heilsugæslunnar í Úkraínu.

Staðarkór syngur fyrir framan musterið í Kíef, Úkraínu.

Dieter F. Uchtdorf forseti tekur í höndina á meðlimum kirkjunnar í heimsókn sinni til austur Evrópu.

Þúsundir mormóna í Úkraínu og Rússlandi komu víða að frá Austur-Evrópu í fyrstu viku júní til að bjóða Dieter F. Uchtdorf ráðgjafa í Æðsta forsætisráði Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og öldung Neil L. Andersen úr Tólfpostularáðinu velkomna. Á ferð sinni héldu leiðtogarnir tveir ræður fyrir nokkra stóra söfnuði mormóna í Kíef, Úkraínu, Samara, Jekaterínburg og Moskvu, Rússlandi. Þetta var einstakt tækifæri fyrir meðlimi að heyra frá æðstu leiðtogum kirkjunnar með eigin eyrum.

„Ég var svo spennt að ég afbókaði allt sem var á dagskrá hjá mér svo ég gæti verið þarna,“ sagði Anna Chirgir, meðlimur kirkjunnar í Úkraínu. „Hann er postuli og þjónn Guðs og við fáum ekki oft heimsóknir frá postulum í þessu landi.“
Á síðari árum hefur kirkjan vaxið verulega í Austur-Evrópu. Kirkjan hefur vaxið úr einungis nokkrum meðlimum í nærri því 20.000 í Rússlandi og um 10.000 í Úkraínu (sjá sögu kirkjunnar í Rússlandi og Úkraínu).

Musterið í Kíef, Úkraínu

Eftirtektarvert tákn um vöxt kirkjunnar er bygging musteris í Kíef, Úkraínu, sem tilkynnt var þann 20. júlí 1998.  Fyrsta skóflustungan var tekin þann 23. júní 2007. Musterið er nú nærri því fullbyggt og verður fyrsta musterið í Austur- Evrópu.

Í heimsókn sinni á musterislóðina í Kíef, Úkraínu með Uchtdorf forseta, sagði öldungur Andersen, að „musterið verði blessun fyrir Úkraínu“ og að „fólk muni ganga í kirkjuna hér í hundruða og þúsunda tali.“

Kirkjumeðlimur sagði: „Við höfum beðið síðan 1998, þegar Gordon B. Hinckley tilkynnti að hér ætti að byggja musteri í Kiev. Þetta er stórkostlegur atburður fyrir úkraínsku þjóðina.“

Musteri Síðari daga heilagra eru öðruvísi en samkomu hús kirkjunnar og kapellur þar sem meðlimir sækja sunnudagasamkomur. Litið er á musteri sem „hús Drottins“ þar sem meðlimir kirkjunnar geta lært meira um tilgang lífsins og styrkt þá skulbindingu sína, að þjóna Jesú Kristi og náunga sínum.

Með tilkomu musterisins í Kíef, Úkraínu munu meðlimir kirkjunnar í Austur-Evrópu ekki þurfa að ferðast langar vegalengdir til þess að taka þátt í musterisathöfnum.

Mannúðaraðstoð í Úkraínu

Á meðan heimsókn þeirra stóð heimsóttu Uchdorf forseti og öldungur Andersen heilsugæslu sem kallast Sjálfvirka greiningarstöðin og er staðsett nálægt musterislóðinni. Kirkjan hafði veitt framlag til stöðvarinnar svo hægt væri að kaupa háþróaðan læknisgreiningarbúnað.  Aleksander Serafimovich Sitnik, stjórnarmaður heilsugæslunnar, sem ekki er rekin í hagnaðarskyni, ræddi um það margra ára starf sem unnið var til að koma á fót heilsugæslu þar sem hægt yrði að veita nútíma læknisgreiningu fyrir lágtekjufólk og þá sem eiga undir högg að sækja félagslega, þar á meðal fórnarlömb Tsjornobyl kjarnorkuslyssins. Hann tjáði þakklæti fyrir samvinnu heilsugæslunnar, stjórnvalda, kirkjunnar og annarra gefenda. Leiðtogar stjórnvalda og læknalið tjáðu einnig þakkir sínar fyrir þátt kirkjunnar og sögðu: „Án þess væri greiningarstöðin ekki hér í dag.“

Að hitta hina heilögu

Uchtdorf forseti og öldungur Andersen heimsóttu einnig fastatrúboðana í Kíef, Úkraínu. „Byggið upp kirkjuna í Úkraínu,“ sagði Uchtdorf við trúboðana. „Ef (þið) haldið ykkur á hinum þrönga og beina vegi þá munuð (þið) sjá miklar blessanir eftir 20 ár.

Uchtdorf forseti blessaði ungdóminn í Moskvu, þar sem hundruð manna söfnuðust saman. Eftir fundinn sagði 17 ára gamall nemandi í Trúarskólanum eftirfarandi: „Við erum þau sem kunnum að deila fagnaðarerindinu með þeim sem búa í Moskvu og við erum þau sem getum unnið það verk.“

Við meðlimi í Moskvu sagði öldungur Andersen: „Ég finn góðmennsku ykkar og anda Krists. Ég finn hugrekki ykkar. Við komum öll í kirkjuna frá mismunandi aðstæðum. Við erum öll synir og dætur Guðs. Hann elskar okkur öll.“

Á sunnudeginum söfnuðust 600 mormónar saman í Jekaterínburg, Rússlandi, hvarvetna að frá Úral svæðinu. Þetta var í fyrsta skipti sem meðlimur Æðsta forsætisráðsins heimsótti Jekaterínburg og meðlimir komu með lest allt frá Surgut, sem er í 1.600 km fjarlægð, til að vera viðstaddir fundinn.

Uchtdorf forseti sagði Úralfjöllin stundum kölluð „Hlið Síberíu“. Síðan sagði hann: „Þið eruð hliðið að framtíð kirkjunnar. Þið eruð sannir frumherjar í orðsins fyllstu merkingu og aðrir munu fylgja ykkur. Komandi kynslóðir munu lofa nafn ykkar vegna þess að þið skammist ykkar ekki fyrir fagnaðarerindið og þið óttuðust ekki.“

Meðlimir komu með miklar vonir, vonuðust eftir að styrkjast og hljóta hvatningu. Þær vonir brugðust ekki. Pavel og Tatyana Kulakovy óku með börn sín í átta klukkustundir frá Ufa. „Ég vissi að þetta var frábært tækifæri og ég var staðráðinn í að missa ekki af því,“ sagði Pavel Kulakovy.

Á meðan Uchtdorf forseti og öldungur Andersen voru í Moskvu, heimsóttu þeir sögufræga Baptistakirkju, þar sem Ezra Taft Benson, þáverandi landbúnaðarráðherra og meðlimur Tólfpostularáðs kirkjunnar, hélt ræðu árið 1959.