Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 10.02.2011

 

Kapella endurbyggð eftir eldsvoða

Kapella Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Tampere, Finnlandi, er hún brann til grunna.

Joseph Groberg og Daniel Powell, trúboðar í Finnlandi, sýna eintök af hinum 46.000 bæklingum sem var handdreift.

Úr öskustónni rís ný kapella.

Sunnudaginn 16. janúar 2011 var ný trúarkapella vígð í Tampera, Finnlandi.  Erich W. Kopischke, forseti Evrópusvæðis Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu vígði bygginguna.  Nýja byggingin var reist að fyrirmynd byggingarinnar sem brann til grunna.

Síðla kvölds, 5. janúar 2008, voru tveir ungir menn, 18 og 19 ára, valdir að eldsvoðanum sem eyðilagði bygginguna.  Eldurinn átti upptök í sorptunnu og barst fljótlega að byggingunni og að morgni var kapellan rústir einar.  Fáeinum hlutum var bjargað: Mynd af Jesú Kristi við brunninn; handhnýtt motta sem búin var til árið 1970; örfilmuskoðari og einhver tækjabúnaður úr ættfræðisafni í kjallara hússins.

Kopischke forseti sagði við vígslu hinnar nýju kapellu: "Það sem var hörmulegt slys snerist upp í blessun.  Við og meðlimirnir finnum til samúðar með þessum ærslafullu piltum, sem engan veginn ætluðu sér að bera eld að kapellunni þegar þeir kveiktu í sorptunnunni.  Þrátt fyrir skemmdirnar sem þeir ullu og ábyrgð gjörða þeirra, sættu þeir slíkri meðferð að það verði þeim ekki til tjóns í framtíðinni.   Af þessu getum við dregið lærdóm.  Frelsarinn fordæmir okkur aldrei.  Hann býður okkur að breyta lífi okkar til hins betra.  Drottinn þráir að við snúum til baka í návist himnesks föður."  Kopischke sagði hina nýju byggingu vera merki sannleikans og vita ljóss og sannleika.  Hann sagði: "Vonir mínar standa til þess að þið og ég ræktum slíka trú að Guð blessi okkur, fjölskyldur okkar, lönd og borgir, er við helgum okkur Drottni."

Í kjölfar vígslunnar var haft opið hús.  Í 46.000 bæklingum, sem 400 meðlimir kirkjunnar á Tampera svæðinu dreifðu til fólks, ásamt heimboði, voru kenningar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og tilurð hinnar nýju byggingar. 

Meðal þeirra sem komu á opna húsið voru Ben og Jonna Christensen.  Jonna er vinsæl söngkona, listamaður og skemmtikraftur frá Finnlandi.  Hún hefur gefið út þrjá hljómdiska (einn sem næstum fékk gullið) og enn annar diskur er í farveginum.  Jonna gekk í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu fyrir sjö árum og breytti lífi sínu og tónlist sinni.  Nýverið söng hún einsöng í hinni evrópsku söngvakeppni sjónvarpsstöðva 2011, lagið "Puppets." "Puppets" er sterk yfirlýsing um siðferði í klæðaburði.

Séra Jorma Katainen frá Ilomentien svk söfnuðinum var þar einnig gestkomandi.   Presturinn, sem hafði boðið fram afnot af kirkju aðventista, sagði: "Við réttum ykkur hjálparhönd eftir að byggingin varð eldinum að bráð og nú óskum við ykkur til hamingju með nýju bygginguna."