Fréttir - 25.05.2010 |
Æðsta forsætisráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur tilkynnt dagsetningar að opnu húsi fyrir almenning og vígslu hins næstum fullbyggða Kyiv-musteri í Úkraínu. Almenningi verður boðið að heimsækja Kyiv-musterið á opnu húsi sem verður frá laugardeginum 7. ágúst 2010 til og með laugardagsins 21. ágúst 2010 (þó ekki á sunnudögum). Musterið verður formlega vígt sunnudaginn 29. ágúst 2010. Vígsluathafnirnar verða alls þrjár.
Kyiv-musterið í Úkraínu er hið fyrsta í röðinni í Austur-Evrópu og hið 11. í röðinni á meginlandi Evrópu. Það mun þjóna nærri 31.000 meðlimum kirkjunnar í 13 Evrópu löndum. Önnur musteri kirkjunnar í Evrópu eru staðsett í Bern, Sviss (vígt 1955); London, Englandi (1958); Freiberg, Þýskalandi (1985); Stokkhólmi, Svíþjóð (1985); Frankfurt, Þýskalandi (1987); Preston, Englandi (1998); Madrid, Spáni (1999); Hague, Hollandi (2002); Kaupmannahöfn, Danmörku (2004); og Helsinki, Finnlandi (2006). Tilkynnt var í október 2008 um musteri sem byggja á í Róm á Ítalíu.
Síðari daga heilagir hafa þá venju að hafa opið hús fyrir almenning í musterum sínum áður en þau eru vígð. Búist er við að þúsundir gesta komi í musterið á opið hús til að skoða það og kynna sér þær trúarathafnir sem þar fara fram.
"Við gleðjumst yfir því að geta boðið vinum okkar og nágrönnum að skoða musterið og kynna sér betur helga innviði þess," sagði öldungur Wolfgang H. Paul, forseti kirkjunnar á Austur-Evrópusvæðinu. Við vitum að margir hafa gengið fram hjá musterinu á byggingartíma þess og velt fyrir sér tilgangi þess. Brátt getum við boðið það velkomið í musterið og útskýrt hvers vegna musterið er kunnugt sem hús Drottins."
Musteri Síðari daga heilagra eru frábrugðin samkomuhúsunum eða kapellunum þar sem meðlimir koma saman til tilbeiðslu á sunnudögum. Musterin eru "hús Drottins," þar sem kenningar Krists eru staðfestar með hjónabandi, skírn og öðrum helgiathöfnum sem sameina fjölskyldur um eilífð. Kirkjumeðlimir læra meira um tilgangs lífsins og gera sáttmála um að fylgja Jesú Kristi og þjóna meðbræðrum sínum.
Þegar musterið hefur verið formlega vígt, er það opið þeim meðlimum kirkjunnar sem eru virkir þátttakendur í trúnni - ólíkt hinum þúsundum samkomuhúsa kirkjunnar sem opin eru öllum til almennrar þjónustu á sunnudögum, hver sem trú þeirra kann að vera.
Thomas S. Monson forseti talaði til allrar kirkjunnar í október 2009 og sagði: "Við höldum áfram að reisa musteri. Við viljum að eins margir meðlimir og mögulegt er geti sótt musterið heim án þess að þurfa að ferðast langar vegalengdir. Í heiminum öllum búa um 83 prósent meðlima í innan við 320 kílómetra fjarlægð frá musteri. Sú prósenta mun halda áfram að hækka er við reisum fleiri ný musteri um heiminn."
Gordon B. Hinckley forseti, fyrrverandi heimsleiðtogi kirkjunnar, tilkynnti um byggingu Kyiv-musterisins í Úkraínu 20. júlí 1998. Fyrsta skóflustungan að byggingu musterisins var tekin 23. júní 2007. Þegar það verður tilbúið verður það 134. musterið sem kirkjan starfrækir.
Formlegt musterisstarf mun hefjast í Kyiv-musterinu í Úkraínu mánudaginn 30. ágúst 2010.