Fréttir - 21.01.2009 |
Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu var boðið að senda fulltrúa í forsetaembættisvígslu Barack Obama sem fór fram þann 20. janúar. Voru það Dieter F. Uchtdorf forseti, annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu og öldungur M. Russell Ballard, í Tólfpostulasveitinni sem sóttu embættisvígsluna.
Þessir tveir leiðtogar, sem Thomas S. Monson forseti bauð að verða fulltrúar kirkjunnar, voru viðstaddir eiðvígsluna og bænarsamkomuna National Prayer Service sem haldin var í dómkirkjunni National Cathedral í Washington 21. janúar.
„Það er ætíð heiður fyrir kirkjuna að senda fulltrúa í embættisvígslu nýs forseta,“ sagði Monson forseti. „Við færum Obama, hinum nýkjörna forseta, okkar bestu óskir og biðjum þess að blessanir himnesks föður verði með honum og stjórn hans.“