Fréttir - 07.10.2007 |
Síðan 1985, hefur mannúðarverkefnum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu verið komið á í 160 löndum, og aðstoðin numið meira en 900 milljónum Bandaríkjadala og yfir 51.000 smálestum matvæla, 7.600 smálestum sjúkragagna, 69.000 smálestum af fatnaði og 5.700 smálestum af skólavörum.
Þrátt fyrir víðtæka skírskotun á alþjóðavettvangi, hefur Humanitarian Services kirkjunnar nýlega brugðist við óvenjulegri beiðni, beiðni um að leiða von inn í líf alvarlega veiks 17 ára pilts frá Roseville, Michigan. Andy Noble, sem fæddist með fóstur alkóhól heilkenni og þjáist af krampalömun og ólæknandi lungnasjúkdómi og fær oft köst, hefur safnað einkennismerkjum lögreglumanna og öryggisvarða hvaðanæva að úr heiminum. Safnið er orðið sýnileg minning um persónulega virðingu Andys og umhyggju fyrir opinberum starfsmönnum.
Larry Hendricks, slökkviliðsmaður frá Oakland, California, og formaður Oakland Firefighters Random Acts, hitti Noble á árinu 2003 og komst að því að safn Nobles með 15.000 einkennismerkjum var í plastpokum og kössum.
„Væri ekki skammarlegt ef hann sæi aldrei ævistarf sitt allt?“ spurði Hendricks.
Árum saman leitaði Hendricks leiða til að skipuleggja mætti safn Nobles, en hið mikla magn merkjanna gerði verkið næstum óframkvæmanlegt. Slökkviliðsmaðurinn, sem er meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, lagði loks til við Noble og móður hans, sem eru ekki mormónar, að veggteppi kynni að vera lausnin til að koma saman þessum mörg þúsund stykkjum á viðráðanlegan hátt. Með samþykki þeirra hafði Hendricks samband við Humanitarian Center til að fá ráðleggingar.
Mannúðarmiðstöðinni, kjarnanum í mannúðarþjónustu kirkjunnar, var komið á til að aðstoða við að undirbúa skyndihjálparaðstoð með birgðasendingum út um allan heim, þjálfa fólk sem þarfnaðist aukinnar starfshæfni sem leiðir til sjálfsöryggis, og til að bjóða fram þjónustutækifæri.
„Einkennismerkjaverkefnið er ólíkt öllu sem við höfum gert fram til þessa,“ útskýrir John Yancey, aðstoðarforstjóri Humanitarian Center. „Við töldum að það væri þess virði að hjálpa þessum pilti, og við höfum möguleikana til að gera það.“
Signe Jacobsen, fastatrúboði kirkjunnar sem þjónar í saumastofu Mannúðarmiðstöðvarinnar, tók að sér að bera ábyrgð á verkefninu. Þessi þrautreynda saumakona og sérfræðingur í bútasaumi áttaði sig fljótt á því að hið mikla magn merkjanna – nú um 17.000, og viðbætur enn að berast frá fólki út um allan heim – myndi ekki ganga upp sem efni í bútasaum.
„Jafnvel eitt einstakt teppi yrði allt of þungt þakið 50 eða 60 merkjum, og við höfðum þúsundir úr að spila,“ viðurkenndi Jacobsen.
Þess í stað, hannaði Jacobsen kerfi af flöggum, hvert þeirra um 70 sm breitt og næstum því 240 sm á hæð. „Þessi hönnun gerir okkur kleift að festa merkin í bak og fyrir, og áhorfendur geta séð um það bil 300 fullunnin flögg,“ sagði Jacobsen.
Hönnun Jacobsen felur í sér sex sérstök blá flögg, þar á meðal eitt sem heiðrar stofnanir sem komu að harmleiknum hinn 11. september 2001 í New York City. Til viðbótar verða öll lögreglumerkin fest á svart efni, en merki slökkviliðsmanna verða saumuð á rauðan grunn. Í hverjum undirflokki eru merkin staðsett í samræmi við lit, lögun og stærð. Þegar skipulagningu er lokið, er hvert merki vélsaumað á vandlega útmældan stað.
Flöggin verða fullbúin við lok september 2007 og gert er ráð fyrir að þau fari í sýningarferð út um Bandaríkin. Jacobsen vonar að flöggin minni almenning á hve mikilvægt hlutverk lögreglufólk og fólk sem veitir neyðarhjálp leikur við það verkefni að halda samfélaginu þægilegu og öruggu.