Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 14.10.2008

 

Kirkjan sendir næringarefnið atmit til Eþíópíu

Mariama, 10 mánaða gömul, þyngdist um tæplega 1 kíló fyrstu vikuna sem hún borðaði næringarefnið atmit.

Kirkjan ráðgerir að senda á næstu þremur mánuðum til Eþíópíu meira en 540 tonn (1,4 milljón pund) af atmit, sérstöku fæði fyrir þá sem líða fyrir alvarlegan næringarskort, og er ráðgert að síðasta sendingin komi til landsins í nóvember 2008 en þar hafa verið miklir þurrkar.


Að minnsta kosti 14 milljónir Eþíópíumanna þarfnast matar eða fjárframlaga.  Þótt ástandið í landinu stafi aðallega af miklum þurrkum sem eyðilögðu alla voruppskeruna sums staðar, hefur landið einnig liðið fyrir hátt matvælaverð, ýmsar hörmungar, og uppreisn á Sómali svæðinu sem hindraði matvæladreifingu.
Stjórnarerindrekar í Eþíópíu sem minnast verulegrar hjálpar kirkjunnar í hungursneyðinni 2003, hafa sent beiðni um hjálp.  Kirkjan brást við með því að skipuleggja sendingu meira en 30 gáma af atmit til landsins. Frá því seint í ágúst og með áætlun um lokasendingu í október, gerir kirkjan ráð fyrir að senda 5 gáma á viku hverri til landsins, en það tekur hverja sending sex til átta vikur að ná til áfangastaðarins.  Eins og 2003 vinnur kirkjan í nánu samstarfi við Project Mercy, hjálparsamtök óháð stjórnvöldum sem hafa reynslu í Eþíópíu.  Í nánu samstarfi við stjórnvöld í Eþíópíu mun Project Mercy annast um dreifingu atmit næringarefnisins.


Atmit er blanda af haframjöli, þurrmjólk, sykri, salti, vítamínum, og steinefnum sem blandað vatni og matarolíu myndar graut sem líkist þunnum hafragraut.  Það hefur reynst árangursríkt úrræði til að fæða þá sem líða af alvarlegum næringarskorti.


Kirkjan sendi fyrst matvæli til Eþíópíu 1985 þegar landið leið allt árið fyrir hungursneyð sem varð meira en einni milljón manna að bana.  Í matarskortinum í Eþíópíu árið 2000, var korn frá búgörðum í eigu kirkjunnar á Englandi sekkjað af meðlimum kirkjunnar og sent til landsins, og 2003 lagði kirkjan til meira en 5000 tonn af viðbótarfæðuefnum til verst settu svæðanna.