Fréttir - 18.01.2010 |

Nate Leishman, yfirmaður neyðarnefndar mannúðarmála hjá kirkjunni segir frá hjálpargögnum sem send voru.
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sendi þegar í stað læknateymi og sjúkravörur til aðstoðar fólki sem slasaðist í öfluga jarðskjálftanum sem varð á Haíti þann 12. janúar s.l. Læknarnir settu upp bráðabirgða læknisaðstöðu í samkomuhúsi kirkjunnar í Port-au-Prince. Samkomuhúsið skemmdist mjög lítið í jarðskjálftanum.
„Okkur er ljóst að mesta þörfin er fyrir læknisaðstoð. Heilu spítalarnir hafa eyðilagst. Sjúkravörur eru af skornum skammti. Því er þessi bráðabirgða læknisaðstaða mikil bót,“ sagði öldungur Francisco J. Viñas, svæðisforsetinn sem hefur umsjón með kirkjunni á Haíti.
Læknarnir eru þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og bjóða fram aðstoð sína sem sjálfboðaliðar til hjálpar þeim á Haíti er sárlega þarfnast læknishjálpar.
Einnig er mikil þörf á vatni, húsaskjóli og mat vegna jarðskjálftans. Kirkjan hefur brugðist við þessari þörf með því að senda vistir auk læknisaðstoðar. Nú þegar hafa nokkrar sendingar borist til Haíti og eru fleiri á leiðinni.
Tvær flugvélar, hvor með rúmlega 36.000 kg af vistum frá kirkjunni, flugu til Haíti um síðustu helgi. Meðal þess sem sent var eru 15.000 flöskur af síunarbúnaði, en hver flaska getur hreinsað rúmlega 1500 lítra af vatni. Einnig var í vistum þessum matvæli, teppi, hreinlætisvörur, segldúkar, tjöld og önnur nauðsynjarvara. Flugvélarnar flugu frá Denver og Miami. Viðbótar hreinlætisvörur og aðrar vistir voru sendar frá Dóminíska lýðveldinu með flutningabíl og komu til Haíti s.l. fimmtudag.
Allir trúboðar kirkjunnar sem þjóna í Port-au-Prince trúboðinu á Haítí eru óhultir, sagði Lynn Samsel, yfirmaður Viðbragðsdeildar kirkjunnar 13. janúar s.l.
Nokkur samkomuhús kirkjunnar í Port-au-Prince eru nú notuð sem tímabundin aðstaða fyrir fólk sem hefur týnt ættingjum sínum og þarf á hjálp að halda.
„Daglegt líf hefur algjörlega stöðvast á Haíti. Okkar stærsta markmið er að koma því aftur á. Við munum einbeita okkur að því að hjálpa fólki að verða sjálfbjarga á ný,“ sagði öldungur Viñas.
Kirkjan fylgist áfram með þróun mannúðarmála á Haíti til að meta hvernig best sé hægt að veita áframhaldandi aðstoð.
Saga kirkjunnar á Haíti er ekki ýkja löng. Fyrstu skírnirnar fóru fram árið 1978 í þessu ríki Vestur-Indíu. Grein kirkjunnar var stofnuð síðar sama ár og árið 1982 var Haíti umdæmið stofnað.
Árið 1983 blessaði Thomas S. Monson forseti Haíti þegar hann þjónaði í Tólfpostulasveitinni. Ári síðar var Haíti Port-au-Prince trúboðið stofnað. Fyrsta stikan á Haíti, Port-au-Port stikan, var stofnuð árið 1997. Tvær stikur eru nú starfandi á Haíti.
Rúmlega 15.,000 kirkjuþegnar búa á Haíti.