Fréttir - 23.02.2009 |

Maria Knaphus James, sem nú er 85, sat fyrir sem litla stúlkan í fræga handvagna listaverki föður síns, Torleif Knaphus. Afsteypan, sem gerð er af upprunalegu meters háu höggmyndinni er gjöf til norska vesturfarasetursins.
Um árabil hefur listaverkið verið táknmynd og eitt af frægasta listaverk Mormónismans. Nú mun afrit af “brauðryðjenda handvagna” höggmyndinni, sem milljónir hafa skoðað á musteristorginu í Salt Lake í gegnum árin, prýða vesturfarasetrið í Ottestad í Noregi, sem er í tveggja klukkustunda keyrslu norður af Osló.
Bróðir Knaphus (1881-1965) var norskur maður sem skírðist inn í kirkjuna og fluttist til Salt Lake árið 1905 þar sem hann skapaði margar höggmyndir og málaði málverk, sum hver með SDH þema. Margar höggmyndirnar voru unnar í umboðsstarfi fyrir kirkjuna. Fyrir utan handvagna höggmyndina þá er minnisvarðinn á Kúmóra hæðinni í Palmyra, New York sem sýnir engilinn Moróní sennilega frægasta verk hans.
„Það er mjög eðlilegt að hafa höggmynd af fólki að flytjast búferlum sem gerð er af norskri persónu er sjálf flutti búferlum staðsetta í norska vesturfarasetrinu,“ sagði Allen P. Gerritsen, barnabarn Knaphus og fulltrúi fjölskyldusamtaka Knaphus.
Upprunalega höggmyndin var gerð árið 1924 og var til sýnis um áratuga skeið í gömlu upplýsingabyggingunni á musteristorginu í Salt Lake þar sem suður gestamiðstöðin er nú staðsett.
Á aldarafmæli komu brautryðjendanna til Utah árið 1947 lét kirkjan gera afrit af höggmyndinni í fullri stærð sem síðan var sett upp á musteristorgið og hefur sú höggmynd staðið þar frá þeim tíma, rétt austan við Assembly bygginguna.
Bróðir Gerritsen sagði að höggmyndin sem fer til Noregs muni verða sett upp 7. júní á áberandi stað á gangstíg rétt utan við safnið, sem er á milli rannsóknarsetursins og trúarbyggingarinnar. Hátíðarhöld og formleg afhjúpun verksins mun eiga sér stað í kjölfarið og verður háttsettum leiðtogum úr samfélaginu boðið að vera viðstaddir.
Fjöldi afkomenda Knaphus safnaðist saman laugardaginn 31. Janúar í Salt Lake þar sem höggmyndin var „send af stað.“ Meðal viðstaddra var dóttir bróður Knaphus, Marie Knaphus James, sem sat fyrir sem litla stúlkan í handvagninum.
Nú er hún 85 ára gömul og segir hún frá minningum sínum um föður sinn. Þó hún muni ekki eftir föður sínum við vinnu sína þegar upprunalegu höggmyndina var gerð 1924 þá var stóra höggmyndin sem var gerð árið 1947„stór þáttur í lífi mínu,“ sagði hún. Hún man eftir að koma í vinnustofu hans og sjá hann vinna. Hún var í eitt skipti þar sem ung móðir og tjáði aðdáun sína fyrir verki hans og óskaði þess að hún hefði slíkan hæfileika. „Hann hætti að vinna, kom niður og horfði í augun á mér og sagði, 'Hví segir þú þetta Marie? Þú ert sjálf að móta og hanna á þessari stundu.'“ Hann sagði henni að hún væri að móta líf barna sinna.
„Hann var fljótur að fá mann til þess að finnast hans verk ekki vera mikilvægari en verk annara,“ sagði hún. Hún man eftir einu atviki á síðari árum föður síns þegar fréttamaður frá tímaritinu Life tók við hann viðtal í vinnustofunni í Salt Lake. Þar voru þeir umkringdir styttum, olíu málverkum og líkönum úr leir. Þegar Knaphus var spurður hvert væri hans mikilvægasta verk þá benti hann á myndir af fjölskyldu sinni og stórt ættartölukort sem hékk á veggnum. Hann svaraði, „Fjölskyldan mín og þessi ættfræði rannsókn hafa verið mikilvægustu verk lífs míns.“
Þetta var ekki svarið sem fréttamaðurinn frá tímaritinu Life var að leita að, minnist dóttir hans, en svarið endurspeglaði gildum hans.
Hún man eftir því að faðir hennar var ákafur við að dreifa bæklingum og bókum um kirkjuna til fjölskyldu og vina í Noregi eftir að hann gekk í kirkjuna. „Nú mun þetta handverk hans halda því trúboðsstarfi áfram í föðurlandinu,“ sagði hún.
John, sem er bróðir Gerritsen og formaður fjölskyldusamtakanna, sagði að afi sinn hefði notað nokkrar fyrirsætur í verki sínu en fyrir föðurinn í handvagns höggmyndinni hefði hann notað, meðal annarra, svipmynd af John Rowe Moyle sem var brautryðjandi og steinhöggvari og vann við að byggja Salt Lake musterið.
