Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 08.09.2009

 

Kirkjuþegnar veita aðstoð vegna flóða

Kirkjuþegnar í Taipei í Taiwan, hjálpa til við að setja farm af birgðum í flutningabíl áður en haldið er til fórnarlamba fellibylsins.

Trúboðar úr Taichung Taiwan trúboðinu hjálpuðu til í Qishan, Taiwan, stuttu eftir fellibylinn.

Fellibylurinn Morakot skaut sér niður á heimili 23 milljóna manna á Kyrrahafseyjum þann 8. ágúst síðastliðinn sem var feðradagurinn í Taiwan. Með þessum stóra fellibyl kom mesta úrkoma sem komið hefur í 50 ár.

Michael Hoer, forseti Taiwan Taichung trúboðsins lýsti þeim rúmlega tveim metrum af úrkomu sem fellibylurinn færði með sér sem „jafn mikið og meðalúrkomu fjöggurra ára í Utah.“

Úr varð hrikalegt skyndiflóð og skriðuföll sem grófu heilu þorpin, gerðu marga heimilislausa og orsakuðu allt að 500 dauðsföllum. Þann 19. ágúst var staðfest að 136 hefðu látist og 386 væru týndir. Enn er ekki vitað um marga sem búa í fjarlægðum fjallaþorpum.

Þegar þessi grein var skrifuð var ekki vitað um neina kirkjuþegna meðal hinna látnu þrátt fyrir að heimili fjölda þeirra hafi skemmst verulega. Ekki urðu neinar meiriháttar skemmdir á kirkjubyggingum og eru allir trúboðarnir heilir á húfi.

Tugir trúboða frá Taichung trúboðinu ásamt hundruði kirkjuþegna hvarvetna í Taiwan fóru í „hjálpandi hendur mormóna“ vesti og þjónuðu í nokkra daga við að hreinsa leðju úr heimilum og fyrirtækjum. Hreinsunarvinnan mun halda áfram næstu vikurnar.

Öldungur Dennis Sparrow, mannúðartrúboði, sagði að moldarleðjan væri sumstaðar 1 til 1,5 metra djúp.

Öldungur Joseph Chung, svæðishafi Sjötíu fyrir Mið- og Suður-Taiwan, heimsótti svæðið og fundaði með yfirvöldum og prestdæmisleiðtogum á staðnum til að undirbúa frekari aðstoð frá kirkjunni.  Forsætisráð Asíusvæðisins hefur beðið öldung Chung að stýra aðstoðinni í Taiwan.

Öldungur Stanley Wan, svæðishafi Sjötíu og deildarstjóri velferðardeildar kirkjunnar fyrir Asíu flaug til Taiwan frá bækistöð sinni í Hong Kong til að aðstoða við gerð endurreisnaráætlunar.

Hoer forseti sagði: „Fyrstu vikuna eftir fellibylinn hjálpuðu öldungar og systur trúboðar okkar til við að hreinsa rúmlega 40 heimili og fyrirtæki í bænum Qishan.

Á sama tímahöfðu margir flutningabílar fullir af hjálpargögnum verið keyrðir frá höfuðstöðvum kirkjunnar í Taipei, Taiwan en þar var fellibylsins varla vart. Samkomuhús eru notuð sem vinnustöðvar fyrir birgðir og hjálpandi hendur mormóna verkefnisins.