Fréttir - 23.07.2008 |

Trúboðar frá Missouri St. Louis, Illinois Peoria, og Illinois Nauvoo trúboðum svöruðu kalli eftir sjálfboðaliðum og vinna saman í Quincy, Illinois. Þeirra hjálp kemur næstum 170 árum eftir að íbúar í Quincy veittu undirokuðum Síðari daga heilögum skjól.
Íbúar í bænum Quency í Illinois fylki veittu fyrir um 170 árum síðan undirokuðum Síðari daga heilögum skjól eftir að þeir höfðu farið yfir Mississippi ánna eftir að hafa flúið Missouri. Í dag eru trúboðar Síðari daga heilagra á vissan hátt að endurgjalda greiðann er þeir hjálpa til í borginni, sem útlit er fyrir að verði fyrir því mikla flóði sem hefur valdið eyðileggingu í mið-vestur hluta Bandaríkjanna.
Trúboðar Síðari daga heilagra frá Missouri St. Louis, Illinois Peoria og Illinois Nauvoo trúboðum svöruðu kalli eftir hjálp og byrjuðu að vinna í Quincy þann 18. júní. Þeir tóku einnig þátt í að fylla poka af sandi í borginni Keokuk, Iowa, og við Hunts flóðgarðinn sem er staðsettur á milli borganna tveggja og verndar Keokuk.
Þessi þjónusta var bara ein af mörgum sem Síðari daga heilagir tóku þátt í á sögulega svæðinu í kringum Nauvoo, Illinois.
Kirkjuþegnar, þar á meðal Þjóðdanshópur BYU, Hinir ungu listamannatrúboðar og systur trúboðar sem eru í borginni hjálpuðu til í Nauvoo og nálægðum svæðum í byrjun júní. Starfsmenn og trúboðar sem vinna fyrir Nauvoo Restoration Incorporated — sem sér um Síðari daga heilagra minnisvarða og önnur slík verkefni í Nauvoo— og eldri trúboðar frá Illinois Nauvoo trúboðinu hjálpuðu einnig til.
Þessir hópar unnu í sameiningu að því að fylla poka af sandi sem voru síðan settir við hið sögufræga Nauvoo hús sem var byggt í opinberri framkvæmd sem hálfgert hótel undir stjórn Joseph Smith er sett hafði 144 handskrifaðar blaðsíður Mormónsbókar í einn hornsteininn. Eftir píslarvættisdauða Josephs og fyrir greftrun þá var lík hans tekið úr Mansion húsinu og sett í Nauvoo húsið. Nauvoo húsið er nú í eign Samfélags Krists (e. Community of Christ) kirkjunnar, sem var áður þekkt sem Endurskipulagða kirkja Jesú Krists.
Sjálfboðaliðarnir veittu einnig þjónustu í Niota sem er lítill nálægur bær, sagði Donna Whisenant, sem þjónar sem almannatengsla trúboði í Nauvoo ásamt eiginmanni sínum Vern.
Lachlan Mackay, sem er yfirmaður sögulegra staða innan Samfélags Krists kirkjunnar, sagðist hafa vaknað upp við það að Nauvoo húsinu yrði ógnað af hækkandi yfirborði Mississippi árinnar. Verra var að hann hafði ekki neina áætlun um hvernig vernda mætti húsið.
Eftir að hafa unnið með stofnunum yfirvalda, samfélagsins og Síðari daga heilgara náðist að styrkja nægilega varnargarðinn sem var á bakvið Nauvoo húsið. Kirkjan flutti 115 rúmmetra af sandi að sögufræga húsinu og þar settu Þjóðdanshópur BYU sandinn í poka.
„Þetta var sérstakt tækifæri til að vinna saman með vinum við að varðveita Nauvoo,“ sagði Brian Watson frá Montana. „Þótt það hafi verið heitt, skítugt og smávegis rigning þá setti okkar litli hópur sand í hundruði poka með bros á vör og uppfull af orku. Við áttum meira að segja eftir næga orku til að koma fram um kvöldið með fulla dagskrá af sýningu okkar.“
Kelsie Wagstaff frá Holladay, Utah, tók undir þetta: „Mér fannst ég vera heppin að fá að hjálpa samfélaginu undirbúa sig fyrir flóðin og vernda eignir Samfélags Krists sem Joseph Smith átti þátt í að byggja.“
Á sama tíma og að beiðni John McCarty borgarstjóra Nauvoo, fóru Hinir ungu listamannatrúboðar, þar á meðal Nauvoo látúnsbandið sem treður upp í borginni á sumrin, nokkrir eldri trúboðar og NRI hjálparstofnunin til Niota.
„Ég hef þróað með mér djúpan kærleik gagnvart fólkinu í Niota og nálægðra svæða. Þau leggja svo hart að sér og búa á fallegum heimilum og bóndabæjum. Þetta hefur verið dásamlegt tækifæri til þess að sýna þeim kærleika okkar með því að setja sand í poka til að undirbúa fyrir flóðin,“ sagði systir Mandi Jensen, trúboði frá St. Ignatius, Montana.
Trúboðar ásamt kirkjuþegnum unnu einnig við að setja sand í poka í samfélögum í Iowa, Wisconsin og Indiana fylkjum.