Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 12.09.2008

 

Kirkjuforsætisráð kallað fyrir Evrópu

Þegar hinn fjögurra stjörnu hershöfðingi, Robert C. Oaks, kemur á skrifstofuna sína dag hvern í Frankfurt am Main, er hann ekki íklæddur einkennisbúningi. Langt er síðan þessi yfirmaður í flugher Bandaríkjanna sagði skilið við herinn. Fyrir átta árum, er hann var 64 ára, helgaði hann sig fullri þjónustu í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari dag heilögu („kirkju mormóna“). Frá upphafi ágústmánaðar á þessu ári hefur hann gegnt embætti forseta Evrópu í kirkjunni.  

Sameining stjórnsýslu vestursvæðis og miðsvæðis Evrópu, er forseti Oaks tók við embætti sínu, gerir það að verkum að hann er nú forseti í forsætisráði sem fer með málefni allrar Evrópu.  Aðeins Tyrklandi og fyrrum Austur-Evrópu er stjórnað frá Moskvu. Auk Oaks forseta er hið þriggja manna forsætisráð í Frankfurt skipað Þjóðverja og Frakka. Allar prestskyldur eru framkvæmdar af leikmönnum, sem er að fyrirmynd Nýja testamentisins. Enginn þessara þriggja hefur stundað guðfræðinám. Erich Kopischke, 51, starfaði áður í tryggingageiranum. Gérald Caussé, 45, starfaði áður í marvælageiranum. Báðir eru þeir titlaðir „ráðgjafar”.

Forsætisráð kirkjunnar í Evrópu ber ábyrgð á um 450.000 kristnum, sem fundið hafa sitt andlega heimili meðal 1.300 safnaða kirkjunnar. Allir þessir söfnuðir eru undantekningalaust leiddir af ólaunuðum sjálfboðaliðum, sem þó njóta stuðnings forsætisráðsins í Evrópu og starfsfólks þess.

Laugardaginn 13. september 2008 verður stjórnsýsluskrifstofa kirkjunnar opin almenningi í fyrsta sinn. Á þessu opna húsi, frá kl. 10.00 til 18.00 geta gestir skoðað sig um í stjórnsýslubyggingunni að Porthstraße 5-7 og einnig í aðliggjandi samkomuhúsi að Eckenheimer Landstraße 262-264. Meðan á leiðsögn stendur verður spurningum svarað um trúaratriði Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, sem er hlutafélg samkvæmt ríkislögum fylkisins Hesse.

Á liðnu sumri var útlit stjórnsýslubyggingarinnar og samkomuhússins bætt og lagað og gert meira aðlaðandi, og upphitunarkerfi bygginganna gert umhverfisvænna Byggingarnar eru aðeins í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá lestarstöðinni Marbachweg/Sozialzentrum.

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er kirstin kirkja, með yfir 13 milljónir meðlima um heim allan, og hefur höfuðstöðvar í Salt Lake City, þar sem Vetrarólympíuleikarnir voru haldnir 2002. Kirkjan hefur verið í Evrópu frá 1837.