Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 26.07.2011

 

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Noregi bregst við hörmungum

Samúðarbréf hefur verið sent til ríkisstjórnar Noregs af hálfu Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Noregi.  Kirkjan í Noregi hyggst hafa blóðgjafardag til stuðnings heilsugæslu og til að votta fórnarlömbum og slösuðum virðingu.  Kirkjan býður líka fram aðstoð Hjálparhanda mormóna á þeim svæðum sem þörf er fyrir hjálp.