Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 17.05.2009

 

Kirkjan gengur í lið með Biamba Marie Mutombo spítalanum

Vatn pumpast upp úr brunninum sem mun veita Biamba Marie Mutombo spítalann í Lýðveldinu Kongó stöðugt rennsli af hreinu vatni.

Ný samvinna á milli Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og Dikembe Mutombo stofnunarinnar lofar viðbótar vatnsforða fyrir Biamba Marie Mutombo spítalann og rannsóknarsetrið sem eru staðsett í höfuðborginni Kinshasa.

„Við tókum þátt í þessu verkefni vegna þess að spítalinn virðist vera að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að veita gæða læknisþjónustu en þurfa samt á viðbótar úrræðum að halda,“ sagði Matthew Heaps sem ber ábyrgð á vatnsverkefnum kirkjunnar. „Við hjálpum þeim að hjálpa sér sjálfum með því að veita viðbótar vatnsforða úr öðrum brunni svo hægt sé að reiða sig á áreiðanlegt vatnsrennsli.“

Spítalinn, sem er ekki rekinn í því skyni að eigendur hagnist af honum og opnaði árið 2007, er sýn Dikembe Mutombo, sem settist í helgan stein eftir 18 tímabil með NBA (National Basketball Association) liði í Bandaríkjunum. Spítalinn er í dag með 150 rúm en áætlað er að fjöldi rúma fari upp í 300.   

„Spítalinn var byggður til að hjálpa fólkinu úr heimabæ mínum að lifa heilsusamlegu og árangursríku lífi,“ sagði Mutombo, sem ræddi um verkefnið á kvöldverði þann 23. mars síðastliðinn með leiðtogum kirkjunnar í Salt Lake City.

„Þetta verkefni tengt brunninum mun verða viðbót við núverandi vatnsrennsli sem þegar er á staðnum og mun veita dýrmætt hreint vatn sem sárlega vantar ef bilun eða vöntun verður á núverandi almenna vatnskerfinu.“

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni þá eru lífslíkur í Lýðveldinu Kongó um 46 til 49 ár.  Nærri því fimmta hvert barn lifir ekki að verða sex ára.

Spítalinn er aðgætinn að vatns neyslu sinni bæði hvað magn og gæði varðar og er nú þegar með kerfi sem hreinsar vatn áður og eftir að það er notað.

Núverandi almennings vatnskerfið er með hægfara rennsli sem kemur í veg fyrir að vatnstankar sem eru á staðnum nái að fyllast. Þetta verkefni mun hjálpa til við að veita stöðugu flæði af hreinu vatni til spítalans.

Þegar verkefninu er lokið mun brunnurinn verða tæplega 100 metra djúpur og vatninu mun verða dælt í tæplega 50.000 lítra háttstandandi tank og þyngdaraflið mun sjá til að skammta spítalanum vatnið allan sólarhringinn, sjö daga vikunnar.

Mutombo segir að þegar vatns vandinn hefur verið leystur muni spítalinn geta aukið getu sína í að veita sérhæfða þjónustu.

„Kinshasa borg er einungis með eina himnuskilju miðstöð sem er að sligast og getur ekki mætt þörfinni,“ sagði Mutombo. „Viðbótar vatnsuppsprettan hjálpar okkur að taka fyrsta skrefið við að bæta við 10 rúma himnuskilju einingu sem myndi þjóna nokkur hundruð sjúklingum á ári.“

„Við höfum séð ósvikna umhyggju hjá Dikembe Mutombo stofnuninni gagnvart þeim sem eru bágstaddir í heiminum,“ sagði Heaps, „og við erum ánægð að fá að aðstoða við að uppfylla verkefnið við Biamba Marie Mutombo spítalann.“

Spítalinn er með um 450 starfsmenn og á síðasta ári meðhöndlaði spítalinn um 22.000 sjúklinga.

Búist er við að það taki þrjá mánuði að ljúka verkefninu.