Í ráðstefnuræðu sinni í október á síðasta ári sagði Dieter F. Uchtdorf, sem er annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, frá hvetjandi sögu bróður Moyle sem missti annan fótinn eftir að hann brotnaði illa í vinnuslysi á bóndabæ sínum. Bróðir Moyle hannaði tréstubb sem hann notaði til þess að geta gengið 35 km ferð sína frá heimili sínu í Utah dalnum til Salt Lake. Þar hélt hann áfram vinnu sinni á musterinu. Í apríl ráðstefnuræðu árið 2000 sagði Öldungur Jeffrey R. Holland í Tólfpostulasveitinni einnig sögu af bróðir Moyle.
Allen Gerritsen sagði að fjölskyldusamtökin hefði komist að því fyrir fimm árum að það eru engin listaverk til í Noregi frá frægum forföður þeirra. Þau hófu því að safna fé til þess að búa til afsteypu af upprunalegu höggmyndinni og ætlunin var að gefa þá höggmynd safninu í Noregi. Hann sagði að höggmyndin muni verða staðsett á umfangsmikilli undirstöðu úr granít frá Iddelfjord sem einungis er að finna í Noregi. Einnig mun verða gerður bekkur úr sama efni sem verður staðsettur beint á móti höggmyndinni.
Þegar höggmyndin var send af stað skoðuðu afkomendur Knaphus og boðsgestir margar af höggmyndum og olíumálverkum Knaphus. Mörg þessara listaverka eru úr einkasafni fjölskyldumeðlima svo þetta var í fyrsta skiptið sem öll verkin voru saman komin á einum stað. Meðal verka var brjóstmynd af David O. McKay forseta, brjóstmynd af Emmeline Wells, kirkjuþegn frá brautryðjenda tímabilinu og höggmynd af Evan Stephens, einn af fyrstu kórstjórnendum Mormónakórsins og sálmaskálds.
Eitt málverkanna, sem málað var áður en bróðir Knaphus flutti frá Noregi, sýnir sveitabæinn í Noregi þar sem nafnið hans er dregið af. Knaphus er einstakt eftirnafn í Noregi sem þýðir hús staðsett á hæð.
Staðsetning höggmyndarinnar við safnið í Noregi er áframhald af tengslum sem bæði Knaphus fjölskyldan og BYU hafa hlúð að, sagði Erlend D. Peterson, aðstoðar yfirmaður alþjóðadeildar skólans og fyrrverandi trúboðsforseti kirkjunnar í Noregi.
„Handvagninn er mikilsvert framlag til safnsins,“ sagði bróðir Peterson. „Safnstjórinn, Knut Djupedal, er persónulegur vinur. Hann hefur komið til Salt Lake þrisvar sinnum til að ganga frá lausum endum og hann er mjög ánægður með að fá höggmyndina.“
Bróðir Peterson sagði að framlag höggmyndarinnar er mikilvæg staðhæfing um tuttugustu aldar Síðari daga heilga sem fluttist búferlum til Utah. „Þar til fyrir skömmu hefur norskt fólk sem tók upp Mormónatrú verið sniðgengið af flestum fræðingum sem eru utan kirkjunnar,“ sagði hann. „Fyrir nokkrum árum fékk ég leiðandi norskan fræðimann í búferlaflutningum í St. Olaf College, professor Odd S. Lovoll, til að heimsækja Utah og læra um Mormóna sem fluttu frá Noregi til Utah.“
Prófessorinn varði þremur dögum í að taka viðtöl við fólk sem flust hafði búferlum frá Noregi og niðjum þeirra. Síðar gaf hann út bók um norska Bandaríkjamenn sem innihélt hluta um SDH er flust höfðu búferlum og var prýtt með mynd af bróður Knaphus þar sem hann stóð við brautryðjenda handvagna höggmynd sína.
BYU er með tengsl við Noreg í gegnum námsstyrktar kerfi og röð heimsóknar fyrirlestra. Háskólinn í Utah hefur tekið á móti fjölmörgum gestum, þar á meðal núverandi forsætisráðherra Jens Stoltenberg, norsku prinsessunni Martha Louise og sópraninum Sissel Kyrkjebo sem hefur verið gestur Mormónakórsins. Hvert þeirra þriggja hefur fengið að gjöf litla útgáfu af handvagns höggmyndinni frá fjölskyldusamtökunum.
Richard G. Oman, sem til langs tíma var safnvörður sögusafns kirkjunnar þar sem upprunalega höggmyndin frá 1924 er nú til sýnis, var viðstaddur þegar afsteypan var send af stað. Hann sagði að arfleið sé að finna í höggmynd Knaphus sem og lífi hans, arfleið við að yfirstíga erfiðleika og ná að áorka miklu. Framtak fjölskyldunnar við að útvega safninu í Noregi höggmyndina er beiting tveggja lífsreglna sem spámaðurinn Joseph Smith kenndi: stjórna sjálfum sér samkvæmt réttum reglum og gera góða hluti af eigin vilja, sagði bróðir Oman.