Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 12.09.2010

 

Kirkjan aðstoðar við hjálparstarf í Pakistan

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu tekur höndum saman með fleiri hjálparstofnunum við að veita neyðaraðstoð á flóðasvæðunum í Pakistan. Kirkjan er í félagi við mannúðarsamtökin International Relief and Development, International Medical Corps og Saba Aslam Welfare and Trust við kaup á neyðarbirgðum og dreifingu þeirra. Fleiri birgðir frá mannúðarstofnun kirkjunnar Humanitarian Center í Salt Lake City verða sendar á komandi vikum í félagi við hjálparstofnunina Islamic Relief, Bandaríkjunum. Stöðugt er metið hvort senda þurfi fleiri birgðir á komandi vikum. 

"Hugsanir okkar og bænir eru helgaðar íbúum Pakistan," sagði Bishop H. David Burton, yfirbiskup kirkjunnar, sem hefur yfirumsjón með hjálparstarfinu. "Rausnarlegar gjafir meðlima kirkjunnar og annarra gerir kirkjunni mögulegt að standa fyrir hjálparstarfi til að líkna mörgum og létta þjáningar þeirra." 

Gríðarlegar monsúnrigningar sem hófust í Pakistan í júlílok eru orsök versta flóðs í 80 ár. Þetta hefur haft áhrif á yfir þriðjung landsins og yfir 1.500 manns hafa látist og 17 milljónir hlotið beinan skaða af. Yfir 1.2 milljónir heimila hafa eyðilagst og talið er að um 8 milljónir manna séu heimilislausir sökum þessa. 

Þar sem Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur enga formlega viðurvist í Pakistan, hafa engir þegnar kirkjunnar, trúboðar eða samkomuhús orðið fyrir beinum áhrifum af flóðinu.   

Kirkjan stendur fyrir líknar- og þróunarverkefnum í mannúðartilgangi í löndum víða um heim. Verkefnin eru unnin án tillits til þjóðernis eða trúarbragða þiggjenda. Framlög, og þá aðallega frá þegnum kirkjunnar, en einnig frá öðrum um víða um heim, eru notuð til að gera líknarverkefni að raunveruleika. Framlög sem gefin eru Mannúðarþjónustu kirkjunnar fara óskipt í hjálparstörf. Kirkjan leggur sjálf út fyrir eigin kostnaði.