Fréttir - 10.11.2009 |

Mannskæð flóðbylgjan færði mikið magn af vatni upp á land og strendur. Hér sést strandareign á Amerísku Samóaeyjum líkjast einna helst sundursprengdu stríðssvæði. Mikið af hjálparstarfi kirkjunnar á svæðinu mun fara í að endurbyggja heimili sem fólk missti í hamförunum.

Skemmdir og rusl af völdum flóðbylgjunnar sem sést á strandlengjum Amerísku Samóeyja sýnir eyðileggjandi kraftinn sem brast á Samóaeyjar og hluta af Tongaeyjum þann 29. september vegna jarðskjálftans og síðan flóðbylgjunnar sem fylgdi í kjölfarið. Kirkjuþegnar halda áfram að þjóna hinum þurfandi á eyjunum.
Nýlega heimsótti Tad R. Callister svæðisforseti Kyrrahafssvæðisins heimili nokkurra kirkjuþegna á Samóaeyjum en flóðbylgja olli þar mikilli eyðileggingu þann 29. september síðastliðinn.
Á sérhverju heimili var biskup eða stikuforseti kirkjunnar viðstaddur, að veita böguðu fjölskyldunum andlega og stundum stundlega aðstoð, sem bauð hann velkominn. Slíkur kærleikur var traustvekjandi tákn fyrir Callister forseta sem sýndi að verið var að hlúa að þörfum og að bænum er í raun svarað. Líkamlegu og tilfinningalegu örin sem hamfarirnar skildu eftir sig munu vara allt þetta líf. Sársaukinn er mikill – en einnig er von og lækning á sér stað er fólk vinnur og tilbiður saman.
Þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu á Samóaeyjum „eiga óvenjulega trú á endurreisninni,“ sagði öldungur Callister af hinum Sjötíu. „Þau hafa markverða trú á að Guð sé góður. Þau eru gædd óvenjulegri seiglu og getu til þess að ná sér fljótt á strik aftur.
Þau hafa snúið sér að Guði í stað þess að hörfa frá honum.“
Sannarlega færist lífið smám saman í viku hverri aftur í eðlilegt horf á þeim svæðum sem flóðbylgjan hafði mest áhrif á. Þessi svæði eru meðal annars á Samóaeyjum, Amerísku Samóaeyjum og eyjunni Niuatopatupu sem er hluti af Tongaeyjum. Aðgengi að drykkjarvatni er ennþá takmarkað á sumum svæðum og þurfa kirkjuþegnar og aðrir á þeim svæðum að reiða sig á vatn sem er keyrt til þeirra á vörubílum. Hins vegar hafa allir, samkvæmt öldungi Brent H. Nielson af hinum Sjötíu og öðrum ráðgjafa í forsætisráði Kyrrahafssvæðisins, aðgang að matvælum.
„Almennt séð eru tilfinningar kirkjuþegna jákvæðar,“ sagði hann.
Tylft kirkjuþegna á svæðinu hafa misst fales sín – hefðbundin heimili á Samóaeyjum sem hafa enga veggi. Callister forseti sagði Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu áforma að aðstoða við byggingu á 50 slíkum fales, þar á meðal nokkrum sem munu hýsa fórnarlömb flóðbylgjunnar sem eru ekki kirkjuþegnar. Kirkjan mun útvega byggingarefni „og munu heimamenn útvega mannaflann fyrir vinnuna sjálfa,“ sagði hann.
Tvær stikumiðstöðvar á austurhluta Samóaeyja skemmdust illa af völdum vatns og aurs. Kirkjuþegnar þessara stika hafa fundið annan stað til að hittast og tilbiðja saman. Þrátt fyrir að lúðurinn á styttunni af englinum Moróní hafi brotnað af á Apia Samóa musterinu í skjálftanum þann 29. september var ekkert rof á starfsemi musterisins. Musterið er enn athvarf skjóls og huggunar fyrir kirkjuþegna á Samóaeyjum, sagði Callister forseti.
Margir kirkjuþegnar sem búa á þeim svæðum sem urðu illa úti eru bændur með litlar plantekrur sem gefa af sér matvæli fyrir fjölskyldu þeirra sem og umfram magn sem selt er. Til allrar hamingju eru þessar plantekrur staðsettar langt frá strandlengjunni og skemmdust ekki í flóðbylgjunni. Því hefur hagkerfið á eyjunum ekki orðið fyrir miklum áhrifum.
Það kom Callister forseta þægilega á óvart hversu vel ættingjar þeirra fórnarlamba sem eru þegnar kirkjunnar hafa brugðist við í kjölfar ófaranna með því að veita tilfinningalega og andlega huggun. Kirkjan mun einnig halda áfram að veita þeim er þurfa faglega ráðgjafarþjónustu, þar á meðal börnum, vegna hamfaranna.
Öldungur Nielson sagði að góðhjarta fólk haldi áfram að spyrja hvernig það geti aðstoðað fórnarlömb flóðbylgjunnar á Suður-Kyrrahafi. Hann mælti með að fólk léti af hendi rakna til mannúðarsjóðs kirkjunnar. Á þann hátt er hægt að þjóna hinum hjálparþurfandi á sem skilvirkastan og bestan hátt.