Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 10.10.2008

 

Kirkjan heldur áfram að byggja musteri um heim allan

Thomas S. Monson forseti.

Thomas S. Monson, forseti og leiðtogi Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, tilkynnti á 178. Aðalráðstefnu kirkjunnar að fimm ný musteri yrðu reist á næstunni.  Í dag eru 128 musteri starfhæf og önnur 17 eru á mismunandi byggingarstigum sem gerir 145 musteri í heildina.

Nýju musterin munu verða byggð á eftirtöldum stöðum: nálægt Kansas City, Philadelphia, Pennsylvania, Calgary Alberta í Kanada, Córdoba, Argentínu og Róm, Ítalíu.  Nákvæm staðsetning musteranna verður tilkynnt síðar.  Kirkjan hefur ekki tilkynnt svona mörg musteri á sama tíma síðan apríl 2000.

Staðsetning musteranna í Philadelphia og Kansas City endurspeglar stöðugan vöxt kirkjunnar í Bandaríkjunum sem nú þegar hefur að geyma nokkur tylft mustera.

Calgary musterið verður það áttunda í Kanada.  Í dag eru starfhæf musteri frá Halifax, Nova Scotia til Edmonton.  Einnig eru musteri á byggingarstigi í Vancouver.   Síðari daga heilagir settust að í Alberta nokkrum áratugum eftir fólksflótta sinn til Klettafjallana um miðja nítjándu öld.  Cardston Alberta musterið er sjötta musterið sem var reist eftir að landnemarnir komu til Salt Lake.
Musterið í Córdoba verður annað musterið í Argentínu en Buenos Aires musterið er nú þegar til staðar.  Með þessari tilkynningu munu verða 34 musteri í Rómönsku Ameríku.

Musterið í Róm á Ítalíu verður það fyrsta á svæðinu í kringum Miðjarðarhaf og það 12. í Evrópu.  Það mun koma til með að þjóna kirkjuþegnum frá mörgum löndum og draga mikið úr kostnaði og ferðatíma Síðari daga heilagra sem búa á þessu svæði.


Musteri Síðari daga heilagra eru öðruvísi en venjulegar kirkjubygginginar sem eru notaðar fyrir hefðbundnar guðsþjónustur á sunnudögum, fundum fyrir unglinga á virkum dögum og annað slíkt.  Þúsundir hefðbundna kirkjubygginga eru um heim allan og eru almenningur velkominn á allar samkomur.

Fyrir kirkjuþegna eru musteri helgustu staðirnir á jörðinni.  Musteri eru eingöngu notuð fyrir heilagar helgiathafnir eins og giftingar og leiðbeiningar sem miða að því að styrkja tengsl kirkjuþegna við Guð og náunga sinn.  Musterin er staður þar sem heilagleiki og friður ríkir, fjarlægður annríki heimsins, þar sem kirkjuþegnar geta gert formleg loforð og skuldbindingar við Guð.
Byggingarvinna mustera hefur verið hluti af sögu Síðari daga heilagra frá fyrstu dögum kirkjunnar.  Joseph Smith, fyrsti spámaður og forseti kirkjunnar, byggði musteri í Kirtland Ohio, Jackson sýslu Missouri og Nauvoo Illinois.

Nokkrum dögum eftir að landnemarnir komu í Salt Lake dalinn tilkynnti Brigham Young, arftaki Joseph Smith, staðsetningu Salt Lake musterisins og byggingarvinnan hófst stuttu síðar.  Flest musteri eru byggð á þremur til fimm árum í dag en það tók 40 ár að ljúka byggingu Salt Lake musterisins.
Einnig hafa dagsetningar á opnu húsi og vígsluathöfn næsta musteris, sem verið er að ljúka byggingu á, nýlega verið tilkynntar.  Musterið í Draper Utah, 129. musterið í heiminum, mun verða opið almenningi frá 15. janúar til 14. mars 2009.  Síðan munu verða haldnar 12 vígsluathafnir frá 20. til 22. mars.