Fréttir - 04.05.2008 |
Gordon B. Hinckley fyrrverandi forseti kirkjunnar hefur sagt:
„Mig langar að taka afdráttarlaust fram að þessi kirkja hefur ekkert að gera með þá sem stunda fjölkvæni. Þeir aðilar eru ekki þegnar þessarar kirkju. Flestir þeirra hafa aldrei verið þegnar kirkjunnar.“
Spurning:
„Við erum að sjá hundruð frétta um allan heim sem fjalla um nýlega atburði er áttu sér stað í Texas og í sumum fréttunum er nefnt að þeir sem stundi fjölkvæni séu Mormónar. Segðu mér hvað kirkjunni finnst um þessa fréttamennsku sem fram hefur komið hingað til.“
Mike Otterson, fjölmiðlafulltrúi kirkjunnar:
„Það hefur alltaf truflað okkur að fólk vísi til þessara fjölkvænishópa sem Mormóna, hvort sem það er gert í fréttamiðlum eða hjá fólki almennt. Ég verð þó að segja að á síðustu vikum eða síðan fréttin um áhlaupið á fjölkvænishópinn í Texas barst út hafa fjölmiðlar verið nokkuð vandaðir. Og sérstaklega í Bandaríkjunum. CNN, Associated Press, USA Today og National Public Radio hafa allir verið mjög vandvirkir í að gera greinarmun á Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilög sem í eru 13 milljónir þegnar og er að finna um heim allan – sú fjórða stærsta í Bandaríkjunum – og þessum litlu laumulegu fjölkvænis samfélögum.
Ég vildi að almenningur gerði slíkan greinarmun því hreint út sagt þá er ennþá ruglingur í gangi jafnvel þótt það sé rúm öld síðan kirkjan, kirkjan okkar, aflagði fjölkvæni. Það var árið 1890 sem kirkjan aflagði opinberlega fjölkvæni og þá, jafnt sem í dag, voru allir þeir þegnar sem reyndu að stunda fjölkvæni útilokaðir frá kirkjunni – við höfum ekkert umburðarlyndi gagnvart fjölkvæni. En í huga almennings þegar fólk hugsar um hugtakið Mormóni, eins og þú veist, hugsar það um trúboða sem banka á dyr eða það hugsar um Laufskólakór Mormóna eða það hugsar kannski um musteri Mormóna á Musteristorginu. Fólkið hefur því ákveðna ímynd, hugtakið Mormóni hefur ákveðinn skilning eða þýðingu í huga þeirra og stundum þegar fjölmiðlar nota hugtakið Mormóni til að lýsa þessum hópum, ef þeir byrja að kalla þá grundvallartrúa Mormóna eða Mormóna fjölkvæni, þá ruglar það almenning mjög mikið í ríminu. Í raun er þetta mjög pirrandi því við höfum reynt í gegnum árin að gera mjög skýran og góðan greinarmun á okkur og þeim sem stunda fjölkvæni.
Sumir alþjóðafjölmiðlar eru þó ennþá að ruglast í ríminu. Við höfum séð fréttir frá Rússlandi og við höfum séð fréttir frá Frakklandi, Agency France-Presse, franska frétta umboðið sem dæmi, sem hafa sýnt myndir af musterum okkar við hliðina á fréttinni um áhlaupið á fjölkvænishópinn í Texas. Þetta er í raun óafsakanlegt og það tók okkur þrjá daga að fá þá til að fallast á að fjarlægja myndina, sem þeir gerðu að lokum og einnig birtu þeir útskýringu. Við erum því ennþá að lenda í þessum ruglingi þótt flestir fjölmiðlar séu farnir að átta sig.
Ég hugsa að í huga almennings er ennþá „jæja, ert þetta þú?“ Eru þessar spurningar „eru þetta Mormónar eða ekki?“ Því vil ég koma því á hreint, á eins hreint og ég mögulega get, að Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, þessi alheims kirkja sem ég tilheyri, er boðar fagnaðarerindið á 90 mismunandi tungumálum, hefur þegna í nánast hverju landi, sem starfrækir Brigham Young háskólann og veitir mannúðarhjálp um heim allan gæti ekki verið meira öðruvísi en þessir litlu fjölkvænishópar sem er að finna dreifða í fjallasvæðunum í vestri, jafnvel upp til Bresku Kólumbíu. Ef fólk getur skilið að við lítum ekki út eins og þetta fólk, við klæðumst ekki eins og þetta fólk, við tilbiðjum ekki eins og þetta fólk, við trúum ekki því sama og þetta fólk og að hugtakið Mormóni ætti aldrei nokkurn tíma að vera notað til að lýsa þessum fjölkvænishópum. Ef við getum bara fengið þetta í gegn, ef við getum bara unnið þessa baráttu þá held ég að við höfum náð mjög langt.