Kirche Jesu Christi der Heiligen der Letzten Tage
Fréttir - 02.05.2010

 

Hnefaleikari fer í trúboð

Sofie bregður á leik.

Sofie Møholt, 22 ára, sem svifið hefur um hnefaleikasviðið og slegið frá sér til vinstri og hægri, svífur nú um götur Trondheim, Noregi, og miðlar gleðitíðindum fagnaðarerindis Jesú Krists.   Fréttablaðið Addressavisen, þar í héraði, sagði nýverið í fyrirsögn um hinn unga verðlaunahafa í hnefaleikum: "Hnefaleikarinn og trúboðinn Sofie Møholt setur fram kröftug rök."

Einn af bestu ungu kvenhnefaleikurum heims, Sofie, hefur lagt hanskana tímabundið á hilluna og gert hlé á því að lúskra á mótherjum sínum meðan hún ver næstu 18 mánuðum í að þjóna sem trúboði fyrir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.   Dag hvern reynir hún að miðla öðrum trú sinni, en draumar hennar um að snúa aftur í hringinn eru stórir, að keppa um verðlaunapening á Ólympíuleikunum í London 2012.

En hvernig tekst meistaranum í hringum að viðhalda trú sinni?  "Mér finnst ekkert mál að vera trúuð og stunda hnefaleika," sagði hún.  "Hnefaleikar eru í raun ekki ofbeldisíþrótt. Sigur krefst fyrst og fremst einbeitingar."

Sofie, sem alist hefur upp í hnefaleikafjölskyldu, tók fyrir alvöru að slá frá sér þegar hún var 13 ára, er hún atti kappi við föður sinn og bróður á heimili sínu í Horsens, í Jótlandi, Danmörku.  Sá tími og árin þar á eftir við þjálfun og æfingar hafa gert hana að einum besta kvenhnefaleikara heims.  Hún hefur þrisvar orðið danskur meistari og tvisvar Norðurlanda meistari og nældi sér í bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu og varð í fjórða sæti í úrslitum á heimsmeistaramótinu.

Hún mun nú, í stað þess að efla hnefaleikatækni sína, vinna trúboðsstarf fyrir kirkjuna meðal íbúa í Þrándheima.   Á sama tíma og hún þarf sjálf að sjá um uppihald og útgjöld vegna ferða sinna, líkt og margir ungir trúboðar kirkjunnar þurfa að gera, býður hún og félagar hennar öðrum að koma til Krists og njóta sömu gleðinnar og hún nýtur við að lifa eftir kenningum hans.   Líkt og Sofie sagði, þá er boðskapur hennar þessi: "Guð elskar okkur og hefur áætlun fyrir okkur sem manneskjur.  Hann hefur endurreist kirkjuna sína, líkt og hún var á tímum Jesú.   Í þeirri viðleitni útvaldi hann nýjan spámann, Joseph Smith, sem var uppi á átjándu öld.  Hann þýddi Mormónsbók, sem við notum sem helga ritningu auk Biblíunnar."

Þegar hún var spurð að því hvað hún hefði lært af hnefaleikunum sem kæmi henni að gagni við trúboðsstarf hennar, sagði hún: "Setja sér skýr markmið dag hvern.  Ég er þekkt fyrir baráttuanda minn sem hnefaleikari og hann nýtist mér í trúboðsstarfinu.  Mitt daglega markmið er að vera sátt við sjálfa mig við dagslok."

En þegar Sofie var aftur á móti spurð að því hvernig trúin hefði haft áhrif á hnefaleik hennar, svarði hún: "Áður en ég fer í hringinn, fer ég alltaf með stutta bæn um að ég hljóti styrk.  Það hefur knúið fram marga sigra."

Þótt hún einbeiti sér nú að trúboðsstarfinu, er hún fullviss um að hún muni snúa aftur í hringinn.  Draumur hennar: Að verða atvinnuhnefaleikari.