Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 10.06.2010

 

Kirkjuleiðtogar gefa grænt ljós á nýtingu sólarorku við byggingahönnun

Fyrsta samkomuhúsið sem knúið er sólarorku, í Farmington, Utah.

Iðnaðarmenn setja sólarorkuþakplötur á samkomuhúsið.

Yfirbiskupsráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu kynnti hönnun umhverfisvænna bygginga kirkjunnar í fyrsta samkomuhúsi norðurhvels, þar sem sólarorkan er nýtt. Hin nýja bygging í Farmington, Utah, er táknræn fyrir þá stöðugu framþróun sem á sér stað í byggingahönnun kirkjunnar.

Sólarorkuþakplöturnar geta framleitt nægilegt rafmagn til að fullnægja algjörlega orkunotkun byggingarinnar, sem sparar um 6.000 dollara árlega í orkukostnað. 

"Þetta snýst um að byggja stað tilbeiðslu sem er í samhljóm við umhverfið," sagði H. David Burton, yfirbiskup Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, sem ber ábyrgð á húsnæðismálum kirkjunnar.  "Við höfum í áratugi leitað nýrra leiða til að nýta umhverfisvænar lausnir í samkomuhús okkar, sem sýna að við séum skynsamir ráðsmenn sköpunar Guðs." 

Samkomuhúsið í Farmington er hluti af nýju tilraunaverkefni sem sýnir að kirkjan helgar sig stöðugt góðri ráðsmennsku og varðveislu. Fjögur önnur frumgerð samkomuhús í Eagle Mountain, Utah, Apache Junction, Arisóna, Logandale, Nevada og Pahrump, Nevada eru einnig í byggingu. Auk samkomuhússins í Farmington, verða samkomuhúsin í Apache Junction og Logandale einnig sólarorkuknúin.

Þegar byggingu þeirra er lokið verða þau vottuð af LEED (frumkvöðlar í hönnun umhverfisvænnar orku); sem er æðsti byggingarstaðall iðnaðarins. Farið var með fjölmiðlafólk í kynningarferð um samkomuhúsið í Farmington til að greina frá nokkrum orkuvarðveisluþáttunum, meðal annars hita- og kælikerfinu, sem tengist sólarorkubúnaðinum, landslagshönnuninni og pípulagningakerfinu, sem sparar vatnsnotkun yfir 50 prósent, og sólarvarnargluggunum 70 sem hindra 78 prósent sólarupphitun.  

"Byggingar þessar eru hannaðar til að standast í fjölmörg ár," sagði Dean Davies, framkvæmdastjóri húsnæðisdeildar kirkjunnar, "þótt þær kunni að kosta meira í byggingu, eru þær betri kostur fyrir okkur og umhverfið sökum lægri rekstrarkostnaðar og lengri líftíma."  

Í raun hefur um 75 prósent þeirrar tækni sem vottuð er a LEED verið nýtt í núverandi byggingum kirkjunnar um margra ára skeið.  

"Ég álít vissulega að við höfum bætt um betur," sagði Davies. "Við notum nýjustu tækni í byggingahönnun okkar, allt frá tölvuhönnun til efnisnotkunar, við orkuvæðingu."  

Kirkjubyggingar í Lettlandi eru til að mynda með geislahitagólfum til að nýta orkuna betur á köldum vetrarmánuðunum, samkomuhúsið í Vernal, Utah, var endurbyggt og breytt í Vernal-musterið með því að endurnýta byggingarefni þess og varðveita söguna og samkomuhúsið í Susanville, Kaliforníu, er hitað með jarðvarma sem fenginn er úr heitri uppsprettu á lóðinni. 

Nýjasta tækni nær einnig yfir landslagshönnun. Rakamælar eru tengdir gervihnöttum við mörg samkomuhúsanna víða um land til að fylgjast með veðrinu og í rigningu lokast fyrir úðunarkerfi kirkjunnar.  Jarðuppsprettur eru jafnvel nýttar til hitunar eða kælingar skrifstofubyggingarinnar í Salt Lake City.  

Jared Doxey, framkvæmdastjóri arkítektúr og byggingaverkfræði kirkjunnar, sagði: "Mikilvægt er að byggingar séu hannaðar þannig að þær endurspegli samfélagið sem þær eru í." Hann bætti við: "Nýting er eðlilegur hluti af skipulagsferlinu. Áhugi okkar hefur alltaf verið sá að fylgja því besta í byggingaiðnaðinum. Við viljum tileinka okkur allt það besta. Ef til er ný tækni sem dregið getur úr kostnaði við eignahald og er skynsamleg, viljum við nýta okkur hana." 

Það er mikilvægt, því kirkjan rekur um 17.000 samkomuhús og byggir eða tekur í notkun nýtt samkomuhús sérhvern dag vikunnar. Burton biskup sagði: "Eftir því sem kirkjan heldur áfram að vaxa um heiminn, og þörfin hefur aldrei verið meiri fyrir samkomuhús, verðum við að tileinka okkur skynsamlega byggingaraðferðir til að fullnægja bæði umhverfinu og meðlimum okkar. 

"Hér er um frumkvæði meðlima að ræða," sagði Davies, "sem sýnir hvað þeim finnst um samfélagið sem þeir búa í."