Fréttir - 07.09.2010 |
Nokkrir fundir hafa átt sér stað á milli háttsettra embættismanna alþýðulýðveldisins Kína og Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sem gætu leitt til "staðlaðrar" starfsemi kirkjunnar í Kína. Í yfirlýsingu frá Æðsta forsætisráði kirkjunnar kemur fram að háttsettur fulltrúi alþýðulýðveldisins Kína - sem er æðsti fulltrúi frá Beijing sem á fund með kirkjuleiðtogum - hafi sótt Æðsta forsætisráðið heim.
Fundur þessi, sem haldinn var í stórnsýslubyggingunni í Salt Lake City, þriðjudaginn 24. ágúst, fylgdi í kjölfar annarra funda í febrúar og maí í Beijing, sem sóttir voru af postulanum öldungi Dallin H. Oaks og öldungi Donald L. Hallstrom, sem bera ábyrgð á yfirstjórn kirkjunnar í Asíu, að beiðni Æðsta forsætisráðsins. Fundir þessir voru haldnir að frumkvæði kínverskra fulltrúa.
Öldungur Oaks og öldungur Hallstrom eru fulltrúar tveggja helstu ráða kirkjunnar - öldungur Oaks er í Tólfpostularáðinu og öldungur Hallstrom er í forsætisráði hinna Sjötíu.
"Mikilvægt er að gera sér grein fyrir hvað hugtakið staðlað merkir og hvað það merkir ekki," sagði Michael Otterson talsmaður kirkjunnar. "Það merkir ekki að væntum þess að geta sent trúboða til Kína. Það mál er ekki einu sinni til íhugunar.
Kirkjan metur mikils þá tillitssemi kínverskra ráðamanna að finna leiðir til að skilgreina betur hvernig kirkjan og meðlimir hennar geta borið sig að í daglegu starfi, í fullu samræmi við kínversk lög."
Otterson sagði að vinna þurfi úr mörgum smáatriðum í frekari umræðum við kínverska ráðamenn, og að fyrirhugaðar ráðstafanir mætti rekja til uppbyggingar 30 ára gagnkvæms trausts við Kínverja.
"Þeir eru orðnir vel kunnugir okkur í gegnum fjölda samskipta og hafa séð hvernig við og meðlimir okkar starfa í Kína. Þeir vita að við stöndum við orð okkar þegar að því kemur að virða kínversk lög og menningarleg gildi."
Í formlegri en stuttri yfirlýsingu frá Æðsta forsætisráðinu segir að þeir og aðrir háttsettir leiðtogar í höfuðstöðvum kirkjunnar í Salt Lake City "hafi rætt við háttsetta embættismenn frá Beijing í alþýðulýðveldinu Kína, og komið á sambandi sem vonir stæðu til að leitt geti til þess að starfsemi Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Kína verði staðlað."
Otterson sagði að þar sem mikilvægt væri að skilningur væri fyrir hendi og farið yrði að tilskipun hinna ýmsu kínversku laga, og að samstarfsandi ríkti áfram, hyggst kirkjan ekki að svo komnu máli tjá sig frekar um umræðurnar.
Við fundarlok í Salt Lake City var ákveðið að viðeigandi væri að upplýsingar þessar yrðu birtar almenningi, sagði Otterson.