Fréttir - 03.06.2010 |

Öldungur Patrick Kearon

Öldungur Per G. Malm

R.(Sonny) Donaldson

Christian Fingerle

R. Ingvar Olsson

Craig T. Wright
Á aðalráðstefnu Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu (mormóna), 3. apríl 2010, var tilkynnt um sex nýja leiðtoga kirkjunnar, sem allir voru frá Evrópusvæðinu. Tveir þeirra munu þjóna sem aðalvaldhafar, sem er verkefni til æviloka, og hinir fjórir munu þjóna til fimm ára. Ábyrgðarskyldur þeirra eru mismunandi, en allir munu þeir stuðla að því að fordæmi og kenningum frelsarans Jesú Krists sé fylgt í tilbeiðsluþjónustu og fjölskyldulífi.
Öldungur Patrick Kearon var beðinn að starfa að verkefnum í fyrstu sveit hinna Sjötíu og öldungur Per G. Malm mun þjóna í annarri sveit hinna Sjötíu.
Öldungur Patrick Kearon
Patrick Kearon, 48 ára, þjónaði sem meðlimur þriðju sveitar hinna Sjötíu á Vestur-Evrópusvæðinu þegar hann var kallaður til þjónustu í fyrstu sveit hinna Sjötíu.
Öldungur Kearon aflaði sér menntunar í Miðausturlöndum og á Bretlandi. Hann hefur starfað á Bretlandi, í Sádi-Arabíu og í Bandaríkjunum við ýmsar starfsgreinar, svo sem heilsugæslu, matvælaþjónustu og ferðaþjónustu. Hann rekur eigið fyrirtæki í samskiptaráðgjöf. Samfélagsþátttaka hans hefur meðal annars verið nefndarstörf í líknarstofnun, barnaskóla, fyrirtæki og framhaldsskóla.
Eftir að öldungur Kearon gekk í kirkjuna á aðfangadagskvöldi árið 1987, hefur hann þjónað í fjölmörgum kirkjuköllunum, meðal annars sem aðstoðarritari deildar, Piltafélagsforseti deildar, ráðgjafi biskups, greinarforseti og stikuforseti.
Patrick Kearon fæddist í Carlisle, Cumberland, Englandi, 18. júlí 1961. Hann giftist Jennifer Carole Hulme 1991. Þau eiga fjögur börn saman og eitt þeirra er látið. Kearon-fjölskyldan býr í Somerset, Englandi.
Öldungur Per G. Malm
Öldungur Per G. Malm, 61 árs, þjónaði sem meðlimur þriðju sveitar hinna Sjötíu á Vestur-Evrópusvæðinu þegar hann var kallaður til þjónustu í annarri sveit hinna Sjötíu.Öldungur Malm rak eigin fasteignasölu í 11 ár. Hann hóf starf sitt í kirkjunni árið 1980 sem svæðisforstöðumaður fasteignamála kirkjunnar. Þegar hann lauk starfi sínu í kirkjunni 2003, var hann framkvæmdastjóri stundlegra málefni í Evrópu. Hann hætti nýlega störfum sem viðskiptaráðgjafi. Öldungur Malm hlaut meistaragráðu í viðskiptalögfræði í háskólanum í Gautaborg í Svíþjóð og lögfræðigráðu (LLM) í háskólanum í Lundi.
Öldungur Malm hefur þjónað í fjölmörgum kirkjuköllunum, m.a. sem fastatrúboði í Stokkhólms-trúboðinu í Svíþjóð, sem stikutrúboðsforseti, greinarforseti, háráðsmaður, ráðgjafi trúboðsforseta, ráðgjafi stikuforseta, stikuforseti, leiðtogi háprestaflokks, trúboðsforseti og framkvæmdastjóri almannamála í Svíþjóð.
Per Gosta Malm fæddist í Jonkoping, Svíþjóð, 12 september 1948. Hann giftist Ingrid Agneta Karlsson í Bern-musterinu í Sviss í október 1969. Þau eiga átta börn saman. Öldungur og systir Malm búa í Gautaborg, Svíþjóð.
Til marks um hinn vaxandi meðlimafjölda kirkjunnar í Evrópu, þá voru fjórir leiðtogar til viðbótar tilnefndir frá Wales, Englandi, Þýskalandi og Svíþjóð á aðalráðstefnunni í Salt Lake City, Utah, USA.
R.(Sonny) DONALDSON, 52, Denbigshire, Wales; samræmingarstjóri Fræðsludeild kirkjunnar; þjónar nú sem fyrsti ráðgjafi í ráði trúboðsskólans á Englandi; fyrrverandi biskup, háráðsmaður, meðlimur í stikuforsætisráði og stikuforseti. Eiginkona, Christine; fjögur börn
CHRISTIAN FINGERLE, 42 ára, Usingen, þýskalandi; svæðisframkvæmdastóri Fræðsludeildar kirkjunnar; þjónar nú sem deildartrúboðsleiðtogi; fyrrverandi biskup, meðlimur í greinarforsætisráði, greinarforseti, háráðsmaður og stikuforseti. Eiginkona, Sibylle Evelyn; fimm börn.
R. INGVAR OLSSON, 61 árs, Haninge, Svíþjóð; musterisskrásetjari, Stokkhólms-musterinu í Svíþjóð; þjónar nú sem ættfræðileiðbeinandi; fyrrverandi biskup, háráðsmaður; svæðisfulltrúi; meðlimur í stikuforsætisráði og stikuforseti. Eiginkona, Barbro Anita Kristina; tíu börn.
CRAIG T. WRIGHT, 42 ára, Suffolk, Englandi; aðgerðaframkvæmdastjóri Liftshare; nýlega leystur af sem biskup Corleston-deildar, Norwich-stiku, Englandi, fyrrverandi biskup og stikuforseti. Eiginkona, Joanne Marie; fjögur börn.
Þrír aðrir leiðtogar frá Evrópusvæðinu luku starfi sínu og voru leystir frá þjónustu. Þeir eru öldungar Frerich J. Görts, Christian H. Kleijweg og Johann A. Wondra